Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 12
Ég held að nú sé orðið tímabært að festa á blað lýsingu á þessari fyrstu sýningu á leikritinu „Tengdamömmu", því fáir eru nú orðnir til frásagnar af þeim, sem tóku virkan þátt i þeim störfum, sem við þá sýningu eru tengd. Að mínu mati hefir verið skráð um ýmsa hluti ómerkari, en þó frá þessu sé sagt. Það kostaði mikið átak og fórnar- vilja að koma þessu í framkvæmd, bæði af félögunum sem að því stóðu, sem voru kvenfélagið „Hjálpin“ og Ung- mennafélag Saurbæjarhrepps og einnig af leikendunum, sem flestir höfðu aldrei á leiksviðsfjalir komið og vissu raunar ekki út í hvað þeir voru að ganga. Aðstaða öll til leiksýningar var svo aum, að nú í dag mundi engum láta sér detta í hug að bjóða upp á slíkt. Veturinn 1921-22 var hafist handa með undirbúning að leiksýningunni, fyrst og fremst með því að útvega leik- endur í hin ýmsu hlutverk, og reyna að velja þá með það sjónarmið fyrir augum að lklegt væri að þeir gætu túlkað, sem réttast, tilfinningar og framkomu þeirra persóna, sem þeim væri ætlað að leika. Þetta mun hafa verið ærið vandaverk, því ekki er líklegt að alltaf hafi verið unnt að fá það fólk, sem í upphafi var talið að mundi skila sínu hlutverki einna bezt. Enn man ég vel þegar Auður Þor- steinsdóttir húsfreyja í Núpufelli kom upp í Eyvindar- staði, þá átti ég þar heimili hjá foreldrum mínum. Var hún að finna mig og vita hvort ég vildi taka að mér að leika Ara og lagði hart að mér að takast það á hendur. Þá mun hafa verið búið að ráða fólk í flest hlutverkin. Ég var mjög tregur til að verða við beiðni Auðar. Réði þar mestu að sjálfur hafði ég litla trú á mínum leikarahæfileikum og ég var einnig haldinn feimni eða minnimáttarkennd - ef menn vilja kalla það svo — og mundi verða erfitt að standa framan við áhorfendur og leika ástarsenu með sjálfri prestsfrúnni í Saurbæ, svo eðlilegt gæti virst. Niðurstaðan varð þó sú að ég lét undan ágengni húsfrú Auðar og lofaði að taka að mér þetta hlutverk. Ég fann, við nánari athugun, að þarna mundi opnast fyrir mér nýtt og áður óþekkt svið, sem gaman væri að hafa kynni af, og kynningin og félagsskapurinn við hið ágæta fólk, sem ég ynni með, yrði mjög forvitnileg og áhugaverð. Hlutverkum var skipað, sem hér greinir: Björ-g, rík ekkja á Heiði, Laufey Guðmundsdóttir, Þormóðsstöðum. Ari sonur hennar, Ketill Guðjónsson, Eyvindarstöðum. Asta kona hans, Sigríður Þorsteinsdóttir, pretstsfrú, Saurbæ. Rósa fósturdóttir Bjargar, Laufey Kristjánsdóttir, Árgerði. Þura gömul vinnukona, Sigurbjörg Ágústsdóttir, öxnafellskoti. Jón gamall ráðsmaður, Jón Sigfússon, Helgastöðum. Sveinn vinnumaður, Hólmgeir Pálmason, Kálfagerði. Guðmundur prestur í Dal, Magnús Ámason, Litladal. Signý aðkomukona, Ólöf Einarsdóttir, Guðrúnarstöðum. Leikstjóri, Sr. Gunnar Benediktsson, Saurbæ. Til að minna á, Valdemar Pálsson, Möðruvöllum. Þegar búið var að ráða leikendur í öll hlutverk leikrits- ins og skrifa leikritið sundur í einstök hlutverk fyrir hvern leikara, var orðið síðla vetrar 1922 og engin von til þess að unnt yrði að hafa sýningar á leiknum þá um vorið, eins og þeir bjartsýnustu, sem að þessu verkefni stóðu, höfðu gert sér vonir um. Þó var byrjað að lesa saman og æfa lítils- háttar um vorið. Sumarið 1922 leið og stunduðum við hin venjulegu fjölbreyttu störf er til falla um sumartímann í íslenskri sveit. Lítið mun hafa verið hugsað um leiklist, eða það merkilega starf, sem beið okkar að hausti. Síðla hausts var tekið til þar sem frá var horfið að vori að æfa leikinn og urðu æfingar nokkuð tíðar og gekk svo fram yfir hátíðar. Fóru æfingar fram stundum að Möðruvöllum, en þó miklu oftar að Saurbæ. Þess skal hér getið að illa gekk að fá mann í hlutverk prestsins. Fyrst var fenginn Hannes Jónsson bóndi Hleiðargarði. Af einhverjum ástæðum hætti hann þó fljótt við æfingamar. Þá tók við Magnús Kristjánsson bóndi Sandhólum, en einnig hann hætti eftir eina eða tvær æf- ingar. Loks tók að sér hlutverk prestins Magnús Ámason bóndi Litladal og entist hann í því starfi til loka á sýning- um á leikritinu. Skömmu eftir áramót 1922-23 var byrjað að sýna leik- inn að Saurbæ. Þá taldi leikstjórinn að æfingar hefðu náð því marki að naumast yrði að vænta betri árangurs hjá leikendum, þó þeim yrði fjölgað. Nú skal lýst þeirri aðstöðu sem leikendur og áhorfendur urðu að búa við á leiksýningum í Saurbæ. Samkomuhúsið gamla stóð á hólnum beint austur af kirkjunni. Var það aðeins einn salur. Ekki veit ég um ná- kvæm mál á stærð hússins, en giska á að það hafi verið um 8-9 m á lengd frá norðri til suðurs og ca. 6 m á breidd. Senan tók um það bil helming af lengd hússins, en á þrjá vegu við hana var þröngur gangur, sem leikendur höfðu til umráða bæði við búninga og til dvalar á milli þess er þeir komu fram á senunni. Fullyrði ég að þessi erfiða aðstaða reyndi mjög á þol leikendanna, en við þetta varð að una, annarra kosta var ekki völ. Tvær senur eru í leiknum, sem kunnugt er, baðstofusena og stofusena. Var Vigfús Jónsson á Vatnsenda í Hólasókn fenginn til að mála leiktjöldin, því hann hafði þá nokkuð fengist við málarastarf. Seinna var hann í áratugi þekktur borgari á Akureyri. Til að lýsa sviðið og ganginn á bak við voru notuð olíuljós og að einhverju leyti kerti. Rafmagn kom ekki til sögunnar fyrr en löngu síðar. Áhorfendur á leik- sýningum voru í norðurenda hússins. Var þar raðað laus- um trébekkjum, baklausum og var sæti þar fyrir 40-50 manns. Sennilega munu sýningar á leikritinu hafa farið fram um hverja helgi eftir að byrjað var að sýna, og máske 396 He'rma er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.