Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 35
HÁKON GUÐMUNDSSON, hœstaréttarritari: BlaSaS i DÓMSMÁLUM Ijúnímánuði árið 1951 var togari frá Reykjavík að veiðum út af Garðskaga. Veður var gott og sjó- lítið. Verið var að taka inn toghlerana og hafði einn skipverja það starf á hendi að taka á móti fremri toghleranum og festa hann í toggálgann með svonefndri gálgakeðju. Þegar hlerinn var kominn hæfi- lega hátt, kveðst hásetinn hafa tekið gálgakeðjuna með vinstri hendi og rétt hana gegnum hlerahöldin, en hins- vegar rétt hægri höndina gegnum aftara hlerahaldið til að taka á moti keðjunni. En áður en hann hefði náð til hennar með hægri hendi sinni, hafi hlerinn dregizt dálítið hærra upp og þumalfingur hægri handar þá festst milli haldanna. Skipverjinn kallaði þá upp og gerði viðvart um festuna. Var hlerinn þá látinn síga niður, en ekki nóg til þess, að fingurinn losnaði, og allt í einu lyftist hlerinn upp aftur, með þeim afleiðingum, að hægri höndin klemmdist milli hierahaldanna og gálgarúllunnar. Meiddist hásetinn svo stórkostlega, að taka varð af honum höndina mánuði síðar. Hásetinn taldi, að útgerðarfélagið væri skaðabótaskvlt vegna slyss þessa, þar sem það hefði hlotizt af mistök- um annarra skipverja í starfi þeirra í umrætt skipti, en orsök slyssins hefði verið mistök manna þeirra, er fótu með stjórn á vindu skipsins. Þeir hefðu dregið hlerann upp, rneðan hann fyrst var að koma gálgakeðjunni fyrir, og hafi það verið frumorsök slyssins, en aðalmeiðslin síðan hlotizt, er hlerinn hafi verið dreginn upp í síðara sinnið, í stað þess að láta hann þá síga niður. Á þessum mistökum starfsmanna sinna eigi útgerðin að bera ábyrgð. Nam skaðabótakrafa hásetans á hendur útgerð togarans alls 552 þús. króna. Af hálfu útgerðar togarans var krafizt sýknu af kröf- um hásetans. Færði útgerðin það fram sér til sýknu, að hásetinn hefði sjálfur átt alla sök á slysi þessu, þar sem hann hefði ekki beitt réttum handtökum við verk sitt. Auk þess mótmælti útgerðin almennt bótaskyldu sinni. Mál þetta var í héraði dæmt í sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur. Skipuðu dóminn í máli þessu, hinn reglu- legi héraðsdómari og tveir sérfróðir menn, sjómaður og skipstjóri. Sjódómurinn komst að þeirri niðurstöðu, að það yrði eigi örugglega ráðið af gögnum málsins, hvernig hönd hásetans hefði upphaflega festst. Hins vegar var talið ljóst, að mistök vindumanna hefðu vald- ið því, að hlerinn dróst upp og klemmdi höndina svo mjög, sem raun gaf vitni um, er þeir vindumenn hefðu einmitt átt að láta hann síga niður. Þá taldi sjódómur- inn, að starf það, sem hásetinn hafði á hendi, er slysið varð, væri verulega hættulegt, en ekki yrði séð, að hann hefði sýnt vangæzlu við framkvæmd þess. Þar sem slysið varð þannig að öllu leyti rakið til mistaka vindumannanna, féll öll fébótaábyrgð á því á hendur útgerðinni og var hún dæmd til þess að greiða hásetan- um kr. 390.000.00 í bætur. Útgerðin skaut máli þessu til Hæstaréttar og gekk dómur þar fyrir skömmu. Urðu úrslit málsins þau, að héraðsdómurinn var staðfestur. Taldi Hæstiréttur það fram komið í málinu, að há- setinn hefði, er slysið varð, beitt sömu handtökum við vinnu sína, sem hann hefði áður verið vanur, og venja hefði verið að beita, um borð í togaranum, án þess að það hefði sætt aðfinnslum skipstjóra. Þar sem þessu var þannig farið, starfið hættulegt og mistök hjá vindu- mönnum, svo sem áður var rakið, þótti útgerðin eiga að bera alla fébótaábyrgð vegna slyssins. Var henni því, eins og sagt var, gert að greiða 390.000.00 krónur í bætur og 28 þúsund krónur í málskostnað fyrir báð- um dómum. Hin milda vélvæðing þessarar aldar veldur því, að notkun véla er orðinn svo snar þáttur í framkvæmd- um öllum og framleiðslu til lands og sjávar, að varia finnst sú vinnustöð, að ekki sé þar að meira eða minna leyti beitt vélknúnum tækjum. Af þessu leiðir, að fjöldi karla og kvenna eiga velferð og líkamsheill sína undir því, að vel sé frá þessum vélum gengið og gæzla þeirra í öruggum höndum. Hafa og af stjórnarvalda hálfu verið settar margvíslegar reglur, er til öryggis miða. En þrátt' fyrir margháttað eftirlit af hálfu hins opinbera og góðan vilja þeirra, er með verkstjórn fara, koma þó alltaf öðru hvoru fyrir slys, sem unnt hefði verið að forðast, ef fullrar varkárni og aðgæzlu hefði verið gætt. Fyrir dómstóla koma atvik þessi venjulegast með þemi hætti, að þeir, sem fyrir slysum hafa orðið, krefjast bóta. Dómar í slíkum málum geta oft verið lærdómsríkir og falið í sér lífsreglur, sem komið geta í veg fyrir slys og óhöpp, ef þessum reglum er nægur gaumur gefirm. Þeirri reglu hefur því verið fylgt um val á dómum til frásagnar hér á þessum vettvangi, að taka til meðferðar sem flest mál út af slysum á vinnustöðum. í þetta sinn verður fyrir valinu skaðabótamál út af slysi, sem varð við brúarsmíði haustið 1949. I septem- bermánuði þetta ár var unnið að því að bvggja brú yfir Múlaá í Skriðdal. Var brúarsmiðin á því stigi, að Heima er bezt 315
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.