Vorið - 01.03.1959, Page 14
10
V O R I Ð
Benedikt Bjarklind
núverandi stórtemplar.
og auðguðu félags- og skemmtanalíf-
ið á hverjum stað. Þær voru fyrsti
skólinn í félagslegum efnum og fé-
lagslegum þroska í landinu. Börnin
fengu hina fyrstu þjálfun í vel
skipulögðum barnastúkum. Síðan
tóku undirstúkurnar við. í áfengis-
málunum gerðu stúkurnar tvennt
í senn. Þær komu í veg fyrir
drykkjuskap, og þær björguðu
mörgum drykkjumanni frá ógæfu
með því að taka hann inn í félag
sitt, þar sem liann varð góður og
áhugasamur félagi.
Nú hafa stúkurnar á íslandi unn-
ið starf sitt í 75 ár. Það hefur orðið
þeim til láns, að þær hafa eignazt
marga ágæta starfsmenn, bæði fyrr
og síðar, sem voru miklir áhrifa-
menn í þjóðfélaginu, bæði ráðherr-
ar, alþingismenn og embættismenn
af ýmsu tagi. En þó var ekki minnst
vert um störf hinna mörgu, trúu,
nafnlausu karla og kvenna, er helg-
uðu stúkunni krafta sína. Og enn í
dag vinnur Reglan að alls konar
menningarstarfsemi auk þess sem
hún vinnur stöðugt og markvisst að
því að vinna á móti áfengisbölinu
með ýmsu móti. Hér á Akureyri
starfrækir Reglan t. d. Æskulýðs-
heimili templara, sem er stöðugt að
afla sér meiri og meiri vinsælda.
Nú eru starfandi í landinu um
50 undirstúkur með tæpum 4000
félögum og rúmar 64 barnastúkur
með um 6525 félögum. Þá er að
rísa hér upp sérstök deild innan
Reglunnar, en það eru ungmenna-
stúkurriar, í þeim eru nálega ein-
göngu unglingar frá fermingu til
tvítugs, og má mikils vænta af þeirri
deild.
Vorið sendir öllum barnastúkum
landsins kveðju sína og árnaðarósk-
ir. Þakkar ágætt starf þeirra á liðn-
um áratugum og óskar þeim gæfu
og gengis nú og alla tíma.