Heima er bezt - 01.03.1982, Side 2

Heima er bezt - 01.03.1982, Side 2
Reyklaus dagur Þann 9. mars var reyklaus dagur. Áhugamenn um takmörkun reykinga völdu hann til þess að vekja eftirtekt á baráttumáli sínu og treysta fylkingu sína í styrjöldinni gegn tóbakinu, og þá umfram allt gegn sígarettunum, sem flestum kemur saman um að sé mesti bölvaldurinn. En hversvegna láta menn svona um tóbakið, spyrja margir. Hafa menn ekki um mörg hundruð ár notað tóbak í ýmsum myndum og enginn hefir æmt né skræmt? Svarið er auðfundið. Tím- arnir hafa breyst og með breyttum tímum hefir þekkingin aukist. Það sem fyrrum var talið gott og blessað í skjóli vanþekkingarinnar, hefir reynst hættulegt böl, þegar vanþekkingar- hjúpnum var svift brott. Vísindin, og þá einkum læknavísindin hafa komist að raun um að margt það, sem hættulegast er heilsu manna og lífi má rekja til tóbaksins, og á það þó eink- um við krabbamein, þ.e. sérstakrar tegundar þess og ýmissa hjartasjúk- dóma. En þessir sjúkdómar eru nú einna mestir bölvaldar í lífi nútíma- mannsins og valda dauða fjölda manna löngu fyrir aldur fram. Enda þótt vísindunum hafi oft skjátlast, þá eru staðreyndirnar í þessu efni orðnar svo margar og augljósar, að enginn maður með fullri skynsemi og hugsun leyfir sér að neita þeim. En samt reykja þeir. Og á sama tíma og for- eldrar og kennarar brýna fyrir börn- um sínum að reykja ekki eða hætta reykingum, hafi þau byrjað, reykja þeir sjálfir eins og ekkert hafi í skorist. f því sambandi kemur mér oft í hug saga af gömlum námsfélaga mínum, sem byrjað hafði að reykja á barns- aldri og var flestum okkar félaganna ötulli við sígarettuna. Faðir hans var mikill reykingamaður, enda sagði vinur minn um hann: „Ég sá hann aldrei taka út úr sér pípuna nema meðan hann át eða skipti á henni og vindli, og svo auðvitað þegar hann r skammaði mig fyrir reykingarnar“. Er nú hægt að ætla að áminningar okkar gömlu tóbakskarlanna hafi mikil áhrif, þegar svona er að þeim staðið? Unglingarnir sjá karlana reykja og kerlingarnar líka nú í seinni títtíð, svo að alls jafnréttis sé gætt, og þeir sjá líka, að þau eru við góða heilsu, þótt tekin séu að reskjast. Er þá nokkur ástæða til að trúa öllu þessu um óhollustuna af reykingum, má ekki ætla, að við sleppum eins vel og þau? En málið er ekki alveg svona einfalt. Sem betur fer þola sumir menn reyk- ingar svo vel, að ekki verður séð, að þeir bíði heilsutjón af þeim. Það sannar vitanlega ekki, að tóbakið sé skaðlaust, fremur en halda ætti því fram, að t.d. inflúensa væri ekki smit- andi farsótt af því einu, að alltaf sleppa einhverjir við að sýkjast, þegar faraldurinn genguryfir. í rauninni má líkja þessu við happdrætti, einhverjir hljóta vinninginn, þó að hinir séu vitanlega margfalt fleiri sem ekkert fá. Samt spila menn alltaf í happdrætt- inu, og á líkan hátt treysta þeir því, að þeir sleppi við öll óþægindi af reyk- ingunum, enda þótt þeir, sem sleppa, séu margfalt færri hinum: Það liggur við að möguleikinn að losna við öll óþægindi af reykingum nálgist það að vera hinn sami og spila í happdrætti þar sem vinningsmöguleikinn nálgast núll. Hver mundi sækjast eftir því. En sem sagt þá er engu líkara en allur þorrinn láti sér sem vind um eyrun þjóta allt, sem læknar og heilsufræð- ingar segja um skaðsemi reykinganna. Ég ætla því ekki að fjölyrða meira um þá hlið málsins. Þar trúa allir á, að þeir hljóti vinninginn og haga sé eftir því. En það eru fleiri hliðar á málinu. Eitt af því sem blasir skýrast við er kostnaðurinn af reykingum. Um hann verður ekki deilt, og á þeim tímum, sem allt snýst um verðbólgu, kaup- mátt og kjaradeilur, kemur ekkert happdrættissjónarmið fram. Allir verða að greiða sitt gjald, hversu vel eða illa þeir sleppa við skaðsemi reykinganna. Það kallast naumast meira en meðalneysla ef maðurinn reykir einn pakka af sígarettum á dag. Hann kostar sem næst 20 krónum. Það sýnist ekki svo mikið, en er þó 7.300 kr. á ári eða 730 þúsund gkr., sem raunar virðist orðin réttasta við- miðunin þegar um hina sífallandi ný- krónu er að ræða. Þetta er skatturinn, sem reykingamaðurinn greiðir fyrir tóbakið, sem hann ef til vill um leið geldur heilbrigði sína fyrir, eða nokk- ur ár af æfi sinni. Ef til vill ættum vér öll að skilja þetta í allri þeirri síbylju, sem á oss dynur um verðbólgu og kjararýrnun, sem þó er raunar ekki meiri en vert er í öllu því ráðleysi og hrunadansi, sem einkennir þjóðlífið. En ég spyr: væri ekki raunveruleg kjarabót í því að lækka skattinn sinn um 20 krónur á dag, eða þó öllu heldur um 40 krónur ef um hjón er að ræða, og kannske eru fleiri í fjöl- skyldunni til að hækka skattinn? Hann getur léttilega hækkað í 100 krónur. Og þá fer að muna um sparnaðinn. Ég efast ekki um að fjöl- skyldan gæti gert ýmislegt til að létta sér lífið fyrir þá kjarabót. Aldrei situr sú ríkisstjórn að völd- (Framhald á bls. 106) 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.