Bjarmi - 01.06.2001, Síða 31
Eftirlætis ritningarstaóur Sigrúnar Ástu Kristinsdóttur
Fyrirætlanir til heilla
„Því aó ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju
meó yóur - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla, en ekki
til óhamingju, aó veita yður vonarríka framtíð"
(Jeremía 29:11).
Eg sit hér við eldhúsborðið mitt og þaó er sunnudags-
morgunn. Stelpurnar mínar eru sofandi en maðurinn
minn er vaknaður og er að lesa Morgunblaðið. Vió erum
líka að hlusta á Lindina og þvottavélin er komin í gang.
Biblían mín er opin og ég hef látið hugann reika. Ég ætla
að segja ykkur hver er eftirlætis ritningarstaóurinn minn og
ég get ekki annað en brosaó því Biblían er full af uppá-
halds-versum. Þessi bók er mér svo dýrmæt. En ég staldra
við tvö vers sem standa í Jeremía 29:11-12: „Því aó ég
þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður - seg-
ir Drottinn - fýrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju,
að veita yður vonarríka framtíð. Þá munuð þér ákalla mig
og fara og biója til mín, og ég mun bænheyra yður.“
Það eru tæplega 23 ár síðan ég tók á móti Jesú Kristi
sem frelsara mínum. Þá var ég 27 ára gift kona og við
höfðum eignast óskabörnin, dreng og stúlku. Vió áttum
stóra og góóa íbúó, tvo bíla og vorum á leið í frí til Þýska-
lands í þrjár vikur. Við vorum (og erum) reglufólk. Ég
hafði aldrei reykt né drukkið. A ball fórum við bara einu
sinni á ári og þá á árshátíó á vinnustað mannsins míns.
Og við vorum alltaf þau fyrstu sem fóru heim af þeim
gleðskap. Við fórum í kirkju á sunnudögum og styrktum
nauðstadda og vorum bara þokkalega „kristin“. Ég var
mjög sátt við lífió og hamingjusöm. En Drottinn hafói
áætlun fýrir líf mitt og fjölskyldu minnar, að vió myndum
ákalla Guð og leita hans og þá ætlaði hann að láta okkur
finna sig. Hann sendi heim til okkar tvær trúaðar konur
sem vildu að allir kæmust til þekkingar á Guði föður,
skapara himins ogjarðar, og syni hans, frelsaranum Jesú,
og að ógleymdum Heilögum anda sem var úthellt eftir
uppstigningu Jesú Krists. Þessar yndislegu konur komu í
veikleika sínum og í styrkleika Drottins. Og þá breyttist líf
okkar.
Það var gott líf sem vió áttum en það átti eftir að veróa
miklu betra. Allt öðruvísi og stundum hreint ótrúlegt.
Þetta er skóli og yfirkennarinn er Heilagur andi. Auðvitað
hefur ýmislegt gengið á í Iífi okkar og stundum verið erfitt
en Guó er góóur og hefur veitt okkur þá náð að þekkja
hann persónulega og fá að fýlgja honum. Hann hefur ver-
ið nálægur en ekki fjarlægur og hann hefur umvafið okkur
Sigrún Asta Kristinsdóttir.
með styrk og kærleika sínum. I dag er ég enn gift þessum
frábæra manni sem frá byrjun minni meðjesú Kristi hefur
gengið sama veg. Jesús er vegurinn, sannleikurinn og lífið
og enginn kemur til föðurins nema fýrir hann. Við eigum
fjögur börn sem öll elska Drottin og fýlgja honum. Ég sem
hafði ekki mjög mikið sjálfsálit hef öðlast kraft þegar Heil-
agur andi kom yfir mig.
Ég er formaður Aglow í Reykjavík sem er kristilegt
kvennastarf. Þar hef ég tækifæri til að segja konum frá
gleðiboðskapnum umjesú Krist. Égvinn á leikskóla KFUM
og KFUK þar sem ég má segja börnunum frá Jesú sem er
besti vinur barnanna. Ég hef ásamt manninum mínum
verið með barnastarf í kirkjunni okkar. Ég hefverið í fýrir-
bænaþjónustu og leiðbeint á námsskeiðum. Verið ræðu-
kona og flutt orð dagsins á Lindinni o.fl. o.fl. Og allt þetta
vegna þess að ég leitaði Drottins af öllu hjarta og hann lét
mig finna sig. „Því að ég þekki þær fýrirætlanir, sem ég hefi
1 hyggju með yður - segir Drottinn - fýrirætlanir til heilla,
en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíó."
Sigrún Asta Krístinsdóttir er formaður Aglow í Reykjavík og starfar
á leikskdla KFUM og KFUK.
31