Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 32

Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 32
seinast fram úr því, aðeins borðið og tveir kassar til að sitja á. Geirlaug bar fyrir þá pottbrauð og smjör og sætt skyr og nýmjólk. „Alltaf er skyrið jafngott hjá þér,“ sagði Hartmann. „Ellegar pottbrauðið, þvílíkt indæli.“ „Hvernig gengur nýju ráðskonunni að baka brauðið og búa til skyrið?“ spurði Geirlaug dálítið kímin. „Ja, ef þú átt við Asdísi gerir hún lítið að því að hugsa um matinn. Kerlingargarmurinn gerir það. Það kom þarna kona og óskaði eftir húsmennsku hjá okk- ur. Það var talsvert lán að fá hana,“ sagði Hartmann. „Mér þykir vænt um að heyra það að Arndís fékk einhverja hjálp við bæjarverkin, hún er engin mann- eskja til að hugsa um þau með barninu,“ sagði Geir- laug. „Kunna ekki kýrnar vel við sig?“ „Jú þær kunna bærilega við sig. Ég var nú svo skyn- samur að reka þær í landareignina með aðfalli," sagði hann. Kristján lagði ekkert til málanna, heldur gekk inn í baðstofu án þess að biðja um leyfi. Það var heldur eyði- legt um að litast, aðeins sængurföt í einu rúmstæðinu. En gólfið var hvítskúrað há Geirlaugu. Það voru ekki margir til að óhreinka það fyrir henni núna. Hann ætlaði að líta inn í hjónahúsið en það var læst og lyk- illinn hvergi sjáanlegur. Hvaða erindi átti hann svo sem þangað inn, útrekinn ræfill úr paradís. Hann sneri fram aftur. Þau voru eitthvað að tala um kýmar enn þá. „Hvenær áttu von á nýja húsbóndanum, Geirlaug mín?“ spurði hann. „Hann hlýtur nú að fara að koma, ef hann ætlar nokkuð að hafa fyrir því,“ sagði Geirlaug. „Annars kann ég vel við mig meðan nóttin er svona björt.“ „Hver lét þig hafa þessa nýju skilvindu?“ „Stefán í Þúfum kom með hana strax daginn eftir að ég varð einbúi. Mér þótti vænt um það. Ég hefði orð- ið í vandræðum með mjólkina.“ „Hver geymir reyfin af kvígildisánum og þeim sem tilheyra Rósu?“ spurði Kristján. „Þau eru flutt heim í skemmuna hérna og ég læsi henni svo enginn komist þangað inn,“ sagði Geirlaug og brosti. „Hvað skyldi þessi skollaleikur eiga að þýða, því enginn annar en Stefán verður ábúandinn,“ sagði Hart- mann gamli. Svo kvöddu þeir og fóru suður að stekknum. Ásdís var búin að troða reyfunum í þrjá poka þegar þeir komu og var talsvert aðsópsmikil. „Það er naumast þið voru tíma heima hjá kerlingunni,“ sagði hún. „Ég hafði nú enga löngun til að éta glundrið hjá henni.“ „Þér finnst þú eitthvað hafa stækkað síðan þú fluttir að Bakka. Þú hafði þó góða lvst á matnum hjá henni í vetur hefur mér sýnzt,“ sagði Hartmann. „Ég fór heim að Bala og fékk mér þar kaffi,“ sagði hún. Kristján skipti sér ekkert af samræðum þeirra, held- ur fór að hugsa til heimferðar. Kerran var hlaðin af pokum og flutt á klökkum líka og varð þó að skilja eftir nokkra poka. Það ætlaði gamli maðurinn að sækja daginn eftir. Kristján óskaði þess að hann þyrfti aldrei að sjá Hof framar. Hann hefði átt að flytja eitthvað svo langt í burtu að hann hefði aldrei heyrt neitt frá þessari sveit. Ásdís var fjarska kát á heimleiðinni, söng og gaspr- aði um allt sem henni datt í hug við Hartmann gamla. Kristján talaði ekki orð frá vörum alla leiðina. „Ekkert skil ég í þér Kristján að þú skulir aldrei láta heyrast til þín, annar eins söngmaður og þú varst og ert náttúrlega enn þá. Það er nú heldur mikið að taka sér svona nærri þó konan færi frá þér. Hún var víst ekki það ,metfé‘ heyrist mér á fólkinu hérna í sveitinni,“ sagði hún. Þá sveiflaði Kristán svipunni yfir herðar henni og sagði: „Geturðu aldrei haldið þér saman eða verið svo langt frá mér, að ég heyri ekki til þín.“ Það buldi náttúrlega ekki á beini, því hún var vel klædd, en klárinn tók viðbragð þegar hann heyrði hvininn í svipunni og skeiðaði inn bakkana. Eftir það var hún á undan og söng ekki framar. En Hartmanni gamla var nóg boðið: „Þú bara lem- ur hana svona eins og bykkju,“ sagði hann ávítandi. „Hún getur líklega látið það vera að lítilsvirða Rósu, ómyndin sú arna,“ sagði Kristján. „Ég er smeykur um að hún byndi ekki skóþvengina sína hjá þér lengi ef þú kemur svona fram við hana.“ „Mér þykir það ólíklegt að þú sért ekki búinn að sjá það að ég yrði þeirri stundu fegnastur, sem hún færi frá augunum á mér,“ sagði Kristján. „Það er ekki gaman að losa sig við tryggan hund en það hefur maður þó séð að kvenfólkið er ekki betra viðureignar. Þú ættir þó að virða dugnaðinn hennar, hann er mikill.“ „Ég er orðinn sárleiður á honum eins og öllu öðru í fari hennar fyrir löngu,“ sagði Kristján. Þeir riðu þegjandi, hálfsofandi, nokkra stund. Þá reis sólin upp og gyllti haf og hauður. „Það má nú segja að það er vorfallegt hérna á Ströndinni," sagði gamli maðurinn loðmæltur af svefni. „Það er með það eins og dugnaðinn hennar Ásdísar. Ég er hættur að sjá það fyrir löngu,“ svaraði Kristján. „Það er nú varla hægt annað en sjá það hvoru tveggja. Þú mátt ekki láta bölvað ólánið buga þig svona maður. Taktu Ásdísi í bólið til þín þó hún sé ekki eins fín eins og hin. Hún er ekki ógeðslegur kven- maður,“ sagði Hartmann. „En ég er hræddur um að það hafi fokið illilega í hana við þig sem von var til. Það hyllir undir hana langt inni á Strönd.“ „Slíkt kemur ekki til nokkurra mála að ég skipti mér af þeirri manneskju framar,“ hreytti Kristján út úr sér. Þegar þeir komu í hlaðið stóð reiðhestur Ásdísar bundinn við hestasteininn. Söðlinum hafði hún sprett af og hent honum á hlaðið. Það var söðullinn hennar Stínu gömlu á Bala. Hvort hann var orðinn eign Ás- dísar vissi enginn. Framhald. 476 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.