Vorið - 01.09.1956, Page 35
V O R I Ð
113
SKÍÐAFERÐ
— Sönn frásögn. —
Ég stencl við gluggann og horfi
út. J ú, þarna sé ég það, sem ég horfi
eftir: Ellý vinkona mín kemur heim
að húsinu á skíðurn. Við ætlum sem
sagt í skíðaferð upp í Hengibrekku.
Ég hleyp út og læt á mig skíðin. —
Ellý segir, að það sé bezta skíða-
færi. Ferðin gengur vel upp brekk-
una, en svo syrtir snögglega, og þeg-
ar við erum komnar upp, sjáum við
ekki nema rétt fram fyrir okkur.
En eftir að liafa blásið mæðinni,
ákváðum við að keppa niður, og ég
tel 1 — 2 — 3, og báðar af Gtað!
Við höfum hríðina í bakið, svo að
ekki telur hún okkur. Við förum
l)eint af augum og sjáum ekkert
nema hvíta mjöllina.
Ella er rétt á undan, en allt í einu
rekur hún upp angistaróp, og rétt á
eftir kútveltumst við báðar í snjón-
um, og annar skíðastafurinn hennar
Ellý fór alveg í rr'ist.
Þá höfðu bræður rnínir, Jjeir
Diddi og Kiddi, rekið niður staura
og strengt reipi á milli, og hríðin
var svo dimm, að við sáum þetta
ekki.
F.n strákar lofuðu að borga staf-
inn, og Ellý sagði, að stafurinn hefði
gott af Jdví að brotna, og við skild-
um sátt.
Og svo er þetta nú ekki lengra.
Gullý, 15 ára.
Frá kaupendum
Vorinu berst að jafnaði mikill fjölcli
elskulegra bréfa. Því miður hefur ekki
orðið af því, að birta þau eða kafla úr
þeim. En hér birtasl tvö bréf, sem hafa
verið valin af handahófi. — Ritstj.
Kæra Vor!
Ég ætla bara að skrifa þér nokkr-
ar línur og þakka þér fyrir allar
skemmtilegu ánægjustundirnar, er
þú hefur veitt mér. Sögurnar eru
alltaf svo skemmtilegar og leikritin.
Mér finnst ,,Vorið“ alltaf bezta o >
skemmtilegasta blaðið, sem ég les.
Eg byrjaði að kaupa Vorið, Jaegar ég
var 8 ára 1949, og ég á öll heltin. í
fyrravetur kenndi pablti mér að
binda bækur, og þá batt-ég ,,Vorið“.
Og svo að endingu: Ég vona, að
,,Vorið“ komi alltaf út og verði allt-
al jafn skemmtilegt.
Kær kveðja — og „Vorið“ lengi
lili!
15 dra lcsandi i N.-Þing.
Droplaugarstöðum,
29. júlí 1956.
Kæra „Vor“!
Eg J^akka „Vorinu" kærlega fyrir
alla skemmtunina og fróðleikinn.
Eg álít, að sem flest börn og ung-
lingar ættu að kaupa „Vorið“. Það
flytur hollt og lærdómsríkt lestrar-
efni fyrir fólk á öllum aldri. Núna í
öllu því ógnarflóði af bókum og
blöðum, sem dreift er út um byggð-