Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.1967, Side 30

Bjarmi - 01.10.1967, Side 30
Aðalskrifstofan Leynilega kristinn 4% „kristinna manna“ í Japan. Ibúar Japans eru nú taldir vera 99 milljónir. Af þeim eru nú aðeins 0,8% taldir kristnir, þ. e. a. s. þeir eru skráðir í einhverja kirkjubók, jafnvel þótt mikill hluti þeirra komi ef til vill sjaldan til kirkju. Hvílíkur starfsakur! Það er ekki aðeins, að eitt og eitt ax hafi orðið eftir á þessum akri, heldur má segja, að akurinn sé allur óunninn. Uppskeran er rétt. aðeins byrjuð. Samt geta einkennilegir hiutir gerzt. I manntali hins opinbera skrá um 4% landsbúa sig kristna. Hvernig stendur á því? Tugir þúsunda hafa, ef svo má segja, streymt í gegn um kirkjur og biblíunámskeið og hafa síðan horfið aftur út um bakdyrnar. Það, sem sáð var, er nú ef til vill farið að skjóta frjóöngum. Þeir vilja að minnsta kosti ekki lengur teljast búddatrúar. Og þá skrá þeir sig kristna. Ég held, að eitthvað geti gerzt í hópi þess- ara manna í náinni framtíð. Hver vill biðja fyrir þeim? Vera má, að einhverjir þessara einstaklinga hafi snúið baki við kristindóminum vegna ofsóknanna á heimsstyrjaldarárunum. Samt hefur Kristur ekki sleppt taki á þeim. Og hætt þú ekki að biðja fyrir þeim. Einn þeirra heitir Ishiwarisan. Hann er aðstoðarforstjóri í sjónvarpsfélagi nokkru. Ég kynntist honum fyrir nokkrum ár- um, þegar hann vann að kvikmyndagerð. Hann var að segja frá Betelskipinu. Við gengum fram og aftur um þilfarið tunglskins- bjarta nótt, og hann sagði mér frá bernsku sinni. Faðir hans var prestur, og hann vildi sjálfur vera kristinn. En þetta var á heimsstyrjaldarárunum, og allir urðu að hneigja sig fyrir mynd keisarans. Hann var skóladrengur og tók sér stöðu allra aftast, til þess að enginn sæi, að hann hneigði sig ekki. Samt sem áður komst upp um hann, og hann var kærður. Próf var í nánd, og enginn, sem hafði ekki shintoaltari heima, gat náð prófi. Honum var tilkynnt þetta. Hann var vel gefinn drengur. Yfirkennarinn var góður og göfugur maður og langaði til að hjálpa unga gagnfræðaskólapiltinum. Dag nokkurn var hann kallaður inn á skrifstofu yfirkennarans. Yfirkennarinn rétti honum stóran böggul. 1 honum var shintoaltari. Með þessu móti gæti kennarinn með góðri samvizku látið drenginn ná prófi. „Þennan dag gekk ég grátandi heim til mín með heiðið altari undir handleggnum," sagði Ishiwarisan. Hugsaðu þér, hvílík bar- átta þetta hefur verið fyrir drenginn. „Þegar ég gekk framhjá stórri tjörn á leið minni, fleygði ég altarinu í tjörnina — og hætti í skólanum." Það varð eitthvað svo hljótt á þilfarinu. Það var komið mið- nætti, en tunglið lýsti. „Ég tel mig ennþá vera að nokkru leyti kristin mann, enda þótt ég viti, að það er ekki allt eins og það ætti að vera,“ lauk Ishiwarisan máli sínu. Ég veit ekki, hvort vér ættum að telja hann í hópi þeirra, sem bræðurnir hafa gleymt. (Þýtt úr bréfi norsks kristniboða, sem birtist í N.M.T.) Stjórnir Kristniboðssambandsins, K. F. U. M. og K., svo og nokkrir aðrir aðilar í kristilegu starfi, hafa orðið sammála um að sameinast um eina skrifstofu og afgreiðslu fyrir starf- semi sína. Enginn þessara aðila hefur raunverulega þörf fyrir að hafa opna skrifstofu með starfsliði allan daginn, en sameinaðir hafa þeir mikla og brýna þörf á slíku. Er það og öllum þessum aðilum til miklla hagsbóta, að slík skrfstofa sé starfandi, enda oft verið óþægilegt, þegar einstakling- ar hafa þurft að leita víðs vegar um bæinn til að fá afgreiðslu á erindum sínum við kristilegt starf. Auglýsing er birt á næst öftustu síðu þessa blaðs um skrifstofu þessa, og bendum vér kristniboðsvinum, kaupendum Bjarma og öðrum, sem þetta snertir, á að kynna sér auglýs- inguna og setja á sig simanúmer. LÚK. 10—40. Við/œtur Jesú ViS fœtur Jesú dvel eg dimmar nœtur, í dagsins önn, og fœ þar styrk og mátt. ViS fœtur Jesú huggast hver, sem grœtur. því hann vill gefa öllum frið og sátt. A8 fótum Jesú eg má œtiS flýja, þar á eg skjól i lífsins stormagný. ViS fœtur Jesú fœ eg krafta nýja og finn, hiS sjúka verður heilt á ný. ViS fœtur Jesú kraup eg hrœdd og kvíSin, og kœrleik hans í hjartaS streyma fann. ViS fœtur Jesú vil eg vera hlýSin, já, vinna allar stundir fyrir hann. V. Eina aðferðin til að eignast vin er að vera vinur. Emerson. Vel veiztu, hvernig þú átt að afsaka verk þín og varpa á þau Ijóma, en þú ert ófús að hlusta á afsakanir annarra. Réttara væri, að þú ásakaðir sjálfan þig og afsakaðir bróður þinn. — Tómas frá Kempis. Þeir, sein vilja ekki iáta skelf- ast af orði Guðs, munu aldrei hljóta huggun af orði Guðs. Grundtvig. :«« BJAKMI

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.