Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.12.1977, Blaðsíða 24
Valagilinu. Varð okkur töluvert sundurorða, en þó réð ég stefnunni og komum við ofan á götu mitt á milli Hrafns- gils og Valagils. Héldum við nú heim að Fremri-Kotum. Voru þá engir gangnamenn komnir þangað úr fram af- réttinni, og ekki komu þeir þar um kveldið. Gistum við á Kotum og hélzt logndrífan mestalla nóttina. Um morguninn var bjart veður, en ógnarlega mikil lognfönn var komin. Fórum við Ólafur fram eftir að vitja um félaga okkar. Höfðu þeir allir gist í Krókárgerði. Þegar við komum að Norðurá, voru þeir að reka féð yfir hana. Klesstist fönnin bæði í fé og hunda, svo að skera varð úr þeim snjóinn. Erfiðlega gekk að koma fénu ofan að Kotum. Þar skildum við það allt eftir. Þótti ófært að reka það lengra, því að snjór tók hrossum í kvið og jafnfallinn. Nú lögðu allir af stað. Ólaf vantaði hest sinn. Hann fundum við á Ketilsstaðagrundum. Stóð hann þar í hafti, glorhungrað- ur. En er við komum á Gvendarnes og horfðum út eftir, sást að norðurundan var fönn skafin af hryggjum öllum og hæðum, en hver lækjarspræna full af snjókrepju. Þóttumst við þá þess fullvissir, að norðan stórhríð hefði daginn og nóttina áður verið niðri í sveitinni. Af Gvendarnesi vildum við komast á Norðuráreyrar, en stórskafl og kaffenni var ofan að nesinu að fara. Rák- um við lausa hesta í skaflinn. Fóru þeir fram úr honum, en snjór gekk yfir hryggi. Fóru svo hnakkhestarnir í slóð þeirra. Stigum við þá á bak, en á Bessakotseyrum sáum við kind á milli kvísla, líkasta klakastump. Bað Páll mig að rétta sér hana á bak, en ég kvaðst ei treysta mér að lyfta svo þungu hlassi, en ég skyldi reyna að reiða hana, ef hann lyfti henni á bak. Gerði hann það, en sagði um leið, að hún væri það sem hún sýndist. Virtist mér honum veita erfitt, þótt sterkur væri. Ekki gat ég reitt hana nema annar héldi við hausinn, því að hún var hál sem klakastykki. Ekki gátum við greint lit hennar, en síðar frétti ég, að hún hefði verið svarthöttótt. Komum við henni á gras, og fór hún að bíta. Við riðum út eyrarnar, allt að Skeljungshöfða, og komum að Silfrastöðum. Þar fréttum við, að heimapiltar þar hefðu daginn áður í hríðinni verið að reyna að smala saman fé sínu. Þá um kveldið vantaði einn gangnamann þeirra, Eggert Egilsson, mág Jónasar bónda. Hafði hann hrapað á barminum á Heimara-Selgilinu, lent þar á skeiðarstalli, þorði ekki að hreyfa sig en gróf sig ofan í snjóinn. Þar var logn á honum. En er hann heyrði hóið og köllin í leitarmönnum, öskraði hann á móti líkt og Glámur forðum, svo að drundi í hömrum. Hjálpaði það til, að þeir fundu hann. Síðar sannfrétti ég, að kvöldið sem Eggert vantaði, þóttust stúlkurnar á Silfrastöðum heyra hann þramma innan um bæinn þar á frosnum skóm. Sögðu þær hann mundi dauður vera og afturgenginn; þorðu þær ekki um þvert hús að ganga. Eggert þessi var frekar lítilsigldur, einkennilegur um margt og bamalegur meinleysingi. Frá Silfrastöðum fórum við sem leið liggur út að Víðivöllum. Var þá komið að rökkri. Vildu hjónin þar, Sigurður og Sigurlaug, hýsa okkur, en við vildum halda áfram. Höfðu nú gangnamenn fækkað mikið, því að margir voru úr Fram-Hlíðinni, og hafði þar hver farið heim til sín. Hálfilla gekk okkur að komast yfir Víðivallalækinn, en þó var Miklabæjarlækurinn stórum verri. Stóð hann full- ur af krapi Rákum við hestana yfir hann. Þó varð það, en umbrot mikil urðu hjá þeim. En við fórum lausir langt uppeftir, og komumst þar yfir lækinn. Ég fór að Hösk- uldsstöðum til Stefáns bróður míns, gisti þar, en Páll fór að Stóru-Ökrum til gistingar við þriðja mann. Var ég þá orðinn mjög slæptur af öllu þessu ferðavolki. Morguninn eftir lögðum við bræður af stað upp að Djúpadal. Átti Stefán sumt af kindum sínum þar efra. En er við komum þangað, varð Jón bóndi okkur feginn, því að allt fé þar óvíst nema það, sem hafði verið á dalnum milli sels og bæjar. Logn hafði verið á dalnum, eins og jafnan í norðanátt, en ofan fönn jafnfallin. Drukkum við nú kaffi og lögðum svo af stað fjórir. Voru það auk okkar bræðra Jón bóndi og Pétur Guðmundsson vinnumaður. Var hann að ýmsu nokkuð duglegur, en þungur til gangs. Héldum við nú fram á Djúpadalssel. Sáum við þá, að aulað hafði af hæðum og hryggjum að sunnanverðu í Tungufjallinu. Skiptum við nú liði. Fórum við bræður að sunnan í Tungufjallið, en hinir gengu fram dalinn. Þegar við bræður komum fram á fjallið, voru skaflar miklir. Fékk Stefán fullan skerf sinn að troða þá, því að hann var á þeirri tíð með allra röskustu og léttustu mönnum til gangs, og harðfengi eftir því. En er við kom- um á Víðivelli, fremst í Tungufjalli, var þar margt fé. Áttum við erfitt með að koma því saman og upp úr bökkunum, því að ég var linur að draga féð í sköfum og kraftalítill. En fyrir harðneskju Stefáns unnum við sigur á þeim erfiðleika. Hvíldum við okkur þá litla stund. Snérum við þá heimleiðis með féð. Stefán fór á undan og tróð skaflana, en ég rak féð. Rökkur var komið, er við vorum á Tungufjallsbótum. Skildum við féð þar eftir. En er við komum á Selgrundir, sáum við engin merki þess, að þar hefði fé verið rekið. Gengum við þá slóð okkar heim að Djúpadal. Var þá verið að drekka kaffi, þegar við gengum í baðstofu. Jón bauð okkur velkomna og spurði, hvemig okkur hefði gengið. Stefán sagði allt sem var, og spurði, hvort þeir hefðu ekkert fundið. „Við fundum margt,“ sagði Jón, „og er það flest í Fyl- hólahvamminum, og situr þar, því að ég álít, að ómögu- legt sé að koma því þaðan.“ Var auðheyrt að nokkurs vonleysis kenndi í rödd Jóns. „Sáuð þið Bíld þar?“ spurði Stefán. „Já,“ sagði Jón, „hann var þar.“ „Bágt á ég með að trúa því,“ sagði Stefán, „að ekki sé hægt að koma fénu þaðan, fyrst Bíldur er þar, og ef svo reynist, mun það vera algjör ófæra.“ Þá sagði Pétur: „Þú munt komast að raun um það,“ og hafði í háðsglósum um Bíld. Stefán mælti þá: „Faðir minn bað mig að skera Bíld, ef engir möguleikar væru á að koma honum til húsa. Lofaði ég því. Er ég staðráðinn í að fara frameftir og sjá, hvemig umhorfs er.“ 408 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.