Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 19
Nr. 6 Heima er bezt 179 Hreppsstjóraflutningur: Barnshafandi stúlka, hrakin og hrjáð hrepp úr hreppi Eftir Böðvar Magnússon, Laugavatni ÞETTA, sem hér verður sagt írá, skeði á þeim árum, sem sveitaflutningar á fátæku fólki voru í móð, eða ef það lætur bet- ur í eyrum að kalla það hrepp- stjóraflutninga, eins og það var nú vanalega kallað fínna nafni. Ekki er ég svo fróður að ég viti, hvað mörg ár eða aldir þessir flutningar hafa átt sér stað með þjóð vorri, en líklega hefur það verið frá því land byggðist. Að minnsta kosti úir og grúir í sögunni af því, þegar sveitarhöfðingj ar voru að met- ast um það, hverjum bæri að fyrsta skipti fór að heiman? Það skipti ekki neinu máli, þótt nýju heimkynnin væru bjartari og hlýrri, torfbærinn í Hlíð var einhvernvegin annað og meira en venjuleg híbýli, hann var hluti af sjálfum mér, er mér fannst ég ekki geta verið án. Mitt fyrsta verk er að heim- sækja hríslurnar í garðinum og mér til ánægju sé ég, að fann- kyngi vetrarins hefur ekki náð að brjóta lim þeirra, þær hafa flestar rétt sig við og sumar orðnar allaufgaðar. Mér finnst hríslurnar mínar sýna tákn- mynd af lífinu í heild. Flestar þeirra hafa staðist raunir vetrarins og að hausti munu þær verða hæfari til að þola næstu raun, og ég þykist þess fullviss, að engin ástæða sé að óttast um framtíð þeirra úr þessu. Þær hafa fest rætur ör- ugglega í frjórri moldinni og stofn þeirra er orðinn gildur og seigur, og því þarf sterkara afl en íslenzkt vetrarríki, þótt misk- unnarlaust verði, að ganga af þeim dauðum. En syðst í horni garðsins er hrísla, sem ekki mun bera .barr sitt í sumar eða í framtíðinni. Stofninn hefur sligast undan þunganum og halda lífinu í þessu fólki; jafn- vel nákomnir ættingjar voru að metast um það, hvorum eða hverjum bæri að annast þenn- an frænda eða þessa frænd- konu sína. Voru þær ekki fáar rekistefnurnar milli höfðingja út af þessum málum fyrr á tímum og svo milli sveitastjórna fram undir og fram á okkar daga, sem nú erum rosknir menn. Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri sagði mér eitt sinn, þeg- ar við ræddum um þessi mál og samvizkuleysi manna á með- flestar greinar hennar eru brotnar. Á stöku stað má sjá brum að fæðast, veik tilraun að ná til lífsins, en sárin eru of stór til þess að það megi tak- ast. Ég finn til með henni og þrái að geta veitt henni lið- veizlu, en það er óframkvæman- legt, hún er dæmd úr leik, hún verður aldrei hávaxið tré, er teygir ilmandi laufkrónu mót sólu, hana brast þrek í þolraun vetrarins, hún er og verður kal- viðurinn í litla trjáreitnum í Hlíð, og þannig gengur það einn- ig til á meðal okkar mannanna. En hvað um það! Ég er staddur heima í dalnum og það er vor og hvenær rætast vonir ef ekki að vori, er grózkuangan fyllir loftið og blóm vagga kolli í þýð- um blæ. Enn stígur ekki að vit- um gróðrarilmur í Skíðadal, og enn sézt ei nein sóley, er kætir lundu. „Ef til vill verður sóley vöknuð í varpanum á morgun“ mæli ég við sjálfan mig um leið og ég skotra augunum til særðu hríslunnar fjarst í garðinum. „Hvað er að fást um það, þótt ein hrísla falli í valinn.“ Sigurjón Jóhannsson frá Hlíð. ferð fátæks fólks og dýra, að ein saga frá yngri árum sinum væri sér alltaf minnsstæðust og gæti aldrei liðið sér úr minni, þegar minnzt væri á þessi mál. Bræður tveir bjuggu stórbú- um sitt á hvorri jörð. Foreldrar þeirra höfðu verið vel efnuð og aðeins átt þessa 2 syni, sem skiptu á milli sín eigum for- eldra sinna. Þegar faðir þeirra dó, tóku bræðurnir allar eigur foreldra sinna í sínar hendur. Til þess nú að öllu mætti skipta upp og sem jafnast, svo að hvorugur þyrfti að borga út úr búinu meira en hinn, ákváðu þeir, að þeir skyldu hafa móð- ur sína að jöfnu á meðan þeir og hún lifði. Þessa skilmála héldu þeir trúlega báðir, svo að upp á vissan dag flutti sá bróð- irinn, sem hafði hana, hana heim til hins, sem átti að taka við henni, og brást þetta aldrei í nokkur ár. En svo kom það -fyrir, sem ekki hafði áður skeð, að þegar vistaskipti áttu að fara fram, var skollin á stórhríð, sem stóð í nokkra daga. Nú voru góð ráð dýr. í þrjá daga var hún búin að vera fram yfir tímann og sam- kvæmt samningi bar hinum bróðurnum ekki skylda til að borga það. Hinn ákvað því að leggja á stað með hana út í ill- fært veðrið til bróður síns, held- ur en þola þetta lengur bóta- laust. Þegar fram á daginn kom versnaði veðrið svo, að hann náði með naumindum í beitar- hús, sem voru á leið hans frá vandalausum bónda og þar máttu þau mæðgin dvelja yfir nóttina. Daginn eftir undir kvöld náðu þau til hins sonar- ins. Var móðir þeirra þá orðin mikið veik og andaðist eftir 2 daga. Þar með var lokið því stríði að sjá fyrir henni. Verð-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.