Bjarmi - 01.06.2001, Page 7
dæmi. Aó mínu mati er þekking sem slík
af hinu góða. Þaó er hins vegar hægt að
snúa öllu á hvolf. Tökum bílslysin sem
dæmi. Þau valda gífurlegum hörmung-
um fýrir þá sem í þeim lenda en engum
dettur í hug að hætta að keyra. Ég held
að árangur okkar vinnu hjá Islenskri
erfðagreiningu muni í byrjun nýtast í fyr-
irbyggjandi læknisfræði. Við erum mis-
jöfn. Sumir mega ekki setja upp í sig
sykurmola án þess aó fitna en aðrir eru
grannir sama hvað þeir borða. Margt
fólk reykir allt lífið en hleypur samt um
allt og fer allar brekkur. Til að byrja með
verða upplýsingarnar notaðartil að ráð-
leggja fólki varðandi lífsstíl. Mér er Ijóst
að málið er ekki svona einfalt en stað-
reyndirnar verða Ijósar fyrr eða síóar.
Helgi: — Svonefndir fjölgena sjúkdóm-
ar eru erfiðari að þessu leyti en eingena
sjúkdómar. Það er erfiðara aó finna
meöferð við þeim. Ég er sammála því að
þessar upplýsingar verði notaðar til for-
varna til að byrja með.
Á alltaf aö afla þeirrar þekkingar sem hcegt er
eða þarf aö skoða til hvers hún gceti leitt?
Kœmi til greina að hœtta við rannsókn vegna
þeirra afleiðinga sem niðurstöður hennar gœtu
haft?
Helgi: — Það er ekki öll þekking jafn-
gagnleg. Mín skoðun er sú að það sé
rangt aó afla þekkingar ef það er gert
með ósiðlegum hætti, til dæmis rann-
sóknum á fóstrum.
Leifur: — Ég held að það sé eins með
alla þekkingu. Glasafrjóvganir eru stór-
kostleg hjálp fyrir ákveðinn hóp fólks en
svo er rautt strik sem ekki má fara yfir.
Kjarnorkuváin er viðbjóður, en orkan
sem slík er góó til síns brúks. Ég á erfitt
með að sjá að þekkingin sem slík sé var-
hugaverð.
Helgi: — Ef það þarfað gera eitthvaó
sem er siðferðilega rangt til að afla
þekkingar, þá vil ég ekki taka þátt í því.
Ef aðferðin vió að afla þekkingar er ekki
röng í sjálfri sér en óvandaðir menn geta
misnotað þekkinguna, þá þyrfti að taka
afstöóu í hverju máli fyrir sig.
Leifur: — Ef beitt er ósiðlegri aðferó til
að afla þekkingar lít ég svo á að verið sé
aó misnota þá þekkingu sem þegar er
fyrir hendi. Þekkingin sjálf er sem sagt
ekki slæm en það er hægt aó misnota
hana.
Hvað fmnstykkur um klónun?
Helgi: — Það fer eftir því hvers konar
klónun er átt við. Gen eru klónuð á
rannsóknarstofum á hverjum degi og ég
sé ekkert athugavert við þaó. Öðru máli
gegnir um klónun á mönnum. Ég tel að
það sé rangt.
Leifur: — Ég er líka á móti því að
klóna menn og el þá von í brjósti að
manninum sé sú skynsemi í blóð borin
að það muni aldrei verða reynt enda
held ég að á því séu slíkir annmarkar að
það sé bara hreint ekki mögulegt.
Hvaða augum lítur kristinn vísindamaður
framtíðina?
Helgi: — Ég trúi á Krist og þess vegna
lít ég framtíðina björtum augum. Hann
er drottinn drottna og konungur kon-
unga. Þeir sem tilheyra honum eiga að
líta framtíðina björtum augum.
Leifur: — Vió höfum skyldur gagnvart
Guði varðandi það hvernigvið notum líf
okkar. Mér finnst trú og vísindi passa
saman eins og hönd í hanska. Þetta er
spennandi líf og dagurinn er aldrei nógu
langur, enda hef ég ótal verkefni utan
vinnunnar.
Að þessum orðum sögðum kveðjum
vió þá félaga og þökkum fyrir spjallið.
7