Bjarmi - 01.09.1996, Side 21
MENNING & LISTIR
Réttar forsendur,
rétt svör
Oft hafa kristnir menn verið feimnir
við listina vegna þess hversu mikið
hún er afkristnuð. Um leið hafa þeir
framselt hana til afkristnunar. Þegar
kristnir menn hafa valið þann kost-
inn að draga sig út úr heiminum hafa
afleiðingarnar yfirleitt verið slæmar
og um leið hafa þeir brugðist hlut-
verki sínu. Par sem þessi afstaða er
óbibliuleg og á sér rætur i klassískri
heimspeki Grikkja, en ekki í ritning-
unni. Jesús segir að kristnir menn séu
„salt jarðar“ og spyr í framhaldi: „Ef
saltið dofnar, með hverju á að selta
það?“ (Matt. 5:13).
Sem „saltandi salt“ eiga kristnir
menn að reyna að bragðbæta
menningu síns tíma og vernda hana
gegn niðurrifi eyðileggingarinnar.
Menning verður fyrst andkristin ef
röngum guði er þjónað.
Rookmaaker bendir á að það sé
einfaldlega rangt að líta á kristindóm
og listir sem tvo mismunandi hluti
sem eiga ekkert sameiginlegt hvor
með öðrum. Þegar öllu er á botninn
hvolft er þetta ekki spurning um
kristindóm og listir heldur hjáguða-
dýrkun heimsins og hlýðni við lög-
mál Guðs. Réttara er að spyrja um
stöðu kristninnar innan sköpunar
Guðs heldur en samhengi kristin-
dóms og lista.
Vandamál listanna leysist eingöngu
í Jesú Kristi, ekki í flótta frá heimin-
um. Eina uppgjöf okkar er fyrir Guði og hún er án
nokkurs hiks.
Frans frá Assisí afsalar sér veraldlegum eigum sínum. 1990. Kathy Frugé-Brown.
Lokaorð
Hugmyndir Rookmaakers minna okkur á að það getur
verið skylda kristins manns að láta sig list og menningu
varða á réttum forsendum. Það alvarlega er að ef kristnir
menn grafa talentur sínar i jörð (Matt. 25:14-30) þá verður
„saltið troðið undir fótum'1.
Lúther þurfti að taka afstöðu til þessara mála og eru orð
hans góð niðurstaða stuttrar greinar um stórt málefni.
Lúther sagði:
„Ég vil sjá allar tegundir lista, í þjónustu hans, sem
hefur skapað þær og gefið oss.“
HEM
Heimildir:
• Kidner, D. 1959. The Christian and the Arts.
London
• Rookmaaker, H. R. 1981. The Creative Gift.
Leicester
• Rookmaaker, H.R. 1973 (2. útg). Modern Art and
the Death of Culture. London
• Rookmaaker, H.R. 1978. Art needs no Justification.
London
• Ryken, L. 1979. The Triumphs of the Imagination.
Illinois.
21