Heima er bezt - 01.09.1956, Page 22
Frá heimsókn forseta íslands til Noregs: Ásgeir Ásgeirsson forseti, Hákon 7. Noregskonungur, frú Dóra Þórhallsdóttir. Aftari röð;
Ólafur krónprins, Ragnhildur prinsessa, Haraldur prins.
um fáu ferkílómetrum, sem byggilegir eru meðfram
fjörðum og ströndum, er fremur öllu öðru til þess fall-
ið að vekja undrun og aðdáun fyrir hinni harðgerðu
og þrautseigu þjóð. Ef til vill kunnum vér Norðmenn
að rneta þetta öðrum betur. Enda þótt flestir af oss
búi við betra hlutskipti en bræður vorir í vestri, þá
þekkjum við af reynslunni í baráttunni við ófrjóa jörð
og voldug náttúruöfl, hvað þarf til að ná því, sem
gert hefir verið.
Vér kunnum einnig að meta þau menningarafrek,
sem unnin hafa verið samtímis hinum efnalegu fram-
förum. Á tímum hinnar hröðu þróunar, þegar árin
verða að dögum og kílómetrar að metrum, hafa ís-
lendingar, enda þótt þeir hafi sogazt inn í hringiðu
stórpólitíkurinnar og hinnar alþjóðlegu iðnvæðingar,
staðið fast á verði um sérkennilega og stórbrotna menn-
ingu. Ef til vill snertir hún oss meira en aðrar þjóðir.
Vér erum að verulegu leyti af sömu rótum runnir og
tengdir frændsemisböndum. Vér lítum ekki á íslend-
inga sem útlendinga, og sjálfum finnst oss sem vér
séum heima hjá oss í landi jöklanna og hveranna, sem
færzt hefir nær oss en áður síðasta áratuginn.
Það er ástæða til að vona, að vináttuheimsókn annars
forseta Islands, sem hefst í Osló í dag, muni enn auka
þar við. Vér köllum það einmitt vináttuheimsókn, eng-
inn opinber hátíðleiki né nákvæmni í dagskrá getur
svift heimsóknina þeim blæ. Vér treystum því, að Ás-
geir Ásgeirsson forseti og frú hans muni finna það
sjálf. Og vér bjóðum þau velkomin í þeirri von, að
heimsókn þeirra megi bæði treysta hin ævafornu bönd
Til hægri: Frá heimsókn forseta íslands til Danmerkur: íslenzku
forsetahjónin og konungshjónin dönsku í Amalienborg.
302 Heima er bezt