Heima er bezt - 01.09.1956, Side 34

Heima er bezt - 01.09.1956, Side 34
314 Heima ---er bezt leyti verða rímur að endurnýjast eftir þörfum og kröf- um tímans. Og það er ærin ábyrgð að varðveita brag- list okkar og halda henni ljóslifandi. í efnismeðferð geta rímnaskáld margt lært af Eddu- kvæðum og fornum dönsum. Margt má nema af nú- tímaljóðum hvað snertir sagnfræði og málefnaflutning. Það er hægt að læra af öðrum þjóðum, án þess að glata öllum sínum fornu fræðum. Söguleg efni eiga erindi í ljóðagerð nútímans, en engan fýsir lengur að yrkja upp skráðar sögur af nákvæmni, eins og rímnaskáld gerðu og hafði sinn tilgang áður fyrr. Væntanlegum rímnaskáldum væri hollt að lesa ljóð Garcia Lorca, Pablua, Neruda eða annarra snillinga í samtíð. Einnig atómskáldin geta kennt margt; bæði erlend og innlend. Sá, sem ætlar að verða mikið rímna- skáld, þarf að þekkja allt, sem máli skiptir í braglist íslenzkri og bókmenntir þjóðarinnar frá upphafi. Einnig þarf hann að kunna skil á því helzta í menn- ingu nútímans og reyndar ómenningu líka. Þá þavf hann að vera hleypidómalaus og víðsýnn og kunna sér hóf. Hann verður að vera orðhagur maður og hug- myndaríkur og vandlátur um vinnubrögð sín. Þá þarf hann að þekkja skaplyndi fólks og háttsemi og ræða við marga, einkum yngri menn. Enn fremur þarf hann að eiga sér formælendur og stuðningsmenn. Nú er fátt eitt talið af því, sem rímnaskáld nútímans þarf til framgangs og uppreisnar listgrein sinni. Og umfram allt þarf þess með, að fjöldinn allur læri að meta rímur og kunni að greina sundur góðar rímur og illar. Og gott er, að sem flestir yrki rímur eða a. m. k. lausavísur og kveðlinga, það örvar áhugann og er góð skemmtun; auk þess veit enginn hverjum auðnast að yrkja eitthvað markvert. Almenn þátttaka í listum skapar almennan áhuga fyrir listum. Þeir eru til, sem vilja þurrka burt öll sérkenni ís- lenzkrar ljóðagerðar. Það er erfitt að fyrirgefa þessum mönnum, því ég held þeir hljóti að vita hvað þeir gera. Enn fráleitara er sjónarmið þeirra, sem engar nýjungar geta liðið í ljóðlist; vilja hjakka endalaust í sama far- inu. Vafalaust geta íslenzk ljóð lifað góðu lífi við hlið hins erlenda stíls. Stuðluð ljóð eru meginstyrkur íslenzks máls og án þeirra yrði íslenzkan allt annað tungumál en hún er nú. En einhæfni bætir enga list- grein og sitt snið hentar hverjum. Það væri stórt skarð í bókmenntir okkar, ef Jónas Hallgrímsson hefði ekki ort annað en sléttubönd og hringhendur — eða ef Sigurður Breiðfjörð hefði aldrei ort rímur eða stökur. Margbreytni er nauðsynleg í ljóðlist, þó þannig að ekki fari allur stíll út í veður og vind. Við eigum sérstæða menningu að varðveita, menn- ingu, sem hvergi er til nema hér. Að varðveita þessa menningu er sjálfsagt mál og þarflaust að vera með nokkurn gorgeir yfir því. Að glata þessari menningu væri háðungarsneypa svo mikil, að hún yrði eflaust Nr. 9-10 skráð í mannkynssöguna sem dæmi um mestu van- virðu þjóðar — öðrum til varnaðar. Rímnaskáld þessara tíma eiga erfiða daga og óværar nætur. Frá þeim hefur verið tekið flest það, sem rímnamönnum var hagkvæmast áður: Kenningarnar eru farnar að mestu, skáldaleyfin flest ógild — og það, sem mest er vert, kvöldvökurnar úr sögunni. Sá, sem ætlar að byggja á þeim grunni, sem burt var kippt, hann má ekki búast við að verk sín þoli vinda sam- tíðar, enn síður regn og storma framtíðar. Rímna- skáldið verður að finna sér nýtt viðnám og skilja þarfir tímans; um kröfur tímans varðar minna. Og rímurnar verða að gerast hlutgengar á ný, ef þeim er ætlað eitt- hvað, sem gildi hefur. Þær verða að komast til áhrifa á skemmtistöðum og í bókmenntum. Útvarpið gæti margt fyrir rímurnar gert — og rímurnar fyrir útvarpið. Meðan Þjóðleikhúsið gerir ekkert til viðreisnar rím- um, þá rís það ekki undir nafni sínu. Enda má það í mörgu taka nýja stefnu, ef það á að verða annað og meira en einn liðurinn í þeirri starfsemi, sem er að þurrka út íslenzka menningu. Okkur hentar enginn búraskapur, en við eigum að varðveita það, sem bezt er í menningu okkar, þó að við verðum í staðinn að neita okkur um eitthvað af þVí glingri, sem nú býðst. Berðu mína kveðju eftir Sigrúnu Björgvinsdóttur Vestanvindur, veiztu hve mig langar austur yfir fjöll að fylgja þér? Hvaðan komstu, hvert er för þín búin? Vestanvindur, viltu dveljast andartak hjá mér? Vestanvindur, veiztu að fyrir handan er mín bjarta Ijúfa bernskusveit? Lítill dalur, luktur bláum fjöllum. Vestanvindur, veiztu hve mín þrá er djúp og heit? Vestanvindur, vertu hlýr og mildur, signdu allt með söngva þýðum hreim. Kysstu tún og kjarrivaxnar hlíðar. Vestanvindur, viltu bera kveðju mína heim?

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.