Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 8
168 Heim'a er bezt Nr. 6 styggð á því hervirki, sem hér hefur verið framið.“ Ðagbjartur horfði spyrjandi á hana, og hún hélt áfram máli sínu: „Þetta er verk Skeggja, trölla- konungs. Nú hefur hann komið sér við, því að Hjördís, systir mín, sem hefur haldið honum í skefjum, er sjúk af ást á Svart- höfða, bróður þínum. Er nú við búið, að fleiri hlaupi skriður hér á dalnum næstu daga og því fari fram, unz hann er að fullu eyddur af gróðri!“ Þegar dísin hafði þetta mælt, hvarf hún sjónum Dagbjarts, og var honum þá sem ský hefði dregið fyrir sólu, en raunar skein hún í heiði. Leit hann ósjálfrátt upp til Skorufjallsins og til Skeggjans. Fannst Dagbjarti sem af honum stæði kaldur og óhugnanlegur gustur. Gekk svo Dagbjartur þangað, sem dísin hafði staðið. Þar gat að líta fög- ur blóm, blá, rauð og hvít. Lagði af þeim sterkan og heitan ilm. Hann dró hann að sér í löngum teygum, ásamt þeirri angan, sem gróðurþrungin jörðin andaði að vitum hans, og hann fann, að þessi ilmur var hinn sami og leikið hafði um dísina. Hann reikaði heim á leið og stóð síðan um hríð og horfði hugfanginn á steinana tvo, en loks gekk hann til bæjar. Hann mælti ekki orð við nokkra manneskju, þá er heim kom, og virtist mjög við- utan. Næsta dag féll önnur skriða á Bjargadal, og var hún ekki minni en hin. Tveim nóttum síð- ar hljóp sú þriðja, og var hún sýnu mest. Tók þá Þórhildur húsfreyja að hafa orð á því, að ef þessu færi fram, mundi dal- urinn brátt eyðast og verða til engra nytja. Dagbjartur hafði verið þögull og furðulega viðundurslegur, frá því að hann gekk fram á dalinn, þá er fyrsta skriðan var fallin. Nú var sem hann vaknaði af dvala við orð móður sinnar. Hann leit á hana og brosti og sagði síðan: „Vel má vera, móðir vor, að synir þínir fái afstýrt þeirri landeyðingu, sem hér virðist bú- in, og skal þess nú freistað.“ Hann gekk því næst á fund Svarthöfða, bróður síns, og bað hann ganga með sér út á Trumbuhól og spjalla við sig. Svarthöfði varð hissa, en hann fór þó með bróður sínum út á hólinn, án þess að spyrja neins. Um hríð sátu þeir báðir þegjandi, en loks hóf Dagbjartur máls og sagði Svarthöfða frá því, sem farið hafði milli hans og dísar- innar. Svarthöfði horfði um stund í gaupnir sér. Svo leit hann sein- lega við bróður sínum og mælti nú fleiri orð í einu en nokkru sinni áður: „Ekki er því að leyna, Dag- bjartur bróðir, að fundum okkar Hjördísar hefur borið saman. Ég hitti hana hér frammi í dalnum í vor, þegar snjóa leysti. Stóð hún þá og horfði upp til Sekkjans. Hún hafði í hendi sverð eitt mik- ið og biturlegt, og var sem eldur logaði á eggjum þess. Hún er kona mikil vexti, þrekleg en fag- urvaxin, tinnusvart hárið og haddurinn svo sem af honum hrjóti sindur. Andlitsfögur er hún og svo svipmikil og sköruleg, að enga konu hef ég séð slíka, enda eru augu hennar svo heit og hvöss, að ekki mundi fyrir neinn barnunga í þau að horfa, svo sem ekki mun hent rindil- mennum að þola armlög henn- ar.“ Dagbjartur mælti: „Hví hófst þú leik þann, úr því að þú hættir honum svo skjótt?“ Svarthöfði brosti: „Nú mælir þú sem barn, Dag- bjartur bróðir. Ekki mundi það á margra færi að leggja lag sitt við huldur, hvað þá að rækja ástir við dísir þær, sem skulu hlúa að jarðargróðri og vernda hann í skotfæri við virkisveggi Skeggja tröllakonungs og kump- ána hans. En vel má ég segja þér það, að einskis fýsir mig nú fremur en hefja þann leik aftur, er við Hjördís lékum í vor, hversu sem honum lyktar.“ Nú spratt Svarthöfði á fætur, og var sem af honum gneistaði, þá er hann leit á bróður sinn og mælti: „Víst skal ég nú til þess leiks ganga, og mun þá skjótt linna skriðu- föllum í dalnum.“ Allt í einu fór þytur um loftið, eins og brugðið væri hvössum og sveigum brandi, og í sömu svip- an birtist Hjördís í allri sinni ægifegurð. Lagði af henni sterk- an og ölvandi ilm, og fannst Dagbjarti sem hann væri svíma sleginn. Vissi hann ekki af sér um hríð, en þá er hann kom til sjálfs sín, sat Ásdís hjá honum og fléttaði gleym-mér-eium í hár honum. Hann rétti þá fram hendurnar og vafði hana örm- um. Þegar leið á daginn, tók hús- freyjan á Hrafnabjörgum að spyrja eftir sonum sínum. En enginn taldi sig geta veitt henni neina vitneskju um það, hvað af þeim hefði orðið, nema hvað ein af griðkonunum sagðist hafa séð þá seinast sitja saman úti á Trumbuhóli. Ekki komu þeir um kvöldið, og næsta morgun var þeirra vant. Var þá farið að leita þeirra, en öll leit varð árangurs- laus. Sumarið var gott og gróður- sælt, en hvergi var annar eins gróður og á Bjargadal. Enginn aur rann úr fjallinu, og enginn steinn hrundi úr hömrunum. Grasið þaut upp, allt frá efstu rindum og niður að á, grænt og safamikið, og alls staðar var það stráð hinum fegurstu og ilmrík- ustu blómum. Þótti það með miklum ólíkindum, að skriðurn- ar frá um vorið greru upp að fullu, eins og aurinn og grjótið hefði verið hinn kjarnmesti á- burður. Fénaðurinn safnaði ó- venjulegum holdum, og málnyt kúa og ásauða varð meiri og kostbetri en nokkru sinni áður í búskapartíð Þórhildar húsfreyju. En þó að hún væri mikil og mál- nytuglöð búkona, sölnaði hún þetta sumar eins og jurt á haust- degi. Hárið varð grátt, og hún varð mögur og lotleg. En störf sín stundaði hún af meira kappi en jafnvel á fyrstu árunum eftir að hún var orðin ekkja, og undr- uðust allir þrek hennar. Svo var það einn hélumorgun um haustið, að húsfreyja vakn- aði við það, að henni heyrðist

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.