Vorið - 01.09.1956, Síða 25

Vorið - 01.09.1956, Síða 25
V O R I Ð 103 Framhaldssagan. Börnin við járnbrautina. Saga eftir E. NESBIT — Hannes J. Magnússon þýddi. (Framhald). Þau gengu efst upp á hamarinn, þar hvíldu þau sig og horfðu niður til járnbrautarlínunnar, sem lá eftir endilöngum dalnum, eins og gjá. „Ef járnbrautin lægi ekki þarna, mætti ímynda sér, að þarna hefði aldrei nokkur maður stigið fæti sín- um,“ sagði Fríða. Þarna voru eintómir grágrýtis- klettar, en inni á milli þeirra uxu alls staðar grös og blómjurtir. Tré og runnar, er höfðu vaxið upp af fræjum, sem fuglarnir höfðu misst niður í sprungurnar, teygðn sig einnig hér og hvar upp á milli stein- anna. mjög glæsilega. Þarf mikla leikni til þess, og ekki má mikið út af bera. Eg sé, að ég er farinn að segja frá fleiru en ég ætlaði í fyrstu. Frásögn af kvöldi þjóðhátíðardagsins sleppi ég að þessu sinni. Það var fögnuður barnanna, sem mér var minnisstæð- astur frá þessum degi. Og ég hygg, að þessi dagur eigi mikinn jrátt í að gera Norðmenn að einni jajóð. Eirikur Sigurðsson. „Við skulum koma héðan,“ sagði Pétur. „Við finnum meira af berj- um, ef við förum Jrangað, sem við tíndum berin, er við létum á leiði kanínunnar.“ Þau fóru nú niður af hamrinum, en Jregar þau voru komin nærri því niður, sagði Bobbí: „Þey, Jrey, livað er Jjetta?" Þau lreyrðu eithvert hljóð. „Nei, lítið á tréð þama!“ kallaði Pétur. Tré jxað, er hann benti á, hreyfði sig ekki á sama hátt og tré eru vön að gjöra, þegar vindurinn þýtur í greinum þeirra. Það hreyfði sig eins og lifandi vera, og kom nú labbandi niður brekkuna. „Það lireyfir sig,“ sagði Bobbí, „og lítið á, hin trén gjöra Jrað líka.“ „Þetta eru galdrar," sagði Fríða og stóð á öndinni. Og Jretta var vissulega mjög ein- kennilegt. Allur skógurinn hinum megin í hlíðinni, á hér um bil tutt- ugu álna breiðu svæði, hélt nú af stað í hægðum sínum niður að járn- brautarlínunni. „Hvað er Jretta? Ó, hvað er þetta?“ sagði Fríða. „Þetta er eitt- livað yfirnáttúrlegt, ég er hrædd við það. Við skulum flýta okkur heim.“

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.