Heima er bezt - 01.01.1968, Side 12

Heima er bezt - 01.01.1968, Side 12
Holt undir Eyjafjöllum. Til hœgri: minnismerkið um Holts- kirkju. Brekku í Vogum og kona hans Margrét Jónsdóttir frá Hópi í Grindavík Guðmundssonar. Hún var ljósmóðir á Suðurnesjum í 40 ár. Minnist sr. Jón móður sinnar með því að láta upphafsstaf hennar fylgja nafni sínu. Sr. Jón lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1929 og guð- fræðiprófi 1933 með fyrstu einkunn. Þann 16. júlí s. á. var hann vígður aðstoðarprestur sr. Þorsteins Briem en vorið eftir var honum veitt Holt undir Eyjafjöilum, þar sem hann var prestur næstu 12 árin. Þar gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og sýslu, sat í skólanefnd, sýslunefnd, stjórn Sjúkra- samlags, stjóm Skógræktarfélags o. s. frv. Frá 1. ágúst 1946 hefur hann verið sóknarprestur á Akranesi eins og fyrr er sagt þar sem mörg störf hafa hlaðizt á hann eins og t. d. formennska í Fræðsluráði og Menningarráði, stjórn Hallgrímsdeildar, kennsla við gagnfræðaskóla o. fl. Brunnastaðir á Vatnsleysuströnd Þann 18. október 1930 kvæntist sr. Jón og gekk að; eiga Lilju Pálsdóttur bátasmiðs í Reykjavík. Þau hafa eignazt 11 börn. Elzta barnið, Ásta, dó ung- barn. Hin eru: Pétur, vélvirkjameistari, Kópavogi, kvæntur Margréti Veturliðadóttur. Margrét, handavinnukennari á Akranesi. Sjöfn, kona sr. Björns Jónssonar í Keflavík. Ólttfur, vélvirki í Ytri-Njarðvík, kvæntur Svönu: Jakobsdóttur. Helga, rannsóknarstúlka í Sementsverksmiðjunni. Þórunn, gift bankamanni í Arlington, U.S.A. Valdimar, loftskeytamaður hjá Landhelgisgæzlunni,. kvæntur Jónu Margréti Guðmundsdóttur. Gyða, rannsóknarstúlka hjá Sementsverksmiðjunni. Edda, gift Guðmundi Hermannssyni kennara á Eiðum. Jóhanna, búðarstúlka á Akranesi. Stundum er það svo um fjölhæfa menn að þeim geng- ur ekki alltaf vel að hasla sér völl í lífinu, takmarka sig við ákveðið og afmarkað starfssvið. Ef til vill kann svo að hafa verið um sr. Jón Guðjónsson. Að minnsta kosti mun hann um stund hafa hugsað sér að nema læknis- fræði og er ekki að efa, að nýtur maður hefði hann orðið á því sviði. Hitt er ekki síður augljóst, hve vel hann hefur notið sín í prestsstöðunni. Hann kann vel að vera samverkamaður að gleði safnaða sinna. Hann er líka ríkur af skilningi á erfiðleikunum, hann á mikla samúð með hinum sorgbitnu og hluttekning hans er einlæg með börnum vonbrigðanna. Hann er sá gæfumaður að hafa getað hrundið áhugamálum sínum í framkvæmd, séð hugsjónir sínar rætast. En það er að þakka mark- vissri, fórnfúsri forustu hans og hæfni hans til að sam- eina fólkið um framgang heillaríkra og þjóðlegra menn- ingarmála. Vigsla sjómannaminnismerkisins á Akranesi. 8 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.