Bjarmi - 01.10.1967, Síða 11
lega: „Ég vil fá svar án allra
horna.“
„Þér skuluð þá fá svar án
horna og tanna,“ sagði Lúther.
„Göfugi keisari og furstar, ég
hef skrifað margar bækur, sum-
ar gegn þeim villukenningum,
sem allir menn viðurkenna að
séu villa. Ég þori ekki að neita
því, sem mér finnst vera rétt.“
„Þú hefir ekki svarað spurn-
ingunni, sem lögð var fyrir þig,“
sagði Eck, fulltrúi páfans, reið-
ur. „Viltu taka aftur þær skoð-
anir, sem páfinn fyrirdæmir?
Þú ert ekki kallaður hingað til
þess að prédika. Svaraðu strax.“
„Þar sem hans hátign krefst
svars,“ sagði Lúther, „skal ég
gefa nákvæmt svar. Verði ég
ekki sannfærður með orðum
Heilagrar Ritningar, get ég ekki
og vil ekki taka neitt aftur. Það
er ekki gott fyrir kristinn mann
að tala gegn samvizku sinni.“
Því næst leit hann í kringum sig
á hinn skrautbúna hóp, teygði
út handleggina og kallaði með
þrumandi raust: „llér stend ég
og get ekki annað, Guð lijálpi
mér! Amen.“
Einfaldleiki og hátign þess-
ara orða vakti undrun þingsins.
Menn voru sem þrumulostnir,
og enginn vanþóknunarkurr
heyrðist. Keisarinn náði sér
fyrstur og sagði síðan: „Þessi
munkur talar djarflega. Hann
er hugrakkur í hjarta.“
„Taktu villukenningar þínar
til baka,“ æpti Eck, „annars
mun keisarinn fara með þig eins
og þrjózkan villutrúarmann.“
„Guð hjálpi mér!“ svaraði
Lúther. „Ég þori ekki að taka
neitt aftur.“
Lúther dró sig því næst í hlé,
en var brátt kallaður inn aftur,
og önnur tilraun var gerð til
þess að fá hann til þess að taka
kenning sína aftur.
„Marteinn, þú hefir ekki tal-
að með þeirri hæversku sem
skyldi,“ sagði Eck. „Það er f jar-
stæða að tala um Ritningarnar
eins og þú gerir. Segðu einfald-
lega, hvort þú vilt afturkalla
eða ekki.“
„Ég hef ekkert annað svar en
það, sem ég hef þegar gefið,“
sagði Lúther rólega.
„Ríkisþingið mun koma sam-
an á morgun, til þess að heyra
álit keisarans,“ sagði Eck. „Þú
mátt fara, Lúther.“
Klukkan var nú orðin átta um
kvöldið, þegar Lúther gekk eftir
troðfullum götunum í fylgd með
hermönnum.
„Er verið að fara með hann
í fangelsi?“ hrópaði múgur-
inn.
„Nei,“ svaraði Lúther, „ég er
aðeins að fara í gistihús mitt.“
Er hann kom inn í herbergi
sitt, kom þjónn inn með silfur-
drykkjarker. „Hertoginn af
Brunswick biður yður um að
hressa yður,“ sagði maðurinn.
„Guði sé þökk. Ég er þá ekki
alveg vinalaus. Guð minnist
Eiríks hertoga á dauðastund-
inni,“ svaraði Lúther.
Næsta dag lýsti keisarinn því
yfir, að hann mundi fórna keis-
aradæmi sínu, dýrgripum sínum,’
vinum sínum, lífi sínu, líkama
og sál til þess að eyðileggja
Martein Lúther.
Lúther fór að ráði vina sinna
og yfirgaf Augsburg að nætur-
lagi. Hann hafði hitt Cajetan
kardínála að máli þar.
„Segðu aðeins sex bókstafi!
Revoco! Ég afturkalla!“ sagði
umboðsmaður páfa.
„Ég þori það ekki,“ svaraði
Lúther ákveðinn. „Sannaðu, að
ég hafi rangt fyrir mér og þá
mun ég fúslega taka þetta aft-
ur.“
„Vill kjörfurstinn stefna lönd-
um sínum í hættu þín vegna?“
„Guð forði því.“
„Hvert ætlar þú þá að leita
til þess að fá vernd ? Hvar ætlar
þú að vera?“
„Undir himninum — eða í
himninum,“ sagði Lúther. „Guð
stöðvar öldur hafsins við strönd-
ina, og hann stöðvar þær með
sandi!“ bætti hann við. „Hann
mun leiða þetta mál farsællega
til lykta.“
Kristniboðssambandinu bárust eftir.
taldar gjafir í ágúst:
Frá einstaklingum:
A. H. kr. 10.000,00, H. og G. M. kr.
1.000,00, Á. S. kr. 500,00, G. H. kr. 500,00,
Áheit kr. 100,00, S. K. kr. 500,00, J. Þ.
kr. 1.300,00, P. S. kr. 100,00, D. G. kr.
1000,00, M. Kd. kr. 300,00, G. S. kr.
12.000,00, St. G. kr. 2.400,00, S. G.
2.700,00, G. B. kr. 100,00, í tilefni af-
mælis kr. 5.000,00, S.F.S.V. kr. 2.000,00.
Félög og samkomur:
lnnk. samskot á tjaldsamkomum kr.
21.930,06, Innk. á kveðjusamk. vegna
Katrínar og Gísla kr. 41.076,33, Innk.
í IV, V, og VI fl. í Vindáshlíð kr.
1217,10, Innk. viðb. við tjaldsamk. kr.
200,00.
Baukar:
Baukur Edithar kr. 176,91, Baukur á
vinnustað kr. 654,95, J. S. kr. 252,55.
Kristniboðssambandinu bárust eftir-
taldar gjafir í sept.:
Frá einstaklingum:
S. W. kr. 2.000,00, N. N. kr. 100,00,
Z. kr. 6.000,00, Gjöf úr dánarbúi K. D.
kr. 5.000,00, Á. Á. kr. 1.000,00, S. Þ. kr.
105,00, T. S. kr. 7.000,00, G. S. 150,00,
Þ. S. 100,00, A. D. 125,00, I. B. kr. 300,00,
K. E. 5.250,00, I. S. kr. 100,00, Á. G. kr.
100,00, R. M. kr. 1.000,00, S. G. kr.
1.000,00, J. V. kr. 1.000,00, O. I. kr.
400,00.
Fé'ög og samkomur:
Samkoma í Sævangi kr. 250,00, Sam-
koma á Drangsnesi kr. 636,00, Sam-
koma á Hólmavík kr. 715.00, Innk.
á samkomu kr. 367,00, Innk. á sam-
komu í Betaníu kr. 16.220,00.
Baukar:
Baukur í vörðu á Bitruhálsi kr.
228,45, Baukur i Laugarneskirkju kr.
613,88, Baukur Ásdísar kr. 154,75.
r-----------------------------n
Samliaiul íslenzkra
kristniboðsfélaga
Skrifstofa:
Amtmannsstíg 2B - Reykjavík
Simar 17536 og 13437
Pósthólf 651
Bréf og gjafir
til starfs sambandsins
sendist til skrifstofunnar
^J
BJARMI 11