Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.2000, Side 8

Bjarmi - 01.05.2000, Side 8
Vísanir til Krísts Fyrrí hluti GunnarJ. Gunnarsson Sem dœmi um vísun til Krísts í kvikmyndum mcetti hugsa sér per- sónu í kvikmynd sem safnar um sig hópi fýlgjenda eða „lceri- sveina“ og er svo fórn- að af andstceðingum eða valdhöfum sem hann ógnar, en með þeim afleiðingum að frelsun eða lausn und- an ánauð eða kúgun verður að veruleika. Margar kvikmyndir hafa verið gerðar um líf og starfjesú Krists. Þá er frásögn guðspjallanna í Nýja testament- inu fylgt og leitast við að draga upp mynd af lífi og starfi Jesú. Þessar myndir eru auðvitaó misgóóar eins og gengur en eiga það sameiginlegt að leitast við að sýna þá mynd afjesú Kristi sem við blasir í guðspjöllunum. Hér má nefna sem dæmi kvikmyndir á borð við King of Kings frá 1961, The Greatest Story EverTold frá árinu 1965 og sjónvarpsmyndaröðina Jesus of Nazareth frá 1977. I öðrum tilvik- um hafa verið gerðar kvikmyndir þar sem leitast er við að túlka hver Jesús Kristur var. Þar eru þekktustu dæmin kvikmynd- irnarjesus Christ Superstar frá árinu 1973 og The Last Temtation ofChrist frá 1989 sem hvor um sig draga upp tiltekna mynd af Jesú þar sem hin mannlega hlið er f brennidepli. Einnig má nefna myndina Jesus of Montreal frá 1989 þar sem sett er fram athyglisverð hlióstæða milli frásagna guðspjallanna afjesú Kristi og sögu aðal- leikara í helgileik um líf hans. Hér er ekki ætlunin að fjalla um þessar myndir heldur beina athyglinni að því hvernig „Krists- myndin“ birtist af og til í kvikmyndum með ýmsu móti, ekki þannig aó frásögn guðspjallanna sé rakin heldur með vísun til hennar. Þá er um það aó ræða að saga og örlög einhverrar persónu kvikmyndar- innar felur í sér vísun til Jesú Krists Nýja testamentisins sem fórnar sér til frelsunar eóa lausnar fyrir mennina. Þetta getur ver- ió mismunandi augljóst eða skýrt en hefur þó í öllum tilfellum til að bera einhverja þá meginþætti sem blasa við í mynd guð- spjallanna af Kristi. Kvikmyndir þar sem þetta kemur fýrir eru margar og af ýmsum toga. I þessu tölublaði Bjarma og því næsta verða tek- in fáein dæmi um slíkar myndir og leitt í Ijós hvernig þær vísa til Jesú Krists. Auó- vitað má velta því fyrir sér hvaða tilgangi það þjónar að beina athyglinni að þessu. í því sambandi má nefna tvennt. Annars vegar eru slíkar kvikmyndir dæmi um það hvernig kristin trú og hugsun hefur sett mark sitt á vestræna menningu og listir. Oft er talað um þaó hvernig bókmenntir, myndlist og tónlist hafa sótt efnivió í Biblíuna og kristna trú. Hið sama gildir um kvikmyndir. í þeim má iðulega finna vísanir til Biblíunnar og kristinnar trúar. Hins vegar gefa kvikmyndir þar sem slík- ar vísanir finnast gott tækifæri til að hug- leióa frá nýju sjónarhorni þann boðskap sem þær vísa til. Hjálpræðisverk Krists getur þannig lokist upp fyrir okkur á nýj- an hátt eða öólast nýja skírskotun eða vídd í huga okkar. Fórnaó af yfirvöldum fyrir hópinn Sem dæmi um vísun til Krists í kvikmynd- um mætti hugsa sér persónu í kvikmynd sem safnar um sig hópi fylgjenda eða „lærisveina" og er svo fórnað af and- stæðingum eða valdhöfum sem hann 8

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.