Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 6
ára, tók hann með sér á skemmtigöngur og fór með honum í bíó. Gamla konan undi vel hag sínum. Hún prjónaði og las og sagði Eiríki litla sögur. En Rannveig var ekki hamingjusöm, þó hún væri nú vel metin kaup- mannsfrú og byggi í stóru og skrautlegu húsi. Hún saknaði æskudaganna heima í Dalshrauni, hún saknaði sæludaganna í litla húsinu úti við sjóinn. Hún elskaði ekki seinni manninn sinn, þó hann væri henni góður, hún elskaði minningarnar um fyrri manninn, þó hún talaði aldrei um hann við neinn, nema stöku sinnum við móður sína. Sonurinn var hans lifandi eftirmynd, sælustu stundir hennar voru þegar hún horfði í bláu augun hans og strauk gló- bjartan hrokkinkollinn. Þegar Eiríkur var sjö ára eignaðist hann systur, gleði og hreykni Einars voru engin takmörk sett, en nú fór dálæti hans á Eiríki að dvína. Hann mátti ekki æfa sig á orgelið, barnið þoldi ekki hávaðann, hann fékk að æfa sig í nágrannahúsi. Hann mátti spila á fóninn því Einar mundi hvað Eiríkur hafði haft gaman af því, þegar hann var smábarn. Dóttirin var látin heita Fjóla eftir fyrri konu föður síns. Nú fór hann með hana út í vagni á sunnudögum, langar gönguferðir, Eiríkur elti eins og hvolpur. Einar tal- aði ekki við hann og leiddi hann ekki, eins og áður. Svo hætti hann að elta þau, en lék sér við jafnaldra sína. Einari fannst hann ekki vera nógu góður við systur sína. Hún skemmdi stundum dótið hans, pabbi hennar lét sem hann sæi það ekki, en mamma þeirra keypti ný leikföng handa honum. Einu sinni þegar Eiríkur kom inn, sat Fjóla á gólfinu, með uppáhalds bók sem hann átti og kepptist við að rífa úr henni blöðin. Hann hrifsaði bókina af henni, þá fór hún að háskæla. Þá varð Einar vondur og sagði: „Þú tekur ekki nærri þér að græta hana systur þína. Skammastu þín, þú ert óhræsi og meinhom við hana.“ Eiríkur fór grátandi fram í eldhús með bókarræf- ilinn og fleygði henni í ruslafötuna. Mamma hans faðmaði hann að sér og sagði: „Elsku Eiríkur minn, ég skal kaupa handa þér nýja bók.“ Einar stóð í eldhúsdyrunum og horfði á þau og 390 Heima er bezt Rannveig gleymdi ekki því augnaráði. Þau voru bæði jafnskyld henni börnin hennar, en hún hlaut að viðurkenna það fyrir sjálfri sér að henni þótti miklu vænna um Eirík. Nú fann hún að Einar vissi það og hann vissi eflaust orsökina. Eftir þetta fór hún að passa að Fjóla skemmdi ekki fyrir bróður sínum, hann fékk sérherbergi og hún kom þar sjaldan inn. En bilið á milli hinna svokölluðu feðga varð sífellt stærra og stærra. Og þó hafði Einar artir til kjörson- arins, þegar hann var fermdur þá gaf hann honum gullúr með ágröfnu fangamarkinu hans: „E E“. Og hann var því samþykkur að haldin var vegleg ferm- ingarveisla. Þegar Eiríkur var sextán ára fór hann að vinna í búðinni hjá Einari. Það gekk vel til að byrja með, en svo fór hann í kirkjukórinn — sem reyndar æfði nú ýms veraldleg lög - og það varð Einari þymir í auga. Honum fannst hann hafa ofmikinn áhuga fyrir söngnum. Hann spilaði stundum á orgelið og söng með því á kvöldin: „Þar Missisippis megindjúp fram brunar-----“ °g „Sævar að sölum svífur dagsins bjarta ljós-“ Rannveig hafði gaman af því, en Einar sagði að það væri enginn friður á kvöldin fyrir þessu gargi. Svo var það þegar Eiríkur var átján ára, það var daginn fyrir Þorláksdag, hann kom heim af söngæf- ingu snemma dags og var í sólskinsskapi. Hann kom með nýja hljómplötu og sagði: „Þetta er svo voðalega skemmtileg plata, ég má til að spila hana strax.“ Og svo glumdi við söngur: „Það var kátt héma um laugardagskvöldið á Gili - Mæðgumar hlustuðu hrifnar, allar þrjár. Þá birtist Einar í stofudyrunum og gestur með honum, vín- hneigður vinur hans framan úr sveit, báðir voru talsvert drukknir. „Aldrei er friður fyrir þessu fjandans gargi,“ sagði Einar. „Þér væri skammar nær að hugsa um verkin þín Eiríkur, það er blind ös í búðinni. Þú ert að sverja þig í föðurættina, svona var hann faðir þinn, alltaf syngjandi og trallandi. Þú líkist honum alltaf meir og meir. Og móðir þín elskar þig en ekki mig, af því þú minnir hana alltaf á hann Eirík sáluga föður þinn.“ Eiríkur var sem steini lostinn og stundi upp: „Er hann pabbi orðinn brjálaður?“ „Nei,“ sagði móðir hans. „Það er mál til komið að þú fáir að heyra sann- leikann,“ sagði amma hans. „Mamma þín er tvígift, fyrri maðurinn hét Eiríkur, þú ert sonur hans. Seinni maðurinn tók þig fyrir kjörson og vildi láta þig lifa í þeirri trú að hann væri þinn rétti faðir. Mig hefur oft

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.