Bjarmi - 01.09.1996, Qupperneq 8
í BRENNIDEPLI
Kirkjrn er að mínum matí alltof
mikil stofnun. Hún þarfheldur að láta sig
meiru varða þá sem eru í nauð og óska
hjálpar. Einnig þarfhún að vera mikíu virkari
i málefnum líðandi stundar.
Ég vildi líka ná sambandi við fleira fólk, t.d. frá
Vietnam en tungumálaörðugleikar hömluðu því. Ég talaði
ekki nógu góða íslensku og fæstir þeirra töluðu ensku. Nú
hef ég hins vegar náð betri tökum á íslenskunni og hlakka
til að takast á við verkefnið.
Ekki allsfyrir löngu komfram í fréttum aó einhverjir tóku
sig til og máluðu tákn sem tengja má kynþáttafordómum á
Háteigskirkju, þar sem þú vannst. Hver voru viðbrögð þín við
þessu?
Þetta virtist nú því miður vera nokkuð skipulega gert.
Slagorð nasista voru máluð ofarlega á vegg kirkjunnar
þannig að stiga hefur þurft til. Ef til vill var þetta ekki
alvarlegt en einhver vildi í það minnsta láta sem hann
væri fullur kynþáttafordóma. Við urðum ekki fyrir neinu
slíku aðkasti í Háteigskirkju, hvorki fyrr né síðar.
Kirkjan þarf að hleypa
heimdraganum
Að lokum, hvaðfinnst þér að kirkjan ætti að gera íframtíðinni
í þessum málum og hverniggeta meðlimir hennar brugðist við?
Þetta er stór spurning. Almennt séð ættum við að spyrja
okkur hvað felst í kristinni trú. Svarið er að trúa á Jesú
Krist og hlýða honum. Auðvitað reynist okkur mjög erfitt
að hlýða honum og við bregðumst. Köllun kirkjunnar er
hins vegar ekki að byggja falleg hús eða að sóknar-
presturinn einblíni á að vera 1 öndvegi og hafa stór-
kostlegar messur. Kirkjan er að mínum mati alltof mikil
stofnun. Hún þarf heldur að láta sig meiru varða þá sem
eru í nauð og óska hjálpar. Einnig þarf hún að vera miklu
virkari í málefnum líðandi stundar. Ég vil nefna sér-
staklega tvö málefni nú. Annað hef ég að vísu þegar
minnst á, flóttamennina. Hitt er málefni samkynhneigðra.
Nú voru nýlega samþykkt lög á Alþingi um staðfesta
samvist samkynhneigðra. Hvað sagði kirkjan um það mál?
Biskup gaf að visu út yfirlýsingu eftir að lögin höfðu verið
samþykkt. Fyrir þann tíma heyrði ég fulltrúa kirkjunnar
segja að kirkjan gæfi ekki út yfirlýsingu um málið fyrr en
það hefði farið í gegnum Alþingi! Þetta er ekki rétt að
minu mati. Kirkjan ber ábyrgð á að reyna leiða þjóðfélagið
í rétta átt. -Ég er ekki að segja að þessi að lög hafi verið
röng en vil leggja áherslu á að mér finnst að kirkjan eigi
að vera stefnumótandi varðandi það sem máli skiptir í
þjóðfélaginu. Fólk þekkir ekki réttu lausninar og þarf að
fá leiðbeiningar frá kirkjunni í samræmi við kenningar
Jesú Krists. Þetta á líka við fleiri málefni, t.d. kjamorku-
mál, liffæragjafir og ígræðslur og einnig þátt tækninnar i
því að kveikja nýtt líf. Umræðan þarf að vera uppi, en
kirkjan hefur því miður verið fjarri og hugsað of mikið
um að halda í hefðimar. Starf á meðal útlendinga er eitt
þeirra mála þar sem kirkjan þarf að hleypa heimdraganum
og þora að fara út á meðal fólksins.
Varðandi hvað meðlimir kirkjunnar geta gert þá á fólk
einfaldlega að samþykkja útlendinga inn í hið daglega líf.
Það er hlutverk kristins manns að bjóða útlendinga vel-
komna og kynna þeim hvað við eigum í Jesú Kristi,
jafnvel þó að hinn útlendi sé ekki kristinn maður. Hinn
kristni á að sýna kærleika að fyrra bragði og útlendingur-
inn finni þannig hlýtt viðmót.
Við létum nú spjallinu lokið. Sólin skein enn í heiði.
Hún hefur aldrei gert mannamun. Eftir notalegt morgun-
kaffi á heimili presthjónanna á Bárugðtunni, hefur
tiðindamaður Bjarma fengið ábendingu um að i þeim
efnum getur hann tekið sér sólina til fyrirmyndar.
Gurmar Þór Pétursson