Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 16
176 Heijía er bezt Nr. 6 Nr. 6 Heima er bezt 177 FYRSTI JÚNÍ. — Og ég ætla heim í dag. Ég rölti í hægðum mínum suður Hríseyjargötu á Akureyri á leið upp í miðbæinn. Næturþokan er grisjuð sundur og sólin vermir frá heitum himni og silfrar lygnan fjörð- inn. Vinaleg Vaðlaheiðin í hvít- um möttli í miðjar hlíðar, göt- óttum að vísu, laðar augað sem fyrr og við rætur hennar blasa bændabýlin við sjónum, girt grænu túni, snotur spegilmynd af því, er barn sveitanna þráir. Og það bezta er, að í faðmi minnar eigin sveitar mun ég hvílast í kvöld. Ég beygi upp Eiðsvallagötu, þar eru verka- menn við gatnagerð, ungir menn og gamlir. Og nú verður ekkert verkfall hér, annars hefði það hafizt í dag. Mundi vera hægt að sjá það í svip þessara verka- manna, að þeir voru sigurveg- arar? Myndu þeir ekki finna til stolts yfir mætti samtaka sinna? Ég reyni að skynja í svip þeirra svar við hugdett- um mínum, en verð einskis á- skynja. Gamall maður linar takið á skóflunni og réttir úr sér, en auðséð er, að það eitt veldur sársauka, svo grípa verð- ur hönd um bak. Hann lítur á vegfarandann án áhuga, því hvað er jafn dapurlegt í augum verkamannsins og uppá- færður maður, er leggur gang- stéttir bæjarins undir fót? Svo er takið hert á nýjan leik um skóflunna. Eiðsvallagata þarf lagfæringar og brauðstrits hins aldraða manns hefst á ný. Einu augnabliki var eytt til að rétta úr lúnu baki, og þó er hann sigurvegari. Enn eru vegamót og ég tek Strikið suður Norðurgötu, skammt á undan mér gengur kona, settleg og virðuleg í fasi, og á augabragcii þekki ég frúna. Hér fer Hugrún frænka mín, hnarreist að vanda og engin leið er að sjá aö nokkur ritdóm- ari hafi skert á nokkurn hátt framavon hennar. Nú er hún bráðlega á förum út yfir poll- inn til að kynnast Svíum og og bókmenntum þeirra. Það er nærri mér að óska, að ég hefði skrifað „Úlfhildi“ og þolað á- vítur, aðeins ef sá verknaður hefði stuðlað að því, að ég hefði getað heimsótt land Selmu Lagerlöf. Brátt hverfur Hugrún út á Strandgötu, ég, frændi henn- ar, lötra á eftir með tösku mína, hálf öfundsjúkur, því að ég er ekkert skáld. Strandgata er að Hlið i Skiðadal frá norðvestri. Séð yfir að Þverá og i Þverárdal. Ferðalag um sveit og bæ á fyrstai vordegi Eftir Sigurjón Jónannsson frá Hlíð Cráni, aðalhjálparhellan i fönnum ' Búkolla i Hlið, „Stóllinn" i baksýn. vetrarins. þeirra frá síðastliðnum vetri, er þeir glímdu ótrauðir við fann- kyngið og bylinn til að ná settu marki. En nú er vorið komið og aurbleytan að mestu liðin undir lok, og nú mun klukkutími end- ast til að ná til Dalvíkur, þótt í vetur rynni heill sólarhringur sitt skeið og byggist á annan áð- ur en náð var leiðarenda. En enginn skal samt ætla, að þeir geti slegið slöku við í vorblíð- unni. Starfið er erilsamt. Kl. 7 að morgni leggja þeir af stað með mjólkina frá Dalvík. Kl. 12 y2 er svo lagt frá Akureyri til baka og frá Dalvík liggur svo leiðin fram Svarfaðardal til mjólkurtöku, og sama hring- rásin hefst aftur að morgni. Með þessari stuttu lýsingu, er ekki allt sagt, auk aðalstarfans er virðist ærið nógur, bætist við kvabb fólksins í sveitinni. Bændur, húsfreyjur, lausamenn og heimasætur eiga oft erindi við Svein og Jóhann, og margir koma oft sama daginn og beið- ast úrlausnar, og er lagt er af stað að morgni, er það oftast svo, að staðirnir eru margir, er koma þarf á, ef sinna á bænum fólksins. Fyrir húsfreyjuna átti að kaupa 2 tegundir blóma í blómabúð K.E.A., efni í skyrtu, er átti að vera með ákveðnum lit, o. fl. o. fl. Bóndinn bað um lambabóluefni, kalk í nautpen- ing og annað varðandi rekstur búsins. Lausamaðurinn bað fyr- ir föt í hreinsun og hvort hann vildi nú vera svo góður og koma við í kjallaranum í Strandgótu og taka eina flösku af „Svarta- dauða“, og heimasætan biður einnig með blíðu brosi um eitt- hvað smávegis. Þannig gengur það dag frá degi. „Helduröu að þú vildir vera svo góður að gera þetta fyrir mig?“ klingir í eyr- um bílstjóranna, og þeir reyna af kostgæfni að vera „svo góðir" ef tími vinnst til. Já, þetta var nú aðeins örlítil innsýn í starfs- sögu svarfdælsku mjólkurbíl- stjóranna. Ég fæ far með Jóhanni — og brátt er Akureyri að baki. „Gul- ur“ Jóhanns flýtir för sinni út Kræklingahlíð og fyrr en varir, er Moldhaugnahálsi náð og Hörgárdalur birtist sýnum og höfuðbólið Möðruvellir í frægð- arljóma fyrri tíma heilsar ferða- manninum jafn aðlaðandi sem fyrr. Hörgárbrú gengur í bylgj- um undan þunga bílsins, en áin blökk á lit í blíðu vorsins er til- búin með votan hramm að veita viðtöku „Gul“ og okkur Jóhanni ef skeð gæti að gamla hengi- brúin bilaði. Það er sem hún viti af því, hún gamla Hörgá, að hún hefur löngum þótt illskeytt baki og við tekur hið ráðhús- lausa Ráðhústorg. Hví ekki að breyta nafninu í Landsbanka- torg eftir að stórhýsi hins snauða Landsbanka vors er risið af grunni?Á torginu standa gljáfægðar bifreiðar bílastöðv- anna, en ökuþórar sóla sig á bekkjum úti. Lítill akstur á þessum sólskinsdegi. Verður rýrt sumar á eftir dauðum vetri fyrir bílstjóra á Akureyri? Og ekki kannski að undra, því þeir, sem aðallega geta ferðast, eiga sjálfir bíla. Hafnarstræti — hjarta Akureyrar — tíguleg hús og verzlanir hlið við hlið með gnægð af vörum, er augað girn- ist, en mig vantar gull, sem fleiri, og því bezt að varast þá freistingu að horfa inn um spegilfægða búðarglugga. Nú er komið að leiðarlokum í bili, því náð er Kaupvangstorgi, og þar á ég von á aö hitta mjólkurbíl- stjórana úr Svarfaðardal. Hótel K. E. A. gnæfir skammt frá, ris- mikið og tignarlegt. Uppi á brekkunni rís Matthíasar kirkja með arma til himins og lengra í burtu Gagnfræðaskólinn með gyllta glugga í skínandi morg- unsól. Með rykstybbu í nefi verður mér það ennþá einu sinni á að 'dást að höfuðstað Norðurlands, hann á ítök í mér, en þó er sú taugin sterkari, er veldur ferðalagi mínu í dag. Æskusveit mín kallar. Á tröpp- um Hótel K.E.A. sé ég mjólkur- bílstjórana birtast, Svein og Jóhann, góðkunningja allra Svarfdælinga, hraustlega og úti- tekna. Hún er óskráð sagan Séð fram Skiðadal um sumarkvöld.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.