Bjarmi - 01.09.1996, Síða 24
INNLIT
Kjartan Jónsson
Athyqlisvert kirkjustarf
í Vestmannaeyjum
Viðtal við hjónin sr. Bjarna Karlsson
og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur
Poppmessur í Landakirkju vöktu mikla athygli síðast liðinn vetur, enda
var kirkjan troðfull í hvert sinn sem þær voru haldnar. Hljómsveitin sem
sá um tónlistina, Prelátar, fór nokkrar ferðir upp á land til að gefa fleir-
um hlutdeild í þessum lið safnaðarstarfs Eyjamanna, enda vildu margir læra af
þeim. Fréttir af þessu komu í sjónvarpinu. Það vakti athygli mína í vor er
sjónvarpið sýndi myndir frá barnastarfi Landakirkju, svo kallaðra Kirkju-
prakkara, að þar var m.a. lyftingakappi með lóðin sín og kenndi krökkunum
listir sínar.
Umsjónarmenn þessa starfs eru ung hjón, sem bæði eru
prestar, sr. Bjami Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Þau komu til starfa í Vestmannaeyjum haustið 1991.
Poppmessur
Hvers vegna velja menn svona messujorm?
„Tilgangurinn er að finna leið til að víkka dyrnar og
lækka þröskuldinn á kirkjunni, til að auðvelda aðgengi sem
flestra að helgihaldi og tilbeiðslu. Þetta eru mannaveiðar,
boðun fagnaðarerindisins. Poppið er einfaldlega tónlistar-
stefna, sem hefur festst í sessi og nýtur vinsælda. Við erum
heppin að hafa tónlistarmenn hér í bænum, sem eru fúsir
til að gefa kirkjunni af kröftum sínum. Þetta hefur gengið
í 3 ár samfleytt einu sinni í mánuði og hefur tekist vel.
Kirkjan er jafnan þéttsetin af fólki 1 þessum messum. Fólk
Sumir voru auðvitað óhressir með þetta i
uppha.fi og töldu þaðjafnvel guðlast að vera
með svona hávaðatónlist í kirkjunni. En
þessar raádir eru nú alveg þagnaðar.
á öllum aldri, sem annars kemur ekki í kirkju, mætir
þarna. Mest áberandi er fólk á miðjum aldri, um fimmtugt
og þaðan af eldra, en einnig margt yngra fólk og ungir
foreldrar með börn í burðarrúmi. Stór hluti þessa fólks
kæmi ekki í kirkjuna í venjulega messu.”
Hvernig hejurfólk tekið þessu?
„Það er mjög glatt. Sumir voru auðvitað óhressir með
þetta í upphafi og töldu það jafnvel guðlast að vera með
svona hávaðatónlist í kirkjunni. En þessar raddir eru nú
alveg þagnaðar. Poppmessan kemur ekki í staðinn fyrir
aðalguðsþjónustuna á sunnudögum. Hún er eins og kaffi
og konfekt á eftir sunnudagslærinu, guðsþjónustunni,
sem borðað er kl. 14 á sunnudögum. Það breytist ekki.
Guðsþjónustan er fast fæði, en poppmessan er eins og
mjólkin. Boðunin 1 poppmessunni er svo einföld að hvert
12 ára barn skilur það, sem þar er sagt. En markmið
okkar er að allir þræðir liggi inn i sunnudagsguðs-
þjónustuna.
Fyrir utan létta tónlist, þá reynum við að gera popp-
messumar skemmtilegar. Prédikunin er oft í samtalsformi
á milli okkar prestanna. Þannig finnst okkur við halda
betur athygli ólíkra aldurshópa. Einnig höfum við fengið
safnaðarfólk til að vitna um trú sína. Við fylgjum liðum
hinnar hefðbundnu guðsþjónustu þó að það sé dulið flest-
um, vegna þess að þeir em óformlegir og renna saman í
eina heild. Fólk er leitt í gegnum messuna með því að næsti
liður er kynntur. Mikið er sungið af kórum. Sumir sálmar
hafa verið útsettir upp á nýtt og þekktir sálmar eins og t.d.
Ó, þá náð að eigajesú, eru sungnir.
Mjög margir koma að þessum messum, við prestarnir,
hljómsveitarmeðlimir, unglingar, fólk sem tekur á móti
kirkjugestum formlega og réttir þeim bækur, fólk sem
24