Heima er bezt - 01.09.1956, Síða 45
Höfundur: TOP NAEFF . ÞýSandi STEFÁN JÓNSSON, námsstjóri
BhJyJU
SKOLASAGA FRA HOLLANDI
OG
VIN STÚLKUR
HENNAR
I.
GLÆSTAR VONIR.
eima hjá Jóhönnu var fámennt boð. Við borð-
ið sátu þrjár beztu vinstúlkur hennar: Lilja,
Nanna og Jenný van Marle.
„Það gat ekki verið verra, sagði Jenný, um
leið og hún hallaði sér fram á borðið. „Að fá nýjan nem-
anda í sæti hjá sér í byrjun upplestrarvikunnar. Ég hefði
miklu heldur viljað sitja ein við mitt borð. Þá hefði
ég líka getað lyft hnjánum óhindrað og lesið á bókina,
án þess nokkur tæki eftir í tímunum. Nýjan, ókunnan
skólafélaga getur maður eltki beðið um hjálp, svona
fyrstu dagana. — Áttu ekki meira te, Jóhanna? Það gerir
ekkert til, þótt það sé þunnt. — Hún verður áreiðanlega
undrandi þessi nýja stúlka, þegar hún kemst að því,
hve samtaka við erum í því „að svindla“ í skólanum.
Já, ég verð að segja það, að ég er píslarvotturinn í
þessum sorgarleik. Áð skrifa á miða til vinstúlku minn-
ar í tímunum lcemur ekki til mála fyrir mig.“ Jenný
hætti snögglega að barma sér og leit í kringum sig og
beið þess, að einhver hreyfði andmælum, en Lilja og
Nanna sögðu samtímis:
„Nei, vitanlega ekki.“
En heimasætan Jóhanna van Laer — ljóshærð og
falleg, bætti við og dæsti:
„Nei, — það er alveg af og frá.“
Jóhanna var sú eina í þessum hópi, sem aldrei hafði
rangt við í skólanum. Hún hvíslaði aldrei. Hún leit
ekki á miða, sem lagðir voru á borðið hjá henni, og hún
bað aldrei um aðstoð. Aldrei bar hún saman við aðra
útkomu úr dæmum í skriflegum reikningstímum. Hún
var hlýðin og óskeikul. Lilja kallaði hana „engilinn11,
en Jenný kallaði hana „kredit“, því að aldrei skuldaði
hún neinum neitt. Hún var jafn vel undirbúin á mánu-
dögum sem aðra daga vikunnar. Framkoma hennar var
alltaf óaðfinnanleg. Háttprúð og elskuleg var hún, hvar
sem hún kom og vakti athygli allra. Búðarfólkið tók
henni eins og háttsettri frú,og í hverri ritfanga- og sæl-
gætisbúð, var hún svo vel kynnt, að hún gat fengið
smálán, ef henni lá á. Ef þær stallsystur þurftu nauð-
synlega að fá eitthvað, sem þær gátu ekki greitt sam-
stundis, þá var Jóhanna alltaf send inn í búðina til að
biðja um lán. Virðuleg og hlýleg framkoma hennar
vakti traust, og enginn gat neitað henni um neitt. Jó-
hanna vissi þetta sjálf og tamdi sér háttprýði í fram-
komu og snyrtilegan klæðaburð.
„Þessi nýja stúlka væri líklega ágætur félagi fyrir
Jóhönnu,“ gall allt í einu við í Jennýju. „Svona virðu-
leg, falleg stúlka, sem aldrei þorir að hreyfa hönd né
fót, nema eftir settum reglum, væri hæfilegur sessu-
nautur fyrir engilinn hana Jóhönnu.“
„Á ég að hafa sætaskipti við þig,“ greip Jóhanna
fram í, vingjamlega eins og hennar var vani, og um
leið leit hún á vel snyrtar hendur sínar og brosti hlý-
lega.
Skap Jennýjar léttist við þetta óvænta tilboð. Hún
leit brosandi til Jóhönnu og sagði: „Þú ert góður félagi
„kredit“, þetta er vel boðið, og ég þakka kærlega boð
þitt, en hvaða ástæðu getur þú fært fram fyrir tilboði
þínu?“
„Segðu bara, að það sé svo mikill dragsúgur, þar sem
við sitjurn," sagði Nanna, sem alltaf var svo ráðsnjöll,
þegar á reyndi.
„Nei, þá segði ég ósatt,“ sagði Jóhanna með áherzlu.
„Ég nefni enga ástæðu, ég bara býð þetta.“
„Þið þurfið ekki að halda, að ykkur heppnist að fá
Jennýju flutta í sæti Jóhönnu í aftasta bekk. Nei, ung-
frú Veronika skilur fyrr en skellur í tönnum,“ skaut
Lilja inn í samtalið. Hún sat ætíð í fremstu röð, var í
góðu áliti í skólanum og fékk góðar einkunnir, en hún
gat illa unað því, að Jenný fengi að flytja sig í aftasta
bekk, þar sem hún gat hagað sér eins og henni sýndist
og gert, hvað sem hún vildi, án þess kennarinn sæi.
„Ef ég er ekki hæf til að setjast í þetta heiðurssæti
Jóhönnu,“ sagði Jenný um leið og hún reis upp og
leit yfir hópinn, „þá verð ég kyrr í mínu sæti í annarri
röð. Það er þó alltaf betra en sitja í jremsta sæti,“ bætti
hún við, og fjörlegu, brúnu augun skutu gneistum, er
hún leit til Lilju. „Ef til vill verður þessi nýja stúlka
ágætur sessunautur, sem lofar mér að gægjast á bók-
ina og hvíslar, ef maður kemst í þrot.“ Jenný þóttist
reyndar vita með sjálfri sér, að svona yrði þetta ekki,
Heima er bezt 825