Heima er bezt - 01.12.1977, Síða 28

Heima er bezt - 01.12.1977, Síða 28
DÆGURLAGAþáttWlÚM Þegar ég var að fara yfir lesendabréf til undirbúnings þessúm desemberþætti, staðnæmdist ég við eitt frá „konu úr Norðurlandi“, svo sem hún kýs að láta nefna sig. Af glöggri skilgreiningu hennar mátti ráða að hana langaði til að fá birt kvæðið Sjálfslýsing eftir séra Jón Þorláksson, prest á Ytri-Bægisá á Þelamörk. Bréf þetta er orðið nokkuð gamalt, eða frá árinu 1971. Ég fór að velta því fyrir mér hversvegna ég hefði aldrei orðið við þessari ósk. Þetta er þó skemmtilegt og vel ort kvæði og auðvelt að komast yfir það. Skýringin getur ekki verið önnur en sú að á því ári sem bréfið var sent, fyrsta heila árinu sem ég stjómaði alfarið þessum þætti, hélt ég af reynsluleysi og barnaskap að unnt reyndist að halda honum úti með raunverulegum dægurlögum einum saman. Mér hefur því fundist þetta kvæði ekki eiga heima í honum og lagt óskina til hliðar. Sjálfslýs'ing hafi verið sungin undir einhverju lagi þótt séra Bjarni Þorsteinsson geti þess ekki sérstaklega. SJÁLFSLÝSING Hér með lýsist hjörvaþór, hann á að vera skrafinn, herðalotinn mjög og mjór, mikið bólugrafinn. Hann er næsta höfuðsmár, um höku og kinnar loðinn, gult á kolli hefur hár, hvergi búkur snoðinn. Síðan hafa mörg vötn runnið til sjávar og stjórnandi þessa þáttar tekið all hastarlega kúvendingu, svo sem les- endum er kunnugt. Núna ætti því ekkert að vera til fyrir- stöðu á birtingu þessa skemmtilega kvæðis. Ævi skáldklerksins á Ytri-Bægisá hefur löngum verið íslendingum hugstæð. Má ekki á milli sjá hvort munn- tamari hafa verið sögurnar sem ganga af breiskleika holds hans eða haglega gerð ljóðin. En það er svolítið merkilegt með séra Jón Þorláksson að meiri frægð hefur hann hlotið af þýðingum sínum á er- lendum og heimspekilegum trúarljóðum, sem alþýðu manna eru lítt eða ekki kunnar, fremur en af tækifæris- kvæðunum og glettnum lausavísum sem flugu víða og menn höfðu skemmtun af, ekki síst ef í þeim var beiskur broddur. En séra Jón kunni að bregða brandi skáldskap- arins ef sá gállinn var á honum. Mikinn fjölda kvæða orti Jón um sjálfan sig og henti gaman af breiskleika sínum og hrösun. Hefur það án efa ýtt undir mildi í hans garð og gert hann að þeirri þjóðsagnapersónu sem hann raun- verulega er. Þegar ég var að velta Sjálfslýsingu fyrir mér, athugaði ég Þjóðlagasafn séra Bjarna Þorsteinssonar í von um að ég rækist þar á vísbendingu um lag. Svo var þó ekki. Aftur á móti getur séra Bjarni margra laga sem sungin hafa verið við önnur kvæði séra Jóns, svo sem lag við Sumarkveðju, sálm sem hann orti um 1770 og sungið var 1 tvísöng, lag við Vakra-Skjóna og þekkt var víða um land, lag við kersknikvæðið Prestur setti saman og Bessastaðasveinar kyrjuðu hástöfum o.fl. o.fl. Gera má þó ráð fyrir að Seggurinn hefur söðulnef, sem er hátt að framan, mælir oft frá munni stef, mörgum þykir gaman. Ærið þungur undir brún, ör og þver í lyndi, meður litla hönd, en hún heitir strá í vindi. Upp í loftið álnir tvær átta og sjö þumlunga voga loga viður nær, vegur tólf fjórðunga. Einatt hýrum augum vann auðs á ranna jarðir, ei til handa annað kann en að bregða gjarðir. Við þeim glæp sig vari fólk, sem vill að sínu búa, honum fyrir ferskri mjólk og feitu spaði að trúa. Eitt hans merki vitum vær, víst ei forgleymandi, ákaflega hann allur rær eins á sjó og landi. 412 Heima er bezt l

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.