Heima er bezt - 01.01.1968, Page 19

Heima er bezt - 01.01.1968, Page 19
SIGURÐUR VILHJALMSSON, HANEFSSTOÐUM J~fugleicting um Nfál FORSPJALL egar íslendingasögur voru skráðar í þeirri mynd sem við nú höfum þær, voru liðin 300—400 ár frá því að þeir atburðir gerðust, sem þær greina frá. Frá stofnun Alþingis um 200 ár, að elztu sögurnar eru skráðar. í flestum sögunum er kjarni sann- sögulegra frásagna, sem sögurnar eru gerðar um. Arið 1000 gerist sá atburður með lögtöku kristninnar, sem gjörbreytti siðferðilegum grundvelli þjóðarinnar og af- stöðu hennar til andlegra viðhorfa og fornra menning- arverðmæta, enda var þjóðin þá í mótun. Þegar goð- orðastofnunin var ákveðin hafa vafalaust orðið átök víða, um hverjir skyldu hljóta þau völd, sem þeim voru samfara. Með þeirri þekkingu sem við höfum á annar- legum tilhneigingum, komumst við varla hjá að álykta, að nokkrar væringar hafi orðið út af þeirri úthlutun valdsins, sem þá fór fram. Hins vegar eru sögurnar fá- orðar um þetta, enda eru miklar breytingar orðnar á hinni upphaflegu skipan þegar þær eru skráðar, allt valdajafnvægi er gengið úr skorðum og þjóðveldið í andarslitrunum. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að höfundar þeir, sem rituðu sögurnar, voru meira og minna undir áhrifum síns tíma og lýsa atburð- um út frá þekkingu sinni á svipuðum atburðum, sem þeir voru kunnir, án þess þó að þeir séu að grímubúa atburði síns tíma og flytja þá yfir í fortíðina. Það er ekki margt sem nútímamenn hafa að styðjast við, er þeir reyna að glöggva sig á sanngildi sagnanna um atburði þá, er þær greina frá. Helzt eru það ættar- tölurnar, annálar og samanburður milli sagnanna inn- byrðis, nafngiftir geta einnig haft okkurt gildi, auk þess sem orsaka- og afleiðingalögmálin eru sígildur mæli- kvarði. Njála hefur löngum verið mikið umræðuefni manna, eins og að líkum lætur um jafnágætt rit. Á seinni árum hafa umræður um hana snúizt mjög um það, hver sé höfundur sögunnar. Mér hefur lengi dvalizt við um- hugsun um, hvernig á því stendur að svo ágætur mað- ur, sem Njáll var, var brenndur inni, en það verður að tclja óyggjandi að svo hafi verið. Njáluhöfundur gerir mikið úr ágæti Njáls og hans miklu kostum, sem mér sýnist vera fullmikið gert úr, jafnvel eftir því sem kem- ur óbeint fram í sjálfri sögunni. Þetta virðist vera höf- undareinkenni, því hann virðist ekki hlutlaus gagnvart neinni sögupersónunni, sem setja svip á söguna. En það er fleira, sem einkennir þenna höfund. Hann hefur sér- staka nautn af því að lýsa söguhetjum sínum í bardög- um og er engu líkara en hann sjálfur komist í vígahug, svo manni verður ósjálfrátt að hugsa sér, að hann hafi sjálfur komið í orrustu og gengið hart fram. Það er ekki ætlan mín að benda á höfund Njálu, en aðeins benda á þau atriði, sem mér virðast athyglisverð, í sam- bandi við söguna og snerta örlagaþræði þá sem leiddu til Njálsbrennu. í því sambandi er rétt að gera sér grein fyrir því hvernig stendur á hinu einkennilega innskoti í söguna, er bent er á að Kolbeinn ungi hafi verið af- komandi Valgarðs gráa, sem þó er algjörlega óviðkom- andi sögunni sjálfri. Kolbeinn var 200 árum yngri en atburðir þeir gerast, sem sagan segir frá. Þetta innskot virðist sett í söguna til þess að vekja athygli á því að Kolbeinn kunni að hafa sótt einhverja lakari eiginleika sína til Valgarðs og kunni að hafa líkst Merði Valgarðs- syni frænda sínum. Eftir því sem Kolbeini er lýst í Sturlungu er ekkert líkt með honum og Merði eins og Njáluhöfundur lýsir honum. Að vísu virðist framkoma Kolbeins við Sighvat Sturluson og syni hans ekki lýsa drengskap. Atför Kolbeins og manna hans að Hálfdáni á Keldum ber ekki vott um drengskap, því Hálfdán hafði haldið sig utan við deilur þær, sem þá risu hátt. Kona Sighvats og móðir barna hans var Halldóra Tuma- dóttir föðursystir Kolbeins, en dóttir þeirra var Stein- vör kona Hálfdáns á Keldum. Eftir því sem Steinvöru er lýst í Sturlungusafninu er líklegt að hún hafi borið þungan hug til Kolbeins frænda síns og ekki sparað að halda því fram, að hann sækti meira til Valgarðs gráa en til Ásbirninga, enda hefur hún þekkt vel ættir Kol- beins. Það er því langlíklegast að innskotið um Kolbein sé komið frá Keldum beinlínis til þess að svívirða hann. Njáluhöfundur hefur ekki notað þetta atriði í sögu sinni, það virðist vera komið inn í söguna að tilefnis- lausu. Enda þó sagan um Höskuld Hvítanesgoða sé tor- melt og með nokkrum ólíkindum, verður að álíta hana að einhverju leyti sögulega rétta. Svo er einnig um Kára Sölmundarson, hann kemur inn í söguna með glæsibrag og með ólíkindum, verður tengdasonur Njáls, meðvirk- ur í morði Höskuldar, sleppur úr brennunni, hefnir hennar grimmilega, en kvænist skömmu síðar ekkju Höskuldar Hvítanesgoða. Hildigunnur er nú ekki jafn- stórlát og þegar bónorð Njáls til handa Höskuldi var ráðið og hún gengur að eiga þann mann, sem hafði drep- ið bónda hennar og frændur í hefnd eftir brennuna. Heima er bezt 15

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.