Vorið - 01.03.1959, Blaðsíða 33

Vorið - 01.03.1959, Blaðsíða 33
V O R I Ð 29 félag Akureyrar. Hefur félagið haft aðsetur sitt í Æskulýðsheimilinu í Varðborg og stöðugt starfað síðan. Ég kom fyrir skömmu til þessara drengja, þar sem þeir voru að störfum og átti tal við formann fé- lagsins, Tómas Búa Böðvarsson. — Hvað komið þið oft saman? — Við komurn venjulega saman þrisvar í viku og vinnum tvo tíma í hvert sinn. — Hafið þið engan leiðbeinanda? — Nei, við erum alveg einir og lijálpum hver öðrum. — Hvað eru margir í félaginu? — Við höfum oftast verið 10—12. En við gætum bætt nokkrum drengjum við. — Hvaðan fáið þið efni til að vinna úr? — Við fáum það bæði úr verzl- unum hér og frá Reykjavík. — Af hverju eru lielzt gerð módel í svona félagsskap? — Algengast er að gera flug- módel og bátamódel. En einnig er hægt að gera módel af mörgu öðru t. d. húsum. Börn erlendis gera módel af járnbrautarlestum og kappakstursbílum. — Búið þið áðeins til flugmódel? — Nei, við búum einnig til módel af bátum og skipum. Af bát- um eru það einkum hraðbátar. Sjálfur er ég með skip sem stendur. En á því er mikið verk. En mest er unnið að flugvélum og eru þær vin- sælastar. — Eru það aðeins svifflugur? — Nei, við höfum einnig vél- knúnar vélar. Hreyflana fáum við úr Tómstundabúðinni í Reykjavík. \'élflugurnar eru eftirlíkingar af stærri vélum. Þær eru tvenns kon- ar, línustýrðar flugur og frítt fljúg- andi. — Hvað gerið þið svo við svif- flugurnar? — Við rennum þeim þar til þær skemmast. Þá búum við til aðrar nýjar. En vélknúnu flugurnar og liraðbátana getum við átt. Ég dáist að áhuga drengjanna og þakka fornranninnum greið svör. Svo óska ég þessum drengjum ánægjulegra stunda við þessa skemmtilegu tómstundaiðju. ____________________________E- Sig. Frá útgefendum Undanfarin ár hafa verið stöðugar verð- liækkanir á prentun og pappír vegna vax- andi dýrtíðar. Síðastliðið ár hækkaði verð á pappír mjög nrikið, einkum góðum pappír, eins og Vorið var prentað a. Nú um áramótin lá því ekki annað fyr- ir en annað hvort hækka áskriftargjald Vorsins að nrun, eða að prenta það á ó- dýrari pappír. Síðari kosturinn var tek- inn í því trausti, að það nryndi verða kaupendum frekar að skapi. En fyrir bragðið verður pappírinn ekki eins skemmtilegur og verið hefur. Verð ritsins helzt því óbreytt, eða að- eins 25 krónur. Vorið óskar svo öllum kaupendum sín- um árs og friðar og allrar guðs blessunar á komandi ári og þakkar viðskiptin á liðnum árum.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.