Heima er bezt - 01.12.1977, Side 32

Heima er bezt - 01.12.1977, Side 32
ÞÓRARINN E. JÓNSSON PRinSESSfl í útlegð Saga í miðaldastíl 9. HLUTI Prinsinn gekk hljóðlega brott. Rétt á eftir opnuðnst dyrnar, og Hróðmar konungur birtist í dyrunum í allri sinni stærð. „Mér er tjáð, Valdimar prins, að bú viljir sættast við mig. Er það satt?“ Rödd konungs hljómaði um herbergið eins og þungur árniður, en þó fagnandi. Þrungin innileik. „Já, faðir minn. Af alhug vil ég sættast við þig.“ Þessi tvö jötunmenni féllust í faðma. Margra ára innibyrgð geðshræring brauzt út. „Ó, sonur minn,“ sagði tröllið. „Nú ætti móðir þín að vera komin og sjá hamingju okkar. Og þú Elísa? Getur þú líka fyrirgefið mér?“ „Kæri Hróðmar konungur. Ég elska Valdimar son þinn meira en mitt eigið líf. Meira en allt annað, sem ég þekki. Hvernig get ég annað en sætzt við þig og elskað þig sem föður? Ég sé, að þú ert einmana og þarfnast un^hyggju og dótturlegrar blíðu. Við Valdimar munum reyna til þess að þú lifir sæll og sáttur við allt.“ „Valdimar sonur minn heyrir þú? Svona var móðir þín umhyggjusöm, blíð og góð. En hvað ég hef saknað hennar sárt. En nú birtir til.“ „Má ég kynna hér Júlíu prinsessu unnustu mína fyrir þér Hróðmar konungur?11 mælti prinsinn. „Gleður mig að kynnast yður prinsessa,“ svaraði Hróð- mar konungur og hneigði sig kurteislega. „Nú förum við Júlía prinsessa og skýrum konungi frá komu þinni, Hróðmar konungur. Nú skuluð þið þessi þrjú vera hér í einrúmi í híbýlum mínum, þar til mót- tökustundin byrjar.“ Að svo mæltu hneigði Bjamharður prins sig fyrir Elísu greifadóttur og gekk ásamt Júlíu prinsessu út úr her- berginu. Eftir að prinsessan og prinsinn voru farin, var þögn fyrst í stað. „Bömin mín,“ mælti Hróðmar konungur. „Þetta er eins og í ævintýrunum. Hver persóna kemur fram á eftir ann- arri, vafin töfraljóma. Fyrst kemur Bjamharður prins fram á sjónarsviðið og ver líf sitt af slíkri hugprýði og ofurmennsku, að ég hef vart séð hans líka. Þar næst sem líknandi vinur hins særða manns. Okkur öllum þremur hefur hann reynzt sannur vinur. Hvað segið þið um hitt konungsfólkið?“ „Það er göfugt og gott fólk. Þekkt að höfðingslund og mildi. Samt er konungur og hans fólk umsetið illræðis- mönnum, sem lítt sjást fyrir. Margir illræðismenn eru enn til innan landamæra ríkisins, þótt Grimur hertogi sé dauður.“ „ Já, Valdimar sonur minn. Víst er svo. En leggjum hinum góðu öflum lið eftir megni.“ 18. KAFLI. MALIN skýrast. Móttökustundin nálgaðist. Manfreð konungur sat í há- sæti sínu ásamt drottningu sinni. Öðrum megin við hásætið voru tignarsæti Bjarnharðar prins og Ástu Karlottu móður hans og hinsvegar Júlíu prinsessu. Skör lægra sat ríkisráð konungs. Hinum meg- in í salnum voru tignarsæti Hróðmars konungs og hans fólks. Eigi voru aðrir viðstaddir þessa móttökustund en kon- ungur, drottning hans, ekkjudrottningin og ríkisráðið. Tignarsæti Júlíu prinsessu og Bjarnharðar prins stóðu auð. Einnig öll tignarsætin hinum megin í salnum. Homablástur kvað við. Viðhafnardymar opnuðust. Inn kom Hróðmar konungur í fylgd með Bjamharði prinsi. Á eftir þeim kom Júlía prinsessa, sem leiddi Elísu greifa- dóttur. Hildibrandur greifi var í fylgd með þeim. Þar á eftir komu synir konungs, Valdimar og Víglundur. Allir voru í viðhafnarklæðum. Bjarnharður prins leiddi Hróðmar konung að hásæti því, sem honum var ætlað. Settist svo hver og einn í sæti sitt. Manfreð konungur tók til máls: „Hróðmar konungur, tignu gestir. Verið öll velkomin í ríki vort, svo lengi sem þið viljið hjá oss dvelja. Mikil er gleði vor yfir því að sjá yður öll sameinuð hér í höll vorri. Það sætir undrun, að einn er sá meðal vor, sem virð- ist hafa verið til þess kjörinn af forsjóninni að frelsa og sameina okkur öll, sem hér erum saman komin. Því furðulegra er það, að þessi sami, sem hér er átt við, varð landflótta tveggja ára úr ríki því, sem hann átti að erfa, þegar tímar liðu. Hér kynni ég yður, Hróðmar konungur og aðrir tignu gestir, Ástu Karlottu, dóttur Hróars konungs milda, móð- ur vinar okkar og lífgjafa Bjamharðar Ríkarðssonar prins. Einnig vil ég geta þess hér, að þessi tigna, land- flótta drottning varð ekkja í blóma lífsins, er eiginmaður hennar og faðir voru felldir með svikum. Ekkjudrottn- ingin, Ásta Karlotta, er mjög draumspök. Draumspeki 416 Hetma er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.