Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.2000, Síða 9

Bjarmi - 01.05.2000, Síða 9
ógnar, en með þeim afleióingum aó frelsun eóa lausn undan ánauð eóa kúg- un veróur að veruleika. I þessu sambandi má nefna tvær þekktar kvikmyndir, þ.e. Gaukshreiðrið eða One Flew Over the Cuckoo's Nest frá árinu 1975 og Dead Poets Society frá 1989. Báðar þessar myndir draga upp mynd af ánauóugu samfélagi, annars vegar á geðsjúkrahúsi og hins vegar í skóla. Inn í þessi samfé- lög koma nýir einstaklingar, sjúklingur og kennari, sem fljótlega safna um sig hópi „lærisveina“ sem þeir hafa mikil áhrif á en eru um leið farnir að ógna um- hverfi sínu og þeim sem þar ráða. Við- brögðin eru þau aó fórna þessum ein- staklingum til aó vióhalda stöðugleikan- um og um leið kúguninni. Afleióingarnar verða hins vegar þveröfugar og leióa til lausnar úr ánauð. Finna má margar hlið- stæður í þessum myndum við atvik og atriði úr guðspjöllunum. Gaukshreiórið Gauksheiðrið segir frá því að Randall McMurphy, sem Jack Nicholsson leikur, er sendur úr ríkisfangelsi á geósjúkrahús til geórannsóknar. Um er að ræða stofnf- un sem gengur af gömlum vana og beitir aðferðum í samræmi við það. Flestir sjúklinganna eru þar sjálfviljugir og virð- ast sætta sig við frelsisskerðingu og frem- ur tilbreytingarlausa tilveru. Fljótlega er McMurphy farin aó ógna stöðugleika stofnunarinnar. Hann krefst þess meðal annars að fá að vita hvaða læknismeð- ferð hefur verið ákveðin fyrir hann og reynir að brjóta upp dauflega tilveru sjúklinganna með því aó kenna þeim körfubolta o.fl. og fá þá til aó krefjast þess að skipulagi á stofnuninni verði breytt þannig að þeir geti horft saman á vinsælan þátt í sjónvarpi. Loks sýóur upp úr þegar McMurphy tekur bíl stofnunar- innar traustataki til aó fara með læri- sveina sína í veiðiferó. Æðstaráð sjúkra- hússins kemur saman og kemst að þeirri niðurstöðu að McMurphy sé hættulegur og ræðir hvað skuli gera við hann. í for- ystu er yfirhjúkrunarkonan Ratched (sem Louise Fletcher leikur) og hún telur þaó vera uppgjöf að senda McMurphy eitt- hvaó annaó og telur að stofnunin geti breytt honum. Næsti hópfundur með sjúklingunum einkennist af ögrun sem leiðir til þess aó þeir taka aó efast um aðferðir sjúkra- hússins. Uppreisn fylgir í kjölfarió sem verður til þess að góður vinur McMurp- hys, kallaður höfóinginn („Chief' — sem leikinn er af Will Samson) ræðst á einn varðanna. Uppreisnarseggirnir fá raf- lostsmeðferð og eftir það fer McMurphy að reyna að telja vistmenn á stofnuninni á að yfirgefa hana. Það er án árangurs því þeir treysta sér ekki til að spjara sig utan hennar. McMurphy finnur leið til aó flýja stofnunina. Hann býóur tveimur vinkon- um sínum í heimsókn á aðfangadags- kvöld og lokkar næturvörðinn til að leyfa svolítinn gleóskap. Aður en hann fer á braut krefst hann þess að Billy, einn úr hópi lærisveina hans, eyói nóttinni með annarri kvennanna. Til allrar óhamingju sofna allir og Ratched hjúkrunarkona kemur aó öllum morguninn eftir og sér strax hvað gerst hefur. Andartak viróist Billy hafa losnað úr fjötrum kúgunar og sjálfsfýrirlitningar en það stendur aðeins skamma stund. Hann sakar síðan 9

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.