Vorið - 01.02.1974, Side 26

Vorið - 01.02.1974, Side 26
Og síðan lagði hann af stað með nesti og nýja skó. Hann leit- aði lengi í skóginum, en fann ekkert. Loks kom hann að lítilli lind og sá að þar var lítill dvergur, sem var að smíða hús handa sér. Stefán bauð góðan daginn og sagðist heita Stefán, og þá leit dvergurinn við og sagði: „Góðan daginn. Og ég heiti nú Jói og er skógardvergur. Hvaða erindi átt þú hér góði minn,“ sagði Jói. „Ég er að leita að lítilli stúlku, sem heitir Hjördís. Hún týnd- ist fyrir 3 dögum,“ sagði Stefán. „Nú já, ég veit hvar hún er niður sest. Ég skal gefa þér blað með kvæði, sem getur vakið hana. Það er svona: Vaknaðu væna vaknaðu nú komdu og klæddu þig í skóna. Og þá mun stúlkan birtast fyrir framan þig og leiddu hana þá heim til föður hennar, skilurðu mig.“ „Já,“ sagði Stefán, „en hvar á ég að kalla þetta kvæði?“ „Þú kallar það þegar þú ert kominn að 30. trénu í skógin- um.“ „Á ég þá að fara í gegnum 30 tré?“ „Já,“ sagði dvergurinn, „og vertu nú bless.“ Og Stefán lagði af stað. Þegar hann kom hjá 30. trénu, sagði hann: Vaknaðu væna, vaknaðu nú, komdu og klæddu þig í skóna. Þá birtist Hjördís og sagði: „Taktu í hönd mér og leiddu mig til föður míns.“ Stefán gerði það og þegar hann kom heim til föður litlu stúlk- unnar, sagði faðir hennar að hann ætti að fá hús sitt, því að hann væri alveg að deyja og hann ætti líka að fá dóttur sína fyrir konu. Og þau giftust og lifðu konungslífi, en foreldrar Stefáns höfðu dáið úr veikindum, og þannig endar sagan. 26 VOR|{?

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.