Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.06.2001, Blaðsíða 28
Um lestur Biblíunnar Sigurjón Árni Eyjólfsson Ritningin og mióaldir Á miðöldum var mótandi kenningin um ferns konar merkingu texta og hún var m.a. sett fram með eftirfarandi oróum: „Bókstafurinn kennir atburði, allegorian um trúna, moralis um breytni, anagogia um stefn- una heim“.[1 ] Henni til grund- vallar lá áhersla Páls postula á trú, von og kærleika (1Kor 13.13), sem er hér tengd við ritskýringu Biblíunnar. Aðferð- in var skýr og markviss. Textinn eins og hann kom fyrir fjallaði um atburði eða greindi frá sög- unni, en dýpri merking hennar var dregin fram með að sýna hvernig textinn grundvallaði trúnna, styrkti vonina og efldi kærleikann. Þrátt fyrir þá miklu möguleika sem kenningin átti að veita þá leiddi hún ekki til öflugr- ar ritskýringar innan guófræðinnar og kirkjunnar. Á mióöldum einkennist guð- fræðiiðkunin mun fremur af kenninga- smíðum. Ritningin og ritskýringin höfóu þar ekki miðlægtvægi, heldurvoru aóall- ega notuð til aó undirbyggja og styrkja kerfi guðfræðinganna. Settar voru fram stórmerkar guðfræóikenningar sem eru enn þann dag í dag mótandi. Nægir hér að nefna nokkra höfunda eins og Ágústínus (354-430), Tómas frá Akvínó (1225-1274) ogjóhannes Duns Scotus (1265-1308). Þeir skrifuðu allir skýring- arrit við ritninguna en í trúarhugsun þeirra er ritskýringin ekki sett í fyrsta sæti. Þessi áhersla kemur m.a. fram í því að þeir áttu það sameiginlegt að búa yfir lítilli grísku- og hebreskukunnáttu, en hún er óneitanlega grundvallaratriói í rit- skýringu þar sem bókstafieg merking textans skipar hefðarsætió.[2] En á mið- öldum má segja að allegorian, óeiginleg merking textans eða launsögnin, hafi verió alls ráðandi. Hún hafói smátt og smátt orðið mótandi og ýtt bókstaflegri merkingu til hliðar. Orsök þessa má rekja til þess að heimspekikerfi, m.a. Platóns (432-347 f.Kr.) og Aristótelesar (384-324 e.Kr.), voru notuó sem for- senda og grundvöllur fyrir guðfræðilega umræóu. Þegar líóa fer fram að síómið- öldum vildu margir losa sig undan oki skólaspekinnar og þungu guðfræóikerfi hennar og samhliða því eflist vitund manna um gildi heimilda. Lausn vand- ans fólst í því að hverfa aftur til upp- runans sem fólginn var í frumheimildun- um. Forsprakkar þessarar stefnu eru fornmenntamenn eða húmanistar, sem stóðu fyrir útgáfum heimilda sem voru annað hvort gefnar út á frummálinu eða þýddar upp úr því. Ein merkust þessara textaútgáfa var útgáfa Nt á grísku og hlutar Gt á hebresku. Það gefur aó skilja að áhugi á fornmálunum fékk nú byr undir báða vængi. Grísku- og hebresku- kunnátta varð nú almenn meðal menntamanna. TúlUunarfræöi Marteins Lúthers Þrátt fyrir að siðbótin hafi sína heim- spekilegu vídd þá hafnar Lúther (1483- 1545) því að hún eigi vera mótandi inn- an guófræðinnar. Ef það er gert aftur á móti þá afbakast jafnt boðun og kenn- ing kirkjunnar. Orsök þess er að hér er heimspekin sett í hlutverk sem hún veld- ur ekki. Grundvöllurinn sem guðfræðin á aó byggja á er ritningin. Við ritskýringu hennar er það bókstafleg merking text- ans sem gildir. Áhersluna á bókstaflega merkingu textans byggir Lúther á eðli daglegs máls sem mælikvarða á alla mál- notkun. „Það er hafið yfir allar orða- flækjur, málskrúð og skáldskap sófist- anna [...] Þess vegna á að nota það. Notkun daglegs máls kemur nefnilega í veg fyrir að bókstafur ritningarinnar hverfi í móðu andlegheita eóa verði orð- hengilshætti sófistanna að bráð.“[3] Þegar kemur að lestri ritningarinnar ber að forðast alla óeginlega túlkun, en í stað þess eiga menn að halda sig við bókstafinn, venjulegt málfar og skýra hugsun. Annað grundvallandi atriði í túlkunafræði Lúthers er kenningin um að ritningin sé í sjálfu sér skiljanleg og skýr. Hún er svo aó segja sinn eigin túlkandi. I skýrleika hinnar bókstaflegu merkingar textans lýkur heilagur andi ritningunni upp. Erfióa ritningarstaði á útskýra í Ijósi augljósra, en ekki öfugt. Þar með er ekki allt sagt því ritningin eða texti hennar einn út af fyrir sig nægir ekki, því hinn eiginlegi túlkunarlykill hennar og megin- 28

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.