Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 29
Nr. 9-io Heima 309 --------------------------------er bezt---------------------------- Tvær færeyskar trillur með þeirrar þjóðar áhöfnum höfðu bækistöð við Grímsey þetta áðurnefnda vor ng sumar, 1931; hafði önnur fjögurra, en hin þriggja manna áhöfn. Er þessa getið hér af því, að önnur þeirra kemur hér við sögu síðar. Fiskverð var afar lágt og fór alltaf lækkandi um sumarið; síðast var það aðeins 2—4 aurar pr. kg. af þorski afhausuðum og slægðum. Allur annar fiskur var verðlaus og einnig öll lifur. Fiskur sá, er lagður var inn blautur til kaupmanna, var flattur og saltaður í eynni, en síðan fluttur til lands upp úr salti og fullverkaður þar til útflutnings. Sendu kaupmenn á landi sjálfir út skip að sækja fiskinn; fengu Grímseyingar sjálfir vinnu við útskipun og fermingu fisksins. Þessar mildu umskipanir og hrakningar á fiskinum óverkuðum fóru oftast illa með hann, svo að síðustu mun hann oft hafa verið orðin misjöfn vara; þóttust allir tapa á þeim viðskiptum, — kaupendur ekki síður en seljendur. Ekki þarf að taka fram, að síðan þetta var, á heilum aldarfjórðungi, hafa orðið miklar breytingar til bóta í þessu efni. Grímseyingar hafa nú fiskisölusamlag og fiskur verkaður til útflutnings í eynni sjálfri. Ég fékk búðarpláss í Sandvíkinni á lofti í mannauðu húsi og var saltfiskgeymsla undir. Bát fékk ég fremur nýlegan. Það var þriggja manna far með öllum nauðsynlegum farviði, árum, seglum, rá og reiða. Báturinn var með skektulagi, brjóstabreiður, þungur undir árum fyrir einn mann og erfiður á sigl- ingu, einkum í beitivindi, eins og þetta bátalag er yfir- leitt, en að öðru leyti stöðugur á kjöl og ágætis sjóskip. Hóf ég nú róðrana, en með því ég var einn á erfið- um bát og ókunnugur, gat ég vart leitað fyrir mér eða sótt á sömu djúpmið og aðrir mannskapsmeiri; varð afli minn því fremur rýr fyrsta kastið. Svo fór þó um síðir, að ég fann gott mið, er reyndist mér mjög fiskisælt; stóð mið þetta mjög tæpt og glöggt svo hnitmiða mátti, ef vel átti að fara. Varð því að vera vel bjart og þokulaust uppi á eynni, að greina mætti miðin, því varla mátti muna bátslengd. Leggjast varð við stjóra og láta hann falla á þeim rétta stað og því rétta augnabliki, eftir straumhörku og straumstefnum, gefa út eins og þurfti eða draga inn stjórafærið eftir atvikum, unz báturinn sat fastur á þeim rétta púnkti eins og vera átti. Þarna fiskaði ég allt sumarið á þessum eina bletti og oft ágætlega. Engum þýddi að reyna að fiska þar í grennd. Enginn fékk þar fisk annar en ég einn. Þarna, á þessu miði mínu, var sprunga eða gjá í botninum þar sem ég fiskaði. Gjáin var þar 7—8 faðma breið, en mjókkaði til beggja enda og lá þar í hlykkjum, en brattir hamraveggir, 10—12 metra háir á báðar hliðar. Dýpi var um 40 metra. Sandur var á botni gjárinnar á þeim bletti, er ég var vanur að fiska; var þar mest kolótt- ur fiskur, fremur vænn, og gamlir golþorskaslápar inn- an um. En á öðru miði þar örskammt frá, er Klettur kallast, var jafnan hvítur fiskur, fremur smár; var sagt, að aldrei fengist þar öðruvísi fiskur. Eitt var einkennilegt við þetta nýja fiskimið, er ég fann þarna, að oft varð þar ekki vart við fisk klukku- stundum saman, eða jafnvel heil sjávarföllin, eftir því sem á stóð. Ég vandist þessu fljótt og beið bara rólegur, „unz karlinn kæmi heim“ eins og ég sagði það við sjálfan mig. Aldrei var þó eiginlega alveg fiskilaust þarna, enda þótt „heimafólk“ væri burt af bænum. Smáfiskur, sviplíkur hinum, sem annars lét ekki sjá sig, var þá kominn í bæli hins gamla, líklega til að snuðra í úrgangi þeim og leifum, er þeir fullorðnu höfðu eftir skilið. En hvert hafði „heimafólkið“ farið? Það er saga að segja frá því! Það hafði farið langt út í flóa, heila veginn norðvestur í haf, til þess að sækja sér í matinn, en svam svo aftur heim á sinn sandblett í þessari neðan- sjávargjá til þess að liggja þar á meltunni. Svo var mál með vexti, að síldveiða-móðurskip frá Finnlandi, er „Pedsamó“ hét, hafðist við langdvölum norðvestur af Grímsey þetta sumar, oft svo fjarri, að frá Grímsey og út til móðurskipsins var stundum allt að tveggja tíma „stím“ á trillubát. í þessu móðurskipi, „Pedsamó“, var síldin verkuð og söltuð frá öðrum veiðiskipum flotans. Vél, af sérstakri gerð, var höfð í „Pedsamó“ til að hausskera síldina, og var engin vél af slíkri gerð til í nokkru öðru veiðiskipi fyrir Norður- landi. Vélin sneið hausana af síldinni með sérstöku lagi eða sniði, sem var mjög glöggt og auðþekkjanlegt frá öðrum síldarhausum hnífskornum. Þennan veg eða vegalengd, alla leið út til „Pedsamó“, oft 10—15 sjómílur, hafði fiskurinn farið til að gæða sér á síldarhausum. Og aldrei var hann eins gírugur, gráðugur og matlystugur eins og einmitt þegar hann var að koma „heim“ úttroðinn af þessum vélskoma varningi frá Finnunum. Var næsta ótrúlegt allt það magarúm, — frá 30 og allt að 70 hausum niðri í sumuin, eftir magaþani, kjaftvídd, skrokkstærð og öðrum eigin- leikum þorskaþjóðarinnar; rifust þó um að gleypa agnið með önglinum til að fá sig fullreynda, eltandi hvern annan upp að borði. Rifnaði oft illilega út úr kjöftum sumra, og sluppu þeir í það sinn, en létu slíkt ekkert á sig fá, en komu ólmir daginn eftir, ekkert æði kyssilegir, til að fá sig fulldrepna. Var það segin saga, að smáfiskurinn hrökk burt eins og fjaðrafok og hvarf allur á augabragði um leið og sá „stóri“ kom heim í hlaðvarpann. Var betra að hafa hraðann á, að ná sem mestu inn í bátinn meðan „törn- in“ stóð. Oft varð ég var við lúður þarna á „miðinu“ mínu, bæði stórar og smáar, og náði þó nokkrum. Drógust þær oft undir, eftir að ég hafði legið lengi. Oft eltu þær fisk upp að borði, en nenntu svo ekki niður aftur undir eins, en lögðust undir bátinn — kjaftandi í hvern fisk, sem maður dró. Eitt sinn kom ein geysistór alfiskiflyðra upp á eftir fiski og lagðist undir bátinn. Mér þótti hún allt of aga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.