Vorið - 01.02.1974, Síða 8

Vorið - 01.02.1974, Síða 8
Þau fóru svo saman til að vitja um músarholuna. — Var kötturinn inni hjá ykk- ur? spurði Fríða. — Já, ég bað pabba að loka hann inni, svo að hann deyddi ekki fuglsungana. — Þar varstu kænn. En hann má heldur ekki deyða þá. Enn gáfu þau músinni brauð og ost. Og hún var iðin við að tína það upp. Hún fór oft inn í holuna, svo að hún hlaut að bera það þangað inn. En þau Bragi og Fríða lágu í grasinu og fylgdust með öllum hennar ferðum. Þannig liðu nokkrir dagar. Þetta voru spennandiogskemmti- legir dagar fyrir þau Braga og Fríðu. Þau áttu ein þetta leyndar- mál. Aldrei sáu þau nema eina mús við holuna og vissu ekki, hvort það var músapabbi eða músamamma. Einn morgun gaf Bragi mús- inni hafragrjón. Mamma hans hafði oft sagt, að hafragrautur væri hollur. Um kvöldið sagði einn vinnumaðurinn, að ekki mætti gefa snjótittlingum hafra- grjón, þegar þeir leita til byggða á vetrum. Það væri skaðlegt fyrir þá. Þegar Bragi heyrði þetta, sá hann eftir að hafa gefið músinni hafragrjón. Kannski dæi hún af þeim og ungarnir hennar. Bragi barðist við þessar áhyggj- ur sínar og þorði ekki að minnast á þær við nokkurn mann. Ekki einu sinni Fríðu. Daginn eftir sáu þau enga mús, þó að þau stráðu mat við holuna og biðu lengi úti á holtinu. Öttinn um að hafa unnið mús- inni tjón nagaði samvisku Braga. Honum fannst, að hann hafi fram- ið ódæðisverk með því að gefa músinni hafragrjón. Hann svaf illa um nóttina af þessari ástæðu. Hann sá fyrir sér litlu, slétthærðu músina. Brúni belgurinn hennar var svo falleg- ur og hún var svo sakleysisleg a svipinn. Enn fóru þau Bragi og Fríða morguninn eftir með brauð út að músarholunni. Braga leið ekki vel.Hann hafði hjartslátt.En þeg- ar þau höfðu falið sig nokkra stund í puntgrasinu uppi á holt- inu, kom músin út úr holunni. En hvað Braga létti við að sjá hana. Það var þá ekkert að henni. En nú var hún ekki ein á ferð. Á eftir henni komu fjórir litlir músarungar. Börnin hnipptu hvort í annað og brostu af a' nægju. Ekki voru ungarnir eins fallegir og músamamma, en gam-

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.