Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 24
184 Heima er bezt Nr. 6 San Marino — lýðveldið upp á fjalli Eftir dr. Jón Stefánsson VINUR MINN, Luigi (Loðvík) Villari, bauð mér að heimsækja sig á Ítalíu. Foreldrar hans bjuggu í Firenze (Flórens). Fað- ir hans hefur ritað frægar bæk- ur um sögu borgar sinnar og um Macchiavelli. Móðir hans er ensk, háættuð. Var töluð enska á heimili þeirra. Hann kunni því jöfnum höndum bæði málin, ít- ölsku og ensku. Hafði hann emb- ætti í utanríkisráðuneytinu í Rómaborg og var, að kalla, með annan fótinn í London. Þar kynntist ég honum hjá Sir Isra- el Gollancz, sem var „at home“ á laugardögum. Villari var ekki við eina fjölina felldur og átti hús bæði í Róm og í Sorrantó við Neapel-flóann. JHann fékk pró- fessor Giovanni Gentile, aðal- ritstjóra Enciclopedia Italiana, til að bfðja mig að rita greinar um ísland í hana. Þessi al- fræðibók er stærri en Encyclo- paedia Britannica og myndirn- ar í henni eru listaverk. Gentile borgaði mér 1000 lire fyrir grein- arnar. Ég sagði Villari af Andorra, lýðveldinu í Pýreneafjöllunum. Hann kvað San Marinó lýðveld- ið á Ítalíu vera langtum eldra og merkilegra. Það var stofnað á miðri fjórðu öld eptir Krists burð. Diocletianus Rómverja- keisari ofsótti þá kristna menn. Sögusögn segir, að rómversk hefðarfrú, Felicitas, hafi gefið kristnum steinhöggvara, Mar- inus að nafni, fjalllendi í þakk- arskyni fyrir að hann kenndi henni kristna trú. Leituðu kristnir skjóls og hælis á fjall- inu og stofnuðu lýðveldi, sem þeir kölluðu San Marinó, því Marinus var tekinn í heilagra manna tölu. Lýðveldi þetta mun því vera 1500 ára gamalt. Það er norðaustantil á Ítalíu á fjalllendi. Standa þrír tindar upp úr því 2500 feta háir. Lýð- veldið er tæpar 33 enskar fer- hyrningsmílur að stærð, íbúar rúmlega 10.000. Útgjöld og tekj- ur standast á og eru tæp hálf millión núverandi (1951) ís- lenzkra króna. Þing lýðveldisins (Arringo, ráð) er kosið af mönn- um, sem eiga heimili og börn. Aðrir mega ekki kjósa. Þingið bætir við sig dugandi mönnum, horft í augu mér . . . Ef hún hefði lagt lófana á vanga mér og horft lengi í augu mér, þá hefði það aldrei gerzt, þetta, sem ekki verður aftur tekið. Þá hefði ég orðið þess var, að ég væri til í meðvitund annarra. Ég mundi hafa endurfæðst til þessa lífs. En henni varð aldrei litið í augu mér, og þess vegna var það, að ég brauzt um á hæl og hnakka, öskraði og veinaði, barði og beit. Ég þráði að mega hrópa á guð, á þau Grétu, Önnu, Ingiríði og Harald, Birgir, Nonna og Bertil: — Sjáið aumur á mér. Yrðið á mig. Lítið í augu mér. Viður- kennið mig sem einn í ykkar hópi, svo að ég verði þess var, að ég sé lifandi maður meðal manna. En ég kom ekki upp auka- teknu orði. — Sjúkraberarnir komu inn. Þeir bundu mig á börur og báru mig út úr híbýlunum, sem ég hafði byggt af grunni með mín- um eigin höndum. Hún gamla mín æddi um gólfið, lagði lófa að vöngum og kveinaði: — Ó-ó-ó . . . Að ég skyldi eiga eftir að þola slíkt böl. Það var ekki ég, sem þjáðist! Það var hún! Og hvernig ætti sá maður, sem ekki er til lengur, að geta liðið þjáningar? Ingiríður stóð í dyrunum og skyggði hönd fyrir augu. Henni hafði unnizt tími til að fara í sokkana, en orðið að hafa hrað- ann á og sokkarnir fóru ekki sem bezt. Birgir kom fram í dyrnar á herbergi þeirra bræöra. Hann hafði vaknað við hávað- ann, stokkið fram úr á náttföt- unum, og var í hinu versta skapi. — Hver andskotinn er það eiginlega, sem á gengur! hróp- aði hann í svefnrofunum. Þið vitið, hvernig manni líður eftir að hafa verið á sveinasvalli. Og ég sem á að vera mættur til vinnu klukkan sex. Hurð var skellt að stöfum, og ég sá hvorki né heyrði mína nánustu. Þegar þeir báru mig út garðstíginn, glotti bleikur mán- inn til mín. Ég fann gin hans gapa við mér. Og mig langaði mest til þess að biðja sjúkraberana að herða á böndunum. í meira en ár dvaldist ég í sjúkrahúsinu. Nú er ég kominn heim aftur. Allt er nákvæmlega eins og það var, áður en það gerðist, þetta, sem ekki verður aftur tekið. Allir eru á ferð og flugi á heimilinu, nema ég. Ég sit með dagblaðið í höndunum. Engum verður framar litið í augu mér. Enginn yrðir á mig. Ingiríður býr sig á dansleik, Haraldur ætlar í bæinn, Birgir á sveinasvall og Anna í ökuferð. Allir búa sig að heiman. Hún gamla mín ætlar á vakningar- samkomu. En Gréta kemur ekki hingað með þá Nonna og Bertil í kvöld, enda þótt þau hjónin ætli út að skemmta sér. Aldrei framar heyri ég hana segja: — Nú mega Nonni og Bertil vera hjá afa, á meðan pabbi og mamma fara út og fá sér snún- ing. Hún segir, að drengirnir séu orðnir svo stórir, að þeir geti séð um sig sjálfir. En ég veit, hvers vegna hún kemur ekki með þá til mín. Það er vegna þess, að það gerðist, þetta, sem ekki verður aftur tekið. Hún óttast, að það kunni að gerast aftur. Og hver veit . . . Á stundum skelf ég og titra milli vonar og ótta. Og enn hef ég ekki orðið þess var, að nokkur augu leit- uðu mín.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.