Heima er bezt - 01.01.1968, Qupperneq 11
Úr byggðasafninu í Görðum.
sr. Hannesar Stephensen á Hólmi. Við það borð hefur
hann setið yfir púnsi og spilum með skólapiltum, sem
hann bauð að vera um jólin af því að þeir komust ekki
heim til sín.
Þar er kistill frú Þórunnar Ríkharðsdóttur í Höfn,
hinnar víðsýnu gáfukonu, smíðaður af hagleiksmannin-
um föður hennar, Ríkharði Þórólfssyni í Árnagerði í
Fáskrúðsfirði.
Þar er rokkm, sem Torfi í Olafsdal smíðaði handa
dóttur sinni, Ragnheiði í Arnarholti.
Svona mætti lengi telja.
En vitanlega er safnið í Görðum ekki merkilegt fyrir
það, að þar séu fáeinir merkisgripir nokkurra merkis-
manna. Það er að vísu gaman að eiga skrifpúlt lærdóms-
og fræðimanna, kommóður og kistur hefðarkvenna og
fleira því um líkt. En það sem gefur þessu safni, eins
og öðrum byggðasöfnum, raunverulegt gildi sitt, er
vitanlega það, að þar er brugðið upp fyrir okkur mynd
af lífi og lífsbaráttu alþýðunnar í landinu eins og hún
var háð um aldaraðir og framundir okkar daga, þegar
torfið og timbrið var eina byggingarefnið, þegar taðið
og mórinn, þangið og þarinn var eina eldsneytið, þegar
vöðvaaflið var eini vinnukrafturinn og þegar guðstrú
og nægjusemi leystu þegjandi og hljóðalaust öll próblem
lífsins.
Sr. Jón jM. Guðjónsson er fæddur á Brunnastöðum á
Vatnsleysuströnd 31. maí 1905. Foreldrar hans voru
Guðjón Pétursson útvegsbóndi, bónda að Nýjabæ og
Heima er bezt 7