Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 8
„Já, þú gerir það seinna, en nú skaltu hitta ömmu, hún verður nú fegin að sjá þig,“ segir Rannveig. Þau ganga inn til gömlu konunnar. „Hér er kominn gestur, mamma, þekkirðu hann nokk- uð?“ spyr Rannveig. Halldóra rís upp í rúminu og horfir á gestinn. „Eiríkur! Eiríkur minn, Guði sé lof að þú ert kominn. Nú er draumurinn minn að rætast,“ segir hún og breiðir faðm- inn á móti honum. „Ertu ekki svangur?“ spyr hún, þegar kveðjurnar eru afstaðnar. „Veiga mín, áttu ekki einhvern góðan mat handa honum, kannske hangikjötsbita?“ „Jú,“ svarar Rannveig, „ég á eftir af hangikjötinu sem ég sauð handa krökkunum áður en þau fóru heim í jóla- fríið.“ Eiríkur brosir. „Ég er ekki svangur,“ segir hann, „ég borðaði á hótelinu.“ „Segðu okkur eitthvað af þér,“ segir mamma hans. „Þið vitið nú að ég var í Reykjavík í þrjú ár, mér leið vel, ég stundaði söng og orgelspil í hjáverkum mínum. Svo fór ég til Danmerkur með kaupmanninum sem ég vann hjá, ég hefði átt að láta ykkur vita, en það varð ekki af því. Mér leið vel, ég ferðaðist að gamni mínu um Norðurlöndin, þá sendi ég þér stundum kort, mamma mín. Ég gekk í söng- tíma hjá góðum kennara og gerði mér vonir um að verða frægur söngmaður. Svo fór ég til Englands til framhalds- náms, en þá urðu frægðardraumarnir að engu. Ég veiktist af brjóstveiki og lá lengi á sjúkrahúsi. Mér var sagt að ég myndi ekki þola að syngja, það var þung raun. Svo fór ég aftur til Hafnar, í sumar hitti ég jafnaldra og fornvin héðan frá Laufeyri. Hann sagði mér að Fjóla systir mín væri dáin fyrir löngu og stjúpi minn nýlega dáinn, en amma gamla væri enn á lífi. Þá fór mig að langa til að sjá ykkur, ég fór til Reykjavíkur með Jóa vini mínum, sem nú er orðinn skólastjóri hérna við gagnfræðaskólann. Hann vildi fá mig með sér norður, til þess að kenna söng og hljóðfæraslátt, en ég kom mér einhvernveginn ekki að því, sagðist kannske koma eftir áramótin. Og nú er ég hingað kominn, ráðinn kennari frá áramótum, mig langar að vera hérna á jólunum og helst lengur. Ég veit að þú selur fæði og húsnæði, heldurðu að þú gætir bætt mér við í hópinn?" „Já, alveg áreiðanlega, ósköp er gott að þú ætlar að vera hjá mér,“ segir Rannveig. „Hefurðu aldrei gifst eða eignast börn,“ spyr gamla konan. „Nei, ég hef látið vín og kvenfólk eiga sig. Björn frændi minn sagði mér frá afdrifum föður míns, ég læt mér þau að vamaði verða,“ svarar Eiríkur. „Gott er það,“ segja mæðgurnar einum rómi. „Ég finn það núna að ég lét eins og óhemja þegar ég fór héðan, en ég tel mér það til málsbóta að ég átti rétt á að vita sannleikann og annað það að fóstri minn var of góður við mig þegar ég var lítill, það eru viðbrigði að vera dáður og dýrkaður og vera svo allsstaðar fyrir. Það var ekki von að bam á mínum aldri þyldi það. En nú er ég fyrir löngu farinn að þrá að sættast við ykkur. Ef Einar væri á lífi þá vildi ég svo feginn sættast við hann.“ „Hann þráði að sættast við þig,“ segir Rannveig. „Ef þú átt eftir að sjá Eirík þá biddu hann að fyrirgefa mér,“ það voru seinustu orðin hans.“ „Já, ég er af hjarta sáttur við ykkur öll og veit að þið fyrirgefið mér. Ég gekk hérna um götuna og horfði á uppljómað húsið, en hafði ekki kjark til þess að gera vart við mig. Svo fór ég að heyra gamalkunnugt söngvamál berast út um gluggann. Þegar ég heyrði: „Það var kátt hérna um laugardagskvöldið á Gili“, þá vissi ég að þú varst að hugsa um mig. Og ég herti upp hugann og hringdi dyrabjöllunni.“ „Já, það er gott að þú ert kominn. Ég frétti að þú værir kominn til Reykjavíkur og vonaði að þú kæmir fyrir jólin, en ég var nú að verða vonlaus.“ „Jæja, amma mín,“ segir Eiríkur, „nú ætla ég að vera hjá ykkur, svo lengi sem þið viljið hafa mig, hvað segirðu um það?“ „Auðvitað viljum við alltaf hafa þig,“ svarar Hall- dóra.„Nú dey ég ánægð fyrst þú ætlar að vera hjá henni mömmu þinni. Mundu nú Veiga mín að kaupa mikið hangikjöt á morgun, ég man hvað honum þótti það gott. En mér finnst einhver gustur koma framan úr stofunni." „Já, ég skal loka glugganum,“ segir Rannveig og gengur fram í stofuna. „Komdu Eiríkur,“ kallar hún. Eiríkur fer til hennar. „Sjáðu,“ segir hún og bendir út um gluggann, „þú hefur mátulega komist í húsaskjólið, nú eru fyrstu snjókornin að falla til jarðar.“ „Já, það er gott að vera kominn heim,“ segir Eiríkur, „heimilislaus flækingur hef ég verið í þrettán ár, þó ég hefði allsnægtir.“ „En nú er því lokið,“ segir Rannveig. „Týndi sonurinn er kominn heim. Og nú ætla ég að spila fallegu jólalögin, sem hún Þuríður Pálsdóttir syngur, mér finnst blessuð jólin vera komin og það verða góð og gleðileg jól, því nú er allt gott og ljúft og fyrirgefið.“ Og svo hljómar fagurt um stofuna: Nóttin var sú ágæt ein, í allri veröld ljósið skein, það er nú heimsins þrautarmein að þekkja hann ei sem bæri. Með vísnasöng ég vögguna þína hræri. Friður jólanna gagntekur hjörtu áheyrenda. 392 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.