Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 14

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 14
§94 Heima —- er bezt Nr. 9-10 mörgum íslendingum sem kostur hefur verið á, tækifæri til að koma til Bessastaða, fulltrúum sveita- og bæjarfé- laga, almennra félagasamtaka o. s. frv. Gestabókin ber þessa alis greinilegt vitni. Ollum gestum, er til Bessastaða hafa komið, ber saman um, að þar séu móttökur hlýj- ar, látlausar og virðulegar. Eins og geta má nærri, hvíla slíkar móttökur mjög á herðum forsetafrúarinnar, og get ég um það dæmt af eigin sjón, að þar er húsfreyja, sem er starfi sínu vaxin, sem bezt verður á kosið á fremsta heimili þjóðarinnar. iVIargir þeir, sem koma að Bessastöðum, dæma þjóðina rnjög eftir forsetaheimilinu, en enginn þarf að kvíða þeim dómi, meðan þar ráða húsum frú Dóra Þórhallsdóttir og Asgeir Asgeirsson. VIII. A undanförnum árum hafa forsetghjónin víða farið bæði innanlands og utan. Þau munu nú aðeins eiga ófar- ið um fimm lögsagnarumdæmi landsins, áður en lokið er yfirreið um það allt. Þeim hefir alls staðar verið vel fagnað, og hefir á ferðum þessum komið skýrt í ljós, sem fyrr var getið, hversu sterk ítök Ásgeir Ásgeirs- son á um land allt. Alúðleg og virðuleg framkoma for- setahjónanna hefir á ferðum þessum skapað þeim nýja vini og aukið enn á traust þóðarinnar. Er mér ekki grunlaust um, að sumir þeir, er beittu sér hart gegn kjöri Ásgeirs Ásgeirssonar, hafi þótt slíkt stórlega mið- ur, eftir að þeir kynntust honum. Mjög hefir það vakið athygli manna um land allt, hversu gagnkunnugur Ás- geir Ásgeirsson er mönnum, málefnum og sögu hvers héraðs að kalla má, og hefir mönnum þótt gott við hann að ræða um þá hluti sem aðra. Innanlandsferðir forsetans eru nauðsynlegur þáttur starfs hans. Með þeim knýtast nánar tengslin milli hans °g þjóðarinnar. Forsetanum er nauðsyn að þekkja þjóðina, en þjóðin vill líka þekkja í sjón og raun for- seta sinn, sem hún sjálf hefir kjörið til þess að fara með forystu hennar og hún þarf að geta treyst á úrslita- stundum. Enginn vafi er á því, að ferðir forsetahjónanna um landið hafa ekki einungis aukici hið persónulega traust og vinsældir, sem þau njóta, heldur einnig glöggvað skilning manna á gildi forsetadæmisins sjálfs, enda er á fárra færi að skapa þann skilning betur en Ásgeir Ás- geirsson hefir gert. Ég hygg, að Guðmundur Daníelsson rithöfundur hafi vel túlkað viðhorf þjóðarinnar gagnvart forsetahjón- unum í cftirfarandi .orðum: „Ég er aðeins ein rödd úr hópi fjöldans — mætti ég þó láta í ljós þá bjargföstu sannfæringu mína, að Hús þóðarinnar hafi í yðar umsjá hækkað til lofts og víkkað til veggja og að þér hafið nú gefið oss sígilt dæmi um, hvernig rækja eigi tignasta embættið í þjóðfélagi voru.“ Þá hafa forsetahjónin og heimsótt allar bræðraþjóð- irnar á Norðurlöndum. Var það skylt, eftir að lýðveldi var endurreist, enda hefur það og reynzt einhver bezta landkynning, sem vér höfum átt kost á. Norðurlandaferðirnar voru farnar í tveimur áföng- um. Árið 1954 til Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands, en 1955 til Noregs; varð sú förin lengri, því að forseta- hjónin fóru allvíða um Noreg í boði ríkisstjórnarinnar norsku. Kalla má, að för þeirra væri sigurför, hvar sem komið var. Viðtökur allar einkenndust af hlýju og alúð Gengið í kirkju á Bessastöðum á Prestastefnu Islands árið 1953. Fremstir ganga forsetimi og Sigurgeir Sigurðsson biskup.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.