Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2001, Qupperneq 17

Bjarmi - 01.06.2001, Qupperneq 17
slökkt þannig aó hann þorir að vera grímulaus í salnum. Ef maóur er frekar grímulaus mann- eskja getur veriö erfitt fyrir fólk sem ber margar grímur aó umgangast mann. Þetta er bara eins og með Jesú sem er algjörlega grímulaus. Þaó er mjög óþægilegt fyrir svikarana að vera í kringum hann af því aó með því að líta á hann, finna þeir svo vel fyrir grímun- um sínum. Þess vegna er svo áríðandi fýrir leikara að geta fellt grímurnar sín- ar þegar hann er á sviói. Svo kemur engum við hvernig hann er úti í lífinu, dags daglega. Við þurfum að hafa grímur því við erum ekki eins sterk og Jesús. Við getum bara gert okkar besta og fundið okkur stað þar sem við þor- um að fella grímur, sem er meðal ann- ars í kirkju. Þegar sýningin um píslarsöguna var búin og það var búið að klappa Bar- böru og Ulfar upp nokkrum sinnum, stendur Barabara dálítió feimin á svip- inn og fitlar vió nefið um leið og hún segir við leikhúsgesti að hún hvetji þá til að lesa Biblíuna. Já, hún er náttúrulega mögnuð. Eg var svo hissa á hvaó er þarna. Samt er ég ekkert hissa. Ég þekki fullt af stóru og góðu fólki sem les Biblíuna, notar hana, flettir upp og nær alltaf í eitt- hvaó. Þegar ég hef gert þaó lendi ég alltaf á gullkornum en það er oft sem ég skil ekki. Stundum á ég erfitt með aó skilja hvaó átt er vió hér og þar. Bergur var miklu betri í því aó túlka en ég. Svo þegar hann var búinn að út- skýra gat ég flogið með honum áfram. Biblían er ekkert alltaf aðgengileg. Við erum svo misgreind. Þá meina ég að hlutir liggja misvel fýrir manni. Einn er góður í þessu en annar er góður í hinu. Eg er ekki góð í að skilja flókna texta, flókið oróalag. Ég þarf alltaf hjálp. Þess vegna hef ég ekki lesið margar Is- lendingasögur og þess vegna hef ég aldrei treyst mér í Biblíuna. Ég þarf aó- stoð. Ég er þannig illa gefin. Ég fann að mig langaði aó rannsaka Biblíuna. Mig langaði að hafa tíma til að lesa og bera textana saman. Hverjar eru þessar manneskjur sem skrá Biblíuna? Hvaó leggur hver og ein áherslu á? Mig lang- aói að vita þaó. Það að Matteus leggur áherslu á þetta ogjóhannes á eitthvað annað segir okkur mikið um hvernig manneskjur þeir voru. Mér finnst líka áhugavert aó skoða lærisveinana af því hópur er hópur og allir hafa hlutverk innan hópsins eins ogjúdas greyió sem þarf að svíkja. Á kirkjudögum á Jónsmessu í sumar cetlið pið Bergur að tútka kcerleikarm út frá 7 3. kafla Fyrra Korintubréfs. Já, þegar vió vorum að lesa píslar- söguna og undirbúa okkur í Borgar- leikhúsinu prentaði Bergur þennan kafla út og lét mig fá. Hann er meiri grúskari en ég. Hann nær í efni og ég les. Ég hef oft heyrt þennan texta áður en hef aldrei lesið þetta frá hjartanu - og ég bara hágrét. Ég veit ekkert hvern- ig Barbara og Úlfar taka á þessu þann 23. júní í sumar á kirkjudögum en ég hlakka mjög til. Við byrjum daginn á því að fara í málstofu þar sem við hlustum á fýrirlestur lærðs manns um efnið þannig að við fáum annan vinkil þar. Aður verðum vió búin að sitja saman og tala og skoða hvar við sjáum kærleikann í umhverfi okkar, hvar við mættum vanda okkur betur, hvenær við köstum honum frá okkur og af hverju við nennum ekki alltaf að hafa hann með. Það sem mér finnst svo magnað við þennan kafla í Korintubréfinu er þaó að ég geri mér grein fýrir því að eftir því sem ég verð eldri, þeim mun meira áríðandi mun þessi texti verða. Ég held að ég eigi eftir aó skilja kærleikann bet- ur og betur og orðin eigi eftir að verða stærri og stærri eftir því sem tíminn líð- ur. Og sem leikari og listamaður er þetta kjarninn; að kljást við píslarsög- una og kærleikann. Þetta er náttúru- lega bara upphaf og undur alls! viðaL., —i verold BANDARÍKIN: Hlutfall gjafa minnkar Svo virðist sem gjafir til kristilegs starfs hafi farió minnkandi á und- anförnum árum ef marka má rann- sókn sem gerð var í Bandaríkjun- um. Á árunum 1968 til 1998 fóru þær úr 3,1% í 2,5%. Jafnframt virð- ist æ hærra hlutfall peninganna fara í að greióa laun og stjórnunarkostn- að en minna fer beint til kristniboðs- og boðunarstarfs. NOREGUR: „Lokuó lönd“ úr sögunni? Gunnleik Seierstad, framkvæmda- stjóri Norska Biblíufélagsins, hélt því fram nýlega í viðtali að ekki væri lengur hægt aó loka Guðs orð úti frá einstökum löndum eins og gert hefur verið og því sé rétt að hætta að nota skilgreininguna „lokuð lönd“. Aóalástæóan er Netið. - Það er enginn vafi á því að Netió opnar leið fýrir Guðs oró til landa sem áóur voru lokuð fyrir Biblíu- dreifingu og ýmsu öðru kristniboðs- starfi. Auk þess hefur fólk í auknum mæli aógang að útvarps- og sjón- varpssendingum sem gerir mögulegt að ná til þess með fagnaðarerindið, segir framkvæmdastjórinn. 17

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.