Bjarmi - 01.05.2000, Blaðsíða 3
Kve n n agu ðfiræó i
Svonefnd kvennaguðfræði hefur verið stund-
uð síðasta ijórðung tuttugustu aldarinnar í
kjölfar kvennabyltingarinnar sem hófst upp úr
1 970. Hún hefur oft vakið snörp viðbrögð og
deilur en einnig athygli á því
að kirkjan hefur í aldanna rás
iðulega verið kirkja karla-
veldis. Bent hefur verið á að
Jesús Kristur fór ekki í mann-
greinarálit og kom á jafningjasamfélagi þar
sem bæði karlar og konur fengu að njóta sín
en það hafi síöan breyst þegar skipulag fór að
komast á kirkjuna og karlaveldisáhrf sam-
félagsins urðu ofan á. Einnig hefur verið bent
á að málfarið sem kirkjan notar miðist meira
og minna við karla og lögð á það
áhersla að málfar sé mótandi og hafi
sem slíkt m.a. áhrif á sjálfsmynd fólks
og lífsskilning. Á þessum grundvelli
hefur kvennaguðfræðin verið mjög
gagnrýnin á stöðu og hlut kvenna í
kirkjunni og í guðfræðinni og einnig á
það málfar sem birtist í ritningunni og
helgisiðum kirkjunnar. Þetta hefur
eðlilega kallaó á viðbrögð og deilur og
fólk jafnvel skipst í flokka með og á
móti kvennaguðfræði. Það gengur hins
vegar tæpast upp að afgreiða það sem kallað
er kvennaguðfræði á einu bretti þar sem
innan hennar eru ólíkir straumar og margt af
því sem þar hefur komið fram er bæði gott og
jákvætt og í samræmi við fagnaðarerindið.
Það þarf hins vegar ekki að þýða að allt sem
sagt er og sett fram í nafni kvennaguðfræði sé
gott og gilt og Ijóst að róttækir straumar
innan hennar fara á skjön við trúmennskuna
við orð Guðs í ýmsu tilliti. Það er hins vegar
ekkert einsdæmi með kvennaguðfræði. Ymsar
aðrar guðfræðistefnur hafa flutt með sér
sjónarmið sem fela miklu fremur í sér uppgjör
við orð Guðs heldur en trúmennsku. Þess
vegna er mikilvægt skoða alla guðfræði gagn-
rýnum augum og leggja mat á hana í Ijósi
fagnaðarerindisins um Jesú Krist og af trú-
ttiennsku við heilaga ritningu.
*o
’>
*o
2
2
15
4Kvennaguófrœði hefur birst íýmsum
myrtdum og vakið umtal. Kjartan Jónsson
rceðir við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur, lektor
við guðfrcsðideild Há-
skóla Islands, um mdlið,
meðal annars ólíka
strauma ogstefnur inn-
an hennar.
Marita forvarnar- og
LAJ hjálparstarf Gyða
Karlsdóttir kynnti sér Marita og
rceddi við Jón Indriða Þórhallson
og Önnu Þorsteinsdóttur um for-
varnar- og hjálparstarf vegna
fikniefnaneyslu. Jón var sjálfur
djúpt sokkinn fikniefnaneytandi
og lýsir þvíhvernig hann bjargað-
ist úr helgreipum fikniefnanna.
8Vísanir til Krists í kvikmyndum
GunnarJ. Gunnarsson fjallar um hvernig vís-
anir tilJesú Krists birtast í nokkrum kvikmyndum.
íþessum fyrri hluta umfjöllunarinnar eru teknar
til skoðunar myndirnar Gaukshreiðrið, Dead
Poets Society, Spartacus og Braveheart.
■J O Um Kristí
I Ct krossfesting
Hvers konar dauðdagi
er krossdauði? Erftt er að gera sér í hugarlund
hvílík þjáning fýtgir krossdauða. Ragnar Schram
fjallar um þjáningu og krossfestingu Jesú Krists
út frá lceknisfrcsðilegum sjónarhóli.
f} Frá London til Keflavíkur
J.VJ Hvað er þetta Alfa sem allir eru að
tala um? Henning E. Magnússon leit inn á
Alfa—námskeið í Keflavík ogrceddi við um-
sjónarmenn og einn þátttakenda.
O/J Lifandi vottur og baráttu-
L/± maður Ragnar Gunnarsson
rceðir við Ebenezer Maly, lifandi vott
og baráttumann, sem hefur predikað
í kirkjunni í Pókot og kennt á nám-
skeiðum. Meðal annars er komið inn
á köllun ogstörf Ebenezers, muninn
á Evrópubúum ogAfríkubúum og
helstu vandamál kirknanna ÍAfriku.
QP Kyrrðarstundir með
uU Guði Curtis P. Snook gef-
ur hagnýt ráð fýrir kyrrðarstundir
með Guði og lestur Biblíunnar.
Auk þess Kristileg tónlist,
vefsíður, efiirlcetis ritningar-
staðurinn o.fi.
Útgefendur: Landssamband KFUM og KFUK og
Samband íslenskra kristniboðsfélaga. Ritstjóri:
Gunnar J. Gunnarsson. Ritnefnd: Henning Emil
Magnússon, Kjartan Jónsson og Ragnar ■ Tímarit um kristna trú
Schram. Afgreiðsla: Aðalskrifstofan, Holtavegi w 94. árg. z. tbi. maí 2000
28, pósthólf 4060,124 Reykjavík, sími 588 8899, fax 588 8840, vefslóðir www.kfum.is og slk.is.
Árgjald: 2.800 kr. innanlands, 3.300 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. mars. Verð í lausasölu 590 kr.
Umbrot og útlit: Argus. Ljósmyndir: Kristján Einar Einarsson o.fl. Prentun: Prentmet.
Ragnar Schram Gyða Ragnar Hrönn Kjartan Henning E.
Karlsdóttir Gunnarsson Svansdóttir Jónsson Magnússon