Heima er bezt - 01.12.1960, Síða 34
Glæsilegur vinningur í nýju „Heima er bezt“ verðlaunagetrauninni
SUPERMATIC
SAUMAVÉL
að verðmæti kr. 8.100.00
í þessu hefti byrjum við á nýrri
verðlaunagetraun, og að þessu
sinni eru verðlaunin alveg sér-
staklega eftirsóknarverð.
ELNA heimilissaumavélin er
þekkt og dáð um allan heim,
enda er ELNA supermatic fvrsta
sjálfvirka saumavélin í heimin-
um. Að eignast eina mun auka
hamingju yðar, og nú gefst
áskrifendum ,,Heima er bezt“
óvenjulegt tækifæri til að eignast
þessa stórkostlegu saumavél
hér um bil fyrirhafnarlaust,
og algjörlega ókeypis, með því að
taka þátt í hinni skemmtilegu
getraun sem hefst í þessu hefti.
Öldum saman voru fornsögurnar eftirlæti þjóðarinnar.
Þær voru ,,langra kvelda jólaeldur", sá ylur, sem þjóðin
ornaði sér við andlega. Þeim eigum vér að þakka öðrum
fremur varðveizlu tungu vorrar og þjóðerniskenndar. Og
enn eru íslendingasögur, þrátt fyrir breyttan smekk, hið
sígilda lestrarefni ungum og gömlum. Ymis orðtök og setn-
ingar úr þeim hafa legið almenningi á tungu kynslóð eftir
kynslóð. Getraun „Heima er bezt“ að þessu sinni, er úr
fslendingasögum. Hún verður lítilsháttar prófsteinn á hver
ítök þær eiga i hugum þjóðarinnar, og hversu tiltæk þekk-
ing manna er á þeim.
Getraunin verður í fjórum þáttum, og verða þrjár spurn-
ingar í hverju hefti. Skrifið niður svörin og geymið þau
þar til allar spurningarnar hafa verið birtar. Og hér koma
þá þrjár þær fyrstu: Hverjir sögðu eftirfarandi, og úr hvaða
sögum eru setningamar:
1. „Fögur er hlíðin, svá at mér hefir hún aldrei jafnfögur
sýnst — bleikir akrar en slegin tún.“
2. „Þar launaða ek þér lambið grá.“
3. „Nú falla vötn öll til Dýrafjarðar.“
Aukaverðlaun í getrauninni verða
íslendingasögumar, 13 bindi.
478 Heima er bezt
Takið þátt í þessari skemmtilegu getraun.
Framhald getraunarinnar birtist í næsta blaði.