Vorið - 01.09.1956, Side 24

Vorið - 01.09.1956, Side 24
102 V O R I Ð mannatlokkur, svo hljómsveit. Þá kom bamaskrúðgangan, sem var Iang-skemmtilegust. — Hver skóli gekk undir sínum fána, en einkenn- isbúin iúðrasveit drengja lék, en börnin sungu með. Þess á milli húrruðu þau og veifuðu fánum glaðlega til áhorfenda. Þau komu öllum í gott skap, þó að veðrið væri leiðinlesrt. Á eitir barnaskólunum O komu aðrir skólar, lramhaldsskólar, menntaskólar, háskólinn, iðnskól- ar, stúdentalélagið. Blindraskólinn og heyrnarleysingjaskólinn tóku og þátt í þessum þjóðlega lagnaði. — Blindu börnin voru sum á bílum. Síðar um daginn var alipenn skrúðganga. Hún tók 20 mínútur. í henni voru ýmis félög og hljóm- sveitir undir fánum. Skrautlegastir voru þjóðbúningar stúlknanna hjá ungmennafélaginu. Nokkrir piltar voru einnig í þjóðbúningum. Fimm piltar úr félaginu léku á fiðlur í skrúðgöngunni. Róðrarfélagið bar aflangan, lítinn bát, og tvær stúlkur og tveir drengir fjórar árar. Á fána hjúkrunarkvenna fæðingarstofnun- arinnar var brúða, og fyrir neðan storkur með barn í nefinu. Ofur- lítil gamansemi var líka vel þegin í sambandi við hátíðahöldin. Norskum börnum þykir vænt um þjóðhátíðardaginn sinn. Honum fylgir söngur og glaðværð. Þjóðsöng- ur Norðmanna er eftir stórskáldið Björnstjerne Björnson. Fyrsta er- indið er þannig: Já, ég elska ættarlandið, eins og fyrst það leit, veðurlamið bjargabandið, býlum stráða sveit. Elska, elska andvörp móður, orð míns föður liörð, elska sagna helgan hróður, hulu draums á jörð. Ég hygg, að fáar þjóðir eigi jaín hátíðlegan þjóðliátíðardag og Norð- menn. Ogsannarlega mega íslenzku börnin öfunda norsku börnin al lúðrasveitum sínum. Síðar um daginn horfði ég á skíðastökk. Eins og kunnugt er, a skíðaíþróttin miklum vinsældum að fagna í Noregi. Hafði snjór verið fluttur ofan úr fjöllum til þess að geta haft skíðastökk þennan dag. Hálmur var í kring fyrir neðan, handa skíðamönnunum til að detta í, þegar þeir komu niður brekkuna. Þarna var fjöldi fólks saman kom- inn. íþróttafélag gekkst fyrir þessu, og var ágóðanum varið til sumar- dvalar fyrir börn úr bænum. Fyrst stukku fjórir 13—14 ára drengir. Því næst komu skíðamenn í alls konar dularbúningum og skemmtu fólkinu með ýmiss konar skrípalátum. Sumir voru í gervi bjarndýrs, aðrir kolbítar, hermenn, pylsugerðarmaður og strokufangi- Þá voru þar rauðklædd hjón, seni leiddust. Að lokum komu þrír skíðasnillingar, sem fóru höfuð- stökk i loftinu. Gerðu þeir þetta

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.