Bjarmi - 01.05.2000, Blaðsíða 19
sér inn í guðsþjónusturnar á sunnudög-
um en þaó er ýmislegt annað að gerast.
Það eru alltaf bænastundir í hádeginu á
miðvikudögum þar sem fólk af Alfa
hjálpar til. Síðan má ekki gleyma því að
fólk sem er búið aó koma nokkrum sinn-
um á námskeiðin er sjálft farið að að-
stoða við þau með ýmsum hætti.“
Af hverju kemur fólk aftur á sama námskeið-
ið?
Þeir eru sammála um aó þar hafi vinátt-
an og samfélagið úrslitaáhrif.
Alfa-námskeiðin hefjast á sameigin-
legri máltíð allra þátttakenda og leið-
toga. Eftir matinn er söngstund og síðan
fýrirlestur kvöldsins. Eftir fýrirlesturinn er
skipt í umræðuhópa og að lokum flykkj-
ast allir út í kirkjuna á helgi- og bæna-
stund. Þetta er fjölbreytt dagskrá sem
stendur yfir í um það bil þrjár klukku-
stundir.
Þegar Alfa var fýrst kynnt á Islandi var
það orðaó og sett upp á þennan hátt:
Allir sem vilja kynna sér betur um
hvaó kristin trú snýst eru hvatt-
ir til að koma á Alfa-námskeió.
ífið er ánægjulegt þegar vió get-
um lært meó öórum og átt
samfélag saman.
yrirspurnum er tekió meó gleói
og sérstakur tími fýrir spurn-
ingar og svör.
Idur skiptir ekki máli. Alfa-
námskeió eru fýrir alla.
standa sig vel. Þau eru alveg meiriháttar.
Þau halda vel utan um allt og eru alveg
einstök. Fræóslan er góð og skilar sér
vel, leiðtogarnir gefa af sjálfum sér og
halda athyglinni allan tímann. Mér
finnst söngstundin standa upp úr, þá
eru sungnir innihaldsríkir lofgjörðar-
söngvar og maður er í bænarhug þegar
sungió er.
Hvað er merkilegt við Alfa?
Námskeiðin eru fýrst og fremst innihald
en ekki umgjörð. Það er svo notalegt.
Síðan hef ég lært svo margt varðandi
bænina. Eg hef lært að nota hana. Mér
finnst ég komast í gegnum svo margt
með hjálp bænarinnar, með því aó
treysta Guði fýrir því sem ég hef áhyggjur
af. Mér finnst ég ekki þurfa að bera allar
áhyggjunnar sjálf. Ég fel Guði það sem
ég hef áhyggjur af og losna við kvíóa og
ótta. Ég finn að Guð er til staðar.
Hvað hafa öll pessi námskeið gefið pe'r?
Mér dettur f hug söngurinn „Eitthvað
stórkostlegt" þegar ég á að lýsa því.
Hann segir í raun nákvæmlega hvað hef-
ur gerst. Það var eitthvaó sem hvarf, ein-
hver biturleiki, og það kom eitthvað allt
annað í staðinn, einhvers konar friður og
vellíóan. Þaó er náttúrulega verk trúar-
innar. Ég finn fyrir öryggi og mikilli
breytingu. Mér finnst ég vera önnur
manneskja með aðrar áherslur. Lífió er
innihaldsríkara. Mér finnst líka aórir á
námskeiðinu vera að upplifa það sama.
Teljið þið að formið skipti máli?
Sigfús er sannfærður um það og
finnst samfélagið mjög náið í mál-
tíóinni og umhverfið er laust við
alla ögrun. Hann telur einnig við-
mótið skipta miku máli.
Ragnar samsinnir þessu: „Fræðsl-
an fer fram á mannamáli og er ein-
læg. Hindranir eru engar eða fjar-
lægð. Sá sem kennir á svona nám-
skeiði opnar sjálfan sig og gefur af
sér. Þaó er kostnaóurinn.“
Hefur fólk komist til trúar hér f Kirkju-
lundi?
„Það hefur mikið af fólki frelsast og
hlotió andlega eða líkamlega lækn-
ingu. Guó er að veita innri lækn-
ingu. Gömul sár eru aó gróa og
það er verið að gera hlutina upp.
Guð hefur veitt fólki gleði, fögnuð
og frið. Það hefur margt gerst innra
með fólki og margir sem hafa lengi
unnið í kirkjunnl eru að átta sig á
því í fyrsta sinn um hvað þetta
snýst allt saman. Þetta er vitnis-
burður margra."
Ef kirkjuklukkan í Keflavík léti í
sér heyra líkt og sumar stallsystur
hennar víóa um heim myndi hún
slá tólf slög. Þaó er miðnætti og
virkur vinnudagur daginn eftir.
Lengra fórum við ekki í þetta skipt-
ið. Tíðindamaóur Bjarma á Suóur-
nesjum gengur út í friðsæla nóttina,
þakklátur fýrir lífió í Kirkjulundi.
19