Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1981, Síða 9

Bjarmi - 01.07.1981, Síða 9
* starftf eT tVir6vrVV-a ve^ur pa*" “*#»*'■ w£“og fvr'"'’”" p“* *k'’„ »8 b®>» ^,,Vi i «"""fr 0S ,r» *V’ “ ll5,lr»6»'"'f, *rii»' ■ l,»i» 8’”fraoi»«W>'” \,®e^ og V Margir bíða eftir fagnaðarerindinu Möguleikarnir eru fyrir hendi, íá, það eru svo margir staðir sem bíða eftir að við komum til þeirra rneð fagnaðarerindið, en við bara komumst ekki yfir það meðan allt hvilir á herðum okkar kristniboð- anna. Við höfum ekki samstarfs- menn sem geta unnið sjálfstætt. Starfsmennirnir þurfa á mikilli umönnun og fræðslu að halda. Ætlun okkar er að byggja upp sjálfstæða kirkju og þess vegna þurfum við að nota tíma í að upp- byggja þá sem geta borið starfið. Þegar frá líður munum við sjá Hún heíur skreytt sig vel, afriska stúlkan. Munum eftir vinum okkar á kristniboSsökrunum. ávexti þessarar starfsaðferðar. Við viljum læra af Jesú sem hjálpaði litlum hóp, sem síðan varð kjarn- inn, sem bar út fagnaðarerindið. Lagður grundvöllur Það er bara á stöðinni að við höf- um skipulagðan söfnuð. Hann er nú tvískiptur. Annar hlutinn kem- ur saman á stöðinni hvern sunnu- dag, hinn hlutinn, sem er minni, kemur saman undir tré, á stað sem heitir Mongóríon. Einu sinni í mánuði kemur svo allur söfnuð- urinn saman á stöðinni og þá er heilög kvöldmáltíð. Þótt söfnuður- inn sé veruleiki, þá er hann að engu leyti sjálfstæður enn. Mörgum spurningum er enn ósvarað og mörg- um verður að svara oft. Lífið með Kristi verður að móta daglegt líf og tvinnast daglegum gjörðum og hugsanagangi. Kristið líferni gríp- ur inn í svo margt og er svo gjör- ólíkt hinum heiðna hugsanagangi. Hver einstaklingur þarf á hjálp að halda. Guð er að verki hér. Hann byggir sinn söfnuð og fólkið er opið. Við erum að leggja grundvöll og það er bæn okkar að Guði gefi okkur náð og vizku til að leggja grundvöll sem getur staðið undir byggingunni. í Chepkópegh er líka að mynd- ast söfnuður. Þar eru um 20 manns sem sækja trúfastlega skírnar- námskeiðið, flestir eru ungar kon- ur. Auk þeirra koma margir aðrir en ekki af jafnmikilli trúfesti. Það eru rúmlega 40 innritaðir á nám- skeiðið. Við ráðgerum skírn þar fljótlega. í Chepkapúchei höfum við haft starf síðan um áramót. Aðsókn þar hefur verið misjöfn. Fólk þaðan bað okkur um að koma og hefja starf, en það er margt, sem upp- tekur hugann, svo að stundum gleymir fólkið að koma. Að sjálf- sögðu veldur það vonbrigðum þeg- ar maður er búinn að pína sig upp bratta f jallshlíðina í brennandi sól og hita og kemur upp á fjalls- brúnina dauðuppgefinn ,og sér að enginn er mættur. Gleðin er líka mikil þegar hljómurinn af söng berst til manns þegar fjallgöng- unni lýkur. Auk þessara staða höfum við haft kvennastarf á stað sem heitir Kókó Kalía. Þar koma konurnar saman og læra að sauma og syngja og fá fræðslu í Guðs orði. Þótt þetta eigi að vera kvennafundir þá hafa karlmenn einnig komið á fundina og vilja vera með. Það eru margir fleiri staðir sem við hefðum viljað heimsækja og boða fólkinu þar fagnaðarerindið. Sums staðar biður fólkið okkur um að koma. Annars staðar sjáum við sjálf möguleika til að starfa. Það er Guð sem hefur kallað og óróað hjcrtu okkar. Það eru svo margir sem ekki þekkja Jesúm. Héraðið er víðáttumikið og þar búa rúm- lega 30 þúsund manns. Nú þegar við verðum tvær f jölskyldur í Che- parería, ættum við að ná lengra. Fyrir utan starfið í Cheparería hvílir nú ailt starfið í Kongóglai (Kara-Pókot) á okkar herðum. Það er langt frá Cheparería og vonum við að í framtíðinni verði hægt að starfa þar frá nýrri kristniboðs- stöð, annað hvort í Kapengúría eða einhvers staðar í Kara-Pókot. — Kara-Pókot er ef til vill það svæði í Pókot sem er opnast fyrir fagn- aðarerindinu. „Sjúkur var ég, og þér vitjuðuð mín“ Það eru nú uppi straumar sem halda því fram að kristniboðið eigi aðeins að einbeita sér að boðunar- starfinu. Starf, sem miði að því að hjálpa fólki líkamlega, sé á annarra ábyrgð og margir aðrir geti annast það. Það getur verið rétt, en sem lærisveinar Jesú Krists getum við ekki skilið milli líkamlegrar og andlegrar neyðar. Kærleiki Krists, sem býr í okkur, leyfir það ekki. Auk þess er bæði líkamleg og and- leg neyð svo bundin hvort öðru í Framh. á bls. 16. 9

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.