Heima er bezt - 01.09.1956, Page 21

Heima er bezt - 01.09.1956, Page 21
Frá heimsókn forseta íslands til Finnlands: Asgeir Ásgeirsson og frú Paasikivi, Paasikivi forseti og fní Dóra Þórhallsdóttir. vér værum tvær þjóðir, en einn ættstofn, sem hefðum yljað oss við sögulega glóð hins sama arinelds. Og hinn íslenzki gestur sigldi hraðbyri inn í hjörtu vor, er hann lauk ummælum sínum um útlegð konungs vors í síð- ustu styrjöld með orðunum: Guði sé lof fyrit, að þeirri ferð lauk svo giftusamlega.“ (Aftenposten). „Forsetahjónin koma hingað sem fulltrúar minnsta og yngsta þjóðríkisins á Norðurlöndum, en hins vold- ugasta þeirra allra, ef vér gætum að hinum sameiginlega Að ofan til vinstri: Friðrik Danakonungur og forseti íslands á Bessastöðum. Að neðan til vinstri: Forseti íslands og dr. Adenauer, forsætisráð- herra Þýzkalands, og dr. Kristinn Guðmundsson á Bessastöðum. menningararfi norrænna þjóða. Öll Norðurlönd standa í óbætanlegri þakkarskuld við ísland fyrir hin ómetan- legu fornrit þeirra, sem þeir sömdu og varðveittu um sögu og lifnaðarhætti forfeðra vorra. Enda þótt íslenzka lýðveldið sé einungis 11 ára gamalt, hvílir það á tíu alda gamalli frelsisarfleifð sjálfstæðs ríkis. Öldum saman voru íslendingar og Norð- menn ósjálfstæðar þjóðir, en hlutu sjálfstæði aftur með þjóðlegri vakningu. Sakir æsku beggja ríkjanna í hin- um norræna systkinaflokki eru þjóðirnar sérstaklega kærar hvor annarri. Þennan kærleik viljum vér, að forsetahjónin, Ásgeir Ásgeirsson og frú Dóra Þórhallsdóttir, finni, þegar þau nú dveljast með oss.“ (Bergens Arbeiderblad) „Það, sem íslendingum hefir tekizt að skapa á hin- Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.