Heima er bezt - 01.01.1968, Side 14

Heima er bezt - 01.01.1968, Side 14
Hinar öru samgönguí nútímans greiða mjög fyrir dreifingu ýmissa dýra. Sjóflugvélar fljúga milli stöðu- vatna, og smádýr geta borizt bæði með flotholtum og fiskinetum. A sumrin tíðkast útilegur og bílaferðir. Bátar eru fluttir milli vatna á bílum eða bílkerrum. Vér tökum með oss drykkjarvatn úr stöðuvatni eða læk í flöskur eða önnur hylki, sem vér svo tæmum leifarnar úr í öðru vatni, þegar vér endurnýjum drykkinn. Allt slíkt léttir smádýrunum mjög að dreifast. En um leið verður miklu erfiðara fyrir líffræðinginn að útskýra dreifingu tegundanna um landið. Þess vegna er bráð- nauðsynlegt, að þekkja útbreiðslusvæði þeirra eins og þau voru áður en samgöngurnar urðu svo tíðar sem nú er, og áhrifa mannsins á náttúru landsins tók að gæta. Landnámi vatnadýranna er ekki lokið í Noregi. I bæ einum í Suður-Noregi verða menn fyrir miklum óþæg- indurn vegna snigla í neyzluvatninu. Snigill þessi, sem er um hálfur sentimetri á lengd, er stöðugt að dreifast urn Evrópu. Fyrst varð hans vart í Noregi 1954 og hann mun vissulega leggja fleiri vatnasvæði undir sig, er tím- ar líða fram. — Ymsar tegundir vatnadýra, sem lifa í Evrópu hafa enn ekki náð til Noregs. Þar á meðal er flökkuskelin. Samlokuskel þessi lifir í ósöltu vatni og er, og áhrifa mannsins á náttúru landsins tók að gæta. ótrúlega hratt út um Evrópu, og veldur oft stórtjóni, með því að fylla vatnsleiðslur. Vér vitum lítið um, hvaða vatnasvæði í Noregi bjóða dýrategundum þess- um hagstæð lífsskilyrði. Einstök stöðuvötn og ár eru sérstök að eiginleikum. Slík vatnasvæði eru ómetanleg fyrir vísindamennina. Sem dæmi mætti nefna Borrevatnið hjá Horten. Það er mjög næringarauðugt. Vatnið er um 4 km langt og um 15 metra djúpt, þar sem dýpst er og yfirborð þess 9 metra yfir sjávarmáli. í vatni þessu lifa um 300 teg- undir smádýra og 7 tegundir fiska. Fuglalíf er þar mjög auðugt. Flest botndýrin, svo sem sniglar, samlokuskelj- ar og skordýr halda sig aðallega á grynningunum, þar sem botninn er þakinn gróðri. Gróðurbeltið nær yfirleitt niður á þriggja metra dýpi, og margar smádýrategund- irnar finnast alls ekki þar sem dýpra er. Innan gróður- beltisins eru lífsskilyrðin mjög hagstæð, bæði um efna- samsetningu og annað. A meira dýpi verða lífsskilyrðin óhagstæð, og botndýralífið þverrar. Ein orsök þess, að grunn stöðuvötn eru að jafnaði betri veiðivötn en hin djúpu, er einmitt sú, að þar sem grunnt er, lifir meira af botndýrum, sem fiskarnir lifa af. En það er fleira en dýpið eitt, sem er breytilegt í Borrevatninu. Sums staðar eru víkur með hávöxnu sefi, annars staðar er malarbotn og grýtt strönd, og sums staðar liggja snarbrött brimklif að vatninu. Allt þetti hefir áhrif á samfélag dýranna á hverjum stað. Sum dýr kjósa að vera í ókyrru vatni á malarbotni og hafa lagazt eftir því. Önnur lifa einungis þar sem vatnið er kyrrt, og þeim er skýlt af þróttmiklum gróðri. í ám þeim og lækjum, sem í Borrevatnið falla eru sér- stök samfélög dýra. í einum þessara lækja er uppspretta með söltu vatni, af því að þar eru sölt leirlög, sem jarð- vatnið skolar úr. í þessum læk lifir krabbadýr, sem ann- ars á heima í sjó víða við strendur Noregs. Fyrir um 2500 árum var Borrevatnið og umhverfi þess sævi þak- ið. Auðsætt er, að krabbategund þessi hefir haldizt við í saltvatnslæknum síðan þá, og er þannig leifar þess; dýralífs, sem var á þessum slóðum, þegar þær voru hluti af Oslóarfirðinum. Fyrir nokkrum árum var hafin skipuleg rannsókn á dýralífi landsins alls. Þar er leitast við að kanna, hversu útbreiddar einstakar tegundir dýra eru, og við hvaða skilyrði þær lifa. A grundvelli þeirra rannsókna verður unnt að segja til um, hversu dreifing tegundanna er háð takmörkum í landslagi og lífsskilyrðum. Vér lærum af því, hvaða landslagstálmanir tilteknar tegundir komast ekki yfir, og hverjar kröfur tegundirnar gera til um- hverfis síns. Aleð tilraunum verður svo nánar kannað, hversu tegundirnar bregðast við ólíkum þátturn um- hverfisins. Meira en eitt þúsund ár og stöðuvötn hafa nú verið könnuð, og rannsókninni er að ljúka. Þegar svo umfangsmikil rannsókn fer fram, verður fyrir al- vöru Ijóst, hversu erfitt er að finna nægilega mörg vötn og ár í hverjum landshluta, með mismunandi lífsskil- yrðum og dæmum um þau. Þá má ekki gleyma, að ár og stöðuvötn, tjarnir, mýrar, lækir og önnur vatna- svæði verða stöðugt fyrir áhrifum af mannanna hálfu. Tjarnir eru fylltar, vatnsmiðlun er komið á í stöðu vötnum, svo að grynningarnar, þar sem gróðurinn er nær eingöngu og dýralífið mest, verða fyrir stórspjöll- um, þegar vatnsborðið er lækkað á vetrum. Ósar sumra stöðuvatna eru dýpkaðir, við það lækkar vatnsborðið, svo að grynningarnar með ströndinni breytast í þurr- lendi. Þá er mörgum vatnasvæðum spillt með útrennslum skolpræsa og frárennsli úr verksmiðjum. Á öðrum stöð- ur er vötnum spillt með úrgangi frá timburverksmiðj- um. Áhrif mannsins á náttúruna eru margvísleg. Ég var þess t. d. fullviss, að í litlu vatni við Oslóarfjörðinn mundi dýralífið haldast ósnortið urn mína daga og leng- ur. En viti menn, dag nokkurn kemst ég að því, að graf- inn hefir verið skurður úr því til sjávar. Við það lækk- aði vatnsborðið, saltvatn streymdi inn um skurðinn og drap dýrin, sem í vatninu lifðu. í gömlum frásögnum lesum vér oft um merkileg dýrasamfélög í vötnum, sem nú eru löngu horfin úr þeim. Náttúran sjálf breytir einnig vötnunum á óralöngum tíma. Djúp, næringarsnauð vötn grynnast smám saman, og næringarsöltin í þeim aukast. Jafnframt því taka nýj- ar tegundir dýra og plantna sér bólfestu í þeim. Þannig breytist djúpa og fæðusnauða vatnið smátt og smátt í grunnt, næringarauðugt vatn. Framsig úr ræktuðu landi, og hóflegt skolprennsli flýtir oft fyrir þessari breyt- ingu. En verði ofgnótt af fæðusöltum verður það bani margra fiska og smádýra. Þetta hefir oftsinnis gerzt í hinum fæðuríku vötnum í nágrenni Oslóar, fiskur hefir drepizt þar í hrönnum, og sumar tegundir fiska og ým- issa smádýra horfið þaðan með öllu. Fiskifræðingarnir hafa unnið mikið verk og gott í rannsókn dýralífsins í ám og stöðuvötnum. Hinu er svo 10 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.