Heima er bezt - 01.01.1968, Side 23

Heima er bezt - 01.01.1968, Side 23
Sjálfur sagðist hann aldrei síðan hafa kysst nokkurn mann eða konu kveðjukossi, og alls ekki sína beztu vini. En þessi saga hreppstjórans gerðist fyrir fullum 100 arum, á meðan kveðjukossar voru algengur siður um allt land. 2. ÉG ÞEKKTI GESTKONUR Á SJAL- KLÚTNUM. Þegar ég var unglingur voru kveðjukossar mjög al- mennir, þótt einstöku menn, og þar á meðal læknar, væru farnir að vinna á móti þeim. En í sumum héruð- um voru þeir þó enn lengi við líði. Það kannast allir við það, að litlir drengir eru sjaldn- ast hrifnir af því, að verið sé að kjassa þá og gæla við þá eins og hvolpa eða kettlinga. Þeim finnst það ekki karlmannlegt. Ég man það vel, að þannig var ég líka gerður. En þó gerði ég mér mannamun eða öllu heldur kvennamun. Ég þoldi betur að fallegar konur kjössuðu mig, en þær sem mér þótti ófríðar. Þegar sást til gesta á þeim árum, þótti það alltaf nokkur tíðindi, því að það þótti upplyfting og þykir enn, að fá gesti. Vitanlega þekkti maður nágrannafólk- ið, löngu áður en það kom í hlað. Og sérstaklega var ég fljótur að þekkja konurnar, ef þær voru t. d. gang- andi. Þær þekkti maður bezt á sjalklútunum, sem þær bundu yfir sig. Sjalklútar ungu stúlknanna voru venju- lega í fegurri litum og smekklegri. Við vissum það vel strákarnir, er við sáum gamlar konur nálgast, að þær myndu kyssa okkur, er þær heils- uðu okkur, en það vildum við helzt losna við. Stund- um hurfum við því á bak við bæ, á meðan gestkonan var að heilsa, en svo komum við inn, er konan hafði heilsað fólkinu og hafði setzt niður, og sluppum við þá oft við kveðjukossinn, því að þá kastaði konan aðeins á okkur kveðju, án þess að rísa á fætur. 3. ALFRÆÐIBÓKIN SEGIR ÞETTA UM KOSSA. Ekki er ég svo fróður, að ég geti rakið uppruna og sögu kossanna og ef til vill eru þeir komnir alla leið frá Adam og Evu. — En í alfræðibókum segir þetta um kossana: „f Vestur-Asíu og öllum menningarlöndum Evrópu eru kossar mjög útbreiddir, sem tákn vináttu, virðing- ar og elsku. Storhöfðingjum í Vestur-Asíu var sýnd virðing og elska með því að kyssa rykið við fætur þeirra, eða með því að kyssa klæðafald þeirra, göngustaf eða einhvern annan hlut í eigu höfðingjans. f fornum ritum Egyptalands er því lýst, hvernig höfð- ingjar voru þar hylltir með kossum, sem tákn undir- gefni, virðingar og elsku-kossar voru líka almennir í Austur-Afríku, áður en áhrif bárust þangað frá Evrópu- löndum. í Evrópulöndum er kossinn tákn virðingar, vináttu og ástar, en í katólskum kirkjudeildum er kossinn líka tákn bróðurkærleika og trúar, samanber bróðurkossinn á páskahátíðinni. Helgir dómar og ýmsir kirkjugripir voru kysstir í tilbeiðsluskyni. Biblían var kysst, ef menn áttu að sverja eið. í Lútherskum kirkjudeildum hafa kossar ekki verið tákn trúar eða trúarlegra athafna, eða elsku á guðdómn- um. Á 17. öld var það siður hirðmanna að votta göfugum konum ást sína og virðingu með því að kyssa á hönd þeirra, og er þessi siður enn við líði í mörgum löndum. Koss á munninn hefur alla tíð verið tákn ástar og kærleika, og hefur sú tegund kossa mjög útbreiðst síð- ustu aldir, en munu líka hafa þekkzt í fornöld. En koss- ar þekkjast naumast í Austur-Asíu-löndum, eða meðal svonefndra villimanna. Þetta segir alfræðibókin og fræðimennirnir um koss- ana og finnst mér að skýringarnar séu nokkuð þyrk- ingslegar og óskáldlegar, og fjarlægar lýsingar skáld- anna á unaðsleik kossa. — En öll skáld dásama kossinn sem ástar-atlot og ungir og aldnir þrá slíka kossa. 4. ENN ÞEKKJAST KVEÐJUKOSSAR í SUMUM HÉRUÐUM. Ég sagði fyrr í þessum þætti, að á almennum mál- fundi í Stykkishólmi, fyrir nær því hálfri öld, hefðu menn yfirleitt verið mótfallnir kveðjukossum, einkum unga fólkið, og helzt viljað fella þá niður og fyrir 100 árum hefði hreppstjórinn á þingstaðnum ekki þolað það, að bændurnir kysstu ungu, fallegu konuna hans beint á munninn, er þeir þökkuðu fyrir góðgerðirnar. En hörð- ustu hríðina að kveðjukossum gerðu þó læknarnir um og eftir síðustu aldamót, og töldu þeir kveðjukossa hafa áhrif á útbreiðslu sjúkdóma. En gamlir siðir og hættir eru furðulega lífseigir, og enn hefur kveðjukossum ekki verið útrýmt. Skal ég nefna dæmi um þetta. Á sunnudegi á sólbjört- um sumardegi var ég gestur á prestssetri. Þar var kirkju- staður og ætlaði prestur að messa þar þennan sunnudag. Kirkjufolkið streymdi að eftir hádegið, á hestum og í bifreiðum. Ég var úti staddur, ásamt prestinum, er fólk- ið kom í hlað. Um leið og fólkið steig af hestbaki, eða kom ut ur bdunum, kom það beina leið að heilsa prest- inum. — Ég segi frá þessu eins og það gekk til. — Hver einasti karlmaður heilsaði prestinum með kossi, en kon- urnar með handabandi. — Ég öfundaði prestinn ekkert af kveðjunum. Síðan þetta gerðist eru liðin aðeins 10 til 15 ár. - Ég tel því ekki ólíklegt, að þessi kveðjukossa- siður lifi enn góðu lífi á stöku stað. En í sambandi við þessa gömlu siðvenju, sem virðist furðu lífseig, ætla ég að segja hér stutta sögu. Á fögrum haustdegi, fyrir 10-12 árum, var ég á ferð um fjölbyggða sveit. Fylgdarmaður minn var bóndi um sextugt, gáskafullur og fjörmikill. Við komum á nokkra Heima er bezt 19

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.