Vorið - 01.02.1974, Blaðsíða 34

Vorið - 01.02.1974, Blaðsíða 34
LITIÐ ÆVINTÝRI Sagan honum Sóta Það var einu sinni smáhestur, sem hét Sóti, af því að hann var á litinn eins og svartkámugur sótari, þegar hann skríður upp úr reykháfi. Sóti var til húsa á heimilinu hennar Önnu og hún Anna var átta ára. í tvö ár hafði hún nótt og nýtan dag verið að biðja hann föður sinn um að gefa sér hest. þegar faðir hennar sagði þá: — fá, en, það er nú enginn leikur að hafa hest í íbúð inni í miðri borginni. — Þá sagði Anna: — Hesturinn getur bara verið í baðherberginu. Þar kom að lokum, að faðir hennar lét undan þessum þrábænum dótturinn- ar, keypti Sóta og fór með hann inn í baðherbergið. Nú, Sóta voru gefnir hafrarnir sínir í vaskinn og hann svaf í baðkerinu, enda hafði Anna lagt hálm í botn þess til þess að það færi betur um hann. Venjulegir hestar sofa flestir standandi, en Sóti hafði nú ekki þann sið. Hann svaf alltaf á bakinu í bað- karinu og teygði lappirnar sínar beint út í loftið. Honum fannst líka, að hann ætti auðveldara með að hugsa, þegar hann )a þannig. Á daginn stóð hann fyrir frani- an spegilinn og speglaði sig, og fannst hann vera hinn snotrasti smáhestur. Af sjálfsdáðum tók hann nú að bursta tenn- ur sínar á kvöldin og stundum þvoði hann sér líka um hófana. Þegar Anna ætlaði að skreppa á hest- bak, þá teymdi hún Sóta fram í lyftuna — þau bjuggu á sjöundu hæð — svo rann lyftan með þau niður og þá þeystn þau fram og aftur um skemmtigarðinn sér til hinnar mestu skemmtunar. En svo gerðist það dag einn, að Sóti sat fastur í lyftunni. Lyftan ók upp °$ taglið á honum klemmdist fast í lyfW' dyrunum. Sóti fann ekki svo ýkjamikið til í taglinu, en hann kvartaði nú sa®t og kveinkaði svo að undir tók í öl® húsinu. Upp frá þeim degi þvertók hann fyrir það að aka í lyftu, og hann ko® sér ekki til þess að ganga upp og nið® 34 VORl0

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.