Heima er bezt - 01.09.1956, Síða 41

Heima er bezt - 01.09.1956, Síða 41
Með þessu hefti byrjar nýr þáttur í „Heiraa er bezt", sem er fullkominn nýjung í íslenzkum tímaritum. Hann hefur hlotið nafnið Hvað ungUr nemur. Eins og nafnið bendir til, er hann einkum ætlaður æskufólki, aðallega á aldrinum 12—16 ára, en bæði eldri og yngri munu þó geta notið hans. Hinn góðkunni skólamaður, Stefán Jónsson náms- stjóri, annast ritstjórn þáttarins, en hann mun flestum k.unnugri, af langri skólareynslu, áhugamálum æskufólksins og hvers kyns lestrarefnis það helzt muni óska. Efni þátt- arins verður greinar um land og þjóð, þar sem saman er fléttað landlýsing og saga, þjóðsagnir og skáldskapur, eftir Jtví sem efni standa til; þá verða þar sögur, stuttar og langar, t. d. framhaldssaga, heilabrot, gátur, reiknings- þratitir, tafl- og spilaþrautir, föndur, allt prýtt myndum eftir föngum, o. fl., eftir því sem unnt verður að fá efni liverju sinni. Hafa ýmsir góðkunnir menn heitið þættin- um stuðningi sínum. Stærð þáttarins í hverju hefti verður um 8 síður. Mikið er nú rætt um lestrarefni unglinga, en mest af þeim umræðum hefur snúizt í eina átt, þá að fordæma tiltekið lestrarefni. Boðorðið hefur verið þetta: „Þú skalt ekki“ lesa þetta eða hitt. Ætlun vor er að gera tilraun, sem er jákvæð, ekki banna neitt eða vara við því, en leit- ast við að beina lestrarfýsn unglinganna inn á þær brautir, með aðgengiiegu lestrarefni, sem gefur þeim eitthvað til gagns og skemmtunar í senn og beini jafnframt húg þeirra að þjóðlegum verðmætum. Oss væri kært, ef lesendurnir sjálfir vildu senda oss álit sitt á þessari nýbreytni, ásamt tillögum sínum og óskum. Mun verða reynt að mæta óskum þeirra eftir föngum. Útgefandi. heillastað, en marga þekki ég, sem telja að óskir, fram- bornar á Helgafelli, hafi rætzt á undraverðan hátt. Ég nefni hér aðeins einn vitnisburð af mörgum. Sumarið 1924 komú til mín tveir danskir kennarar og dvöldu hjá mér í Stykkishólmi einn fagran sumardag. Ég gekk með þeim á Helgafell. Ég sagði þeim í stuttu máli sögu Helgafells og sérstáklega um Helgafell sem óskastað. Þeir gengu hljóðir og hugsandi á Fellið og fylgdu nákvæmlega öllum reglum. Veður var ágætt og útsýn af Fellinu undrafögur. Þjóðtrúin og fegurð héraðsins heillaði þessa ungu, dönsku kennara. Sumarið eftir fékk ég bréf frá öðrum þeirra, sem var búsettur á eyjunni Mön. f bréfinu stóð meðal annars þetta: „Ógleymanleg er mér koman á Helgafell. Fegurri út- sýnar hef ég aldrei notið. Þakka þér fyrir sögurnar um Helgafell. Ég tréii því nú fastlega að Helgafell sé óska- staður. í fyrrasumar, þegar ég gekk á Helgafell, taldi ég vonir mínar brostnar. í hljóði bar ég fram óskir mínar á Helgafelli, og vonir mínar rættust.“ Þetta sagði danski kennarinn í bréfi til mín. Ef til vill eru margir sama sinnis. Kirkja hefur verið á Helgafelli frá því á landnáms- öld, og um skeið var þar nunnuklaustur. F.in af mörgum þjóðsögum um Helgafell er sagan um tröllkonuna í Grímsfjalli, sem vildi granda kirkj- unni. En sagan segir þannig frá: „Þegar kirkja var fyrst reist á Helgafell, átti tröll- kona ein heima í Grímsfjalli. Henni varð strax illa við kirkjuna og þó sérstaklega við klukknahringingarnar, því að þegar kirkjuklukkunum var hringt á Helgafelli, þá dró úr henni allan mátt, og hún gat sig hvergi hrært. Hún ákvað því með sjálfri sér að granda kirkjunni með grjótkasti. Einn góðan veðurdag velur hún sér allvænan stein, sem vel mætti kalla klett, og varpar af hendi af fjalhnu og stefndi á kirkjuna. Ekki hafði hún þó reiknað fjar- lægðina rétt út, því að steinninn féll niður á svonefnd Vogaskeið og er það unt 2—3 km frá Helgafelli. Er þessi steinn enn til sýnis og er allvænn ldettur eins og fyrr segir. Þreif þá tröllkonan annan stein, miklu minni, og varpaði honum af miklu afli, en sá steinn flaug langt yfir Helgafell og féll niður út í Hvítabjarnarey, en hún er skammt frá Stykkishólmi,og er steinninn þar enn sýnilegur, skorðaður í glufu á bjargbrún í eynni. Hefur steinn þessi flogið um 5 km yfir markið. Þá reiddist tröllkonan og þreif þriðja steininn og. ætl- aði að varpa honum á kirkjuna og hefði þá vafalaust hitt, en þá vildi svo vel til, að hringt var kirkjuklukk- um á Helgafelli, og dró þá allan mátt úr skessunni, svo að hún gat ekki hreyft steininn. Reyndi hún aldrei framar að granda Helgafellskirkju.“ Útsýn frá Helgafelli er víð og fögur, eins og fyrr segir. í norðurátt blasir Hrappsey við sýn. Þar var að fornu höfðingjasetur, og einu sinni var þar prent- smiðja. Á bak við Hrappsey sjást tveir einkennilegir, strýtumyndaðir stapar. Þetta eru svonefndir Dimonar- klakkar, en þeir eru oftast í daglegu tali nefndir Klakk- ar, og eyjarnar í kringum þá Klakkeyjar. Þessir klakkar eru dálítið misháir, en svipaðir í útliti. Dimon er ein- kennilegt orð, og merkir það tvífjöll. Austur við Mark- arfljót eru tveir svipaðir stapar, og eru þeir kallaðir Stóri-Dimon og Litli-Dimon. Þorvaldur Thoroddsen telur að Klakkarnir við Hrappsey séu yfir 180 fet á hæð, eða um 60 metra háir. Á milli klakkanna, er djúpur leynivogur eða lón. Þar leyndi Eiríkur rauði skipi sínu síðustu dagana áður en hann lagði upp í sinn fyrsta Grænlandsleiðangur. En um veturinn hafði hann fullbúið skip sitt í Eiríksvogi í Öxney, þar sem hann bjó. Þegar litið er yfir eyjarnar í mynni Hvammsfjarðar frá Helgafelli, þá virðast þær eins og samfellt land, en milli eyjanna eru þó víða skipgeng sund, og stórskipa- leið liggur milli eyjanna inn á Hvammsfjörð. Heitir leiðin Röst, þar sem hún er þrengst. Er þar straumur svo stríður, að stærstu vélskip draga ekki út eða inn Röstina á móti straumi, þegar fallið er harðast. Skipin fara því jafnan út og inn um straumskiptin, um háflæði. Stærsta byggða eyjan í Suðureyjum heitir Brokey. Þótt aðaleyjan heiti þessu nafni, þá fylgja jörðinni marg- ar smærri eyjar, sem hver heitir sínu nafni. í Látrum í Vestureyjum eru 300 hólmar og eyjar, sem gras vex á í „landareign“ jarðarinnar. Auk þess er mikill fjöldi skerja og flúða, sem koma upp um fjöru. Byggð í Breiðafjarðareyjum hefur mjög eyðzt á síð- Heima er bezt 321

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.