Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1982, Qupperneq 6

Heima er bezt - 01.03.1982, Qupperneq 6
Það þótti mikið fyrirtæki þegar orgelið var keypt, en pabbi og mamma vissu hvað við vorum tónelsk og vildu hlú að því. Þeim var legið á hálsi fyrir þetta, það þótti óþarfi að vera að kaupa hljóðfæri. Samt sem áður var mikið sönglíf í Höfðahverfinu, það voru söngmenn í mörgum fjölskyld- um. Ingimundur Ámason, síðar söngstjóri Geysis, var uppalinn á Grenivík og var þar með stærðar kór með lið- sinni systra sinna og sveitunga. Áhuginn var geysilega mikill og fólkið flykktist til hans. En orgelið kom víst örugglega að gagni, en það er nú í eigu systurdóttur minn- ar, Laufeyjar Egilsdóttur, og síðast þegar ég sá orgelið voru nóturnar allar gengnar niður, það er búið að spila svo mikið á það. Ingimundur Árnason var barnakennari á Lómatjörn þegar ég var smástelpa, og mér er það sérstaklega minnis- stætt að hann lét mig sitja á hnjám sér á meðan hann spilaði á orgelið. Svo lét hann mig syngja með, eins og ég hafði lungu til. Eldra fólk kannast örugglega við kvöldvökurnar og á kvöldvökunum heima var mikið sungið. Alltaf varð að spara ljósmetið og í rökkrinu lagði eldra fólkið sig, það mátti ekki kveikja fyrr en á vökunni. Siðan kemur að þvi, að ég er send til Akureyrar til að læra á orgel, tvo vetur, mánuð í einu, ekki var það nú meira. En ég kunni þá þegar heilmikið áður en ég fór að læra hjá kennara. Þar á eftir var ég tvo heila vetur hjá Gunnari Sigurgeirssyni og spilaði þá einnig mikið á píanó. Hjá honum lærði ég mikið og Gunnar var afbragðs kennari og góður maður. Hann var sonur Sigurgeirs Jónssonar kirkjuorganista og söngstjóra á Akureyri, sem margir kannast við. Ég var með þegar Kantötukórinn var stofnaður; fjarskalega fjölmennur og góður kór. Margir góðir söng- menn voru þar, m.a. Gunnar Pálsson, Hermann Stefánsson og Hreinn Pálsson. Stofnandi kórsins var Björgvin Guð- mundsson, en hann kom til Akureyrar árið 1931 og kenndi við Menntaskólann og Barnaskólann. Björgvin vantaði ekki viljann, hann tók tónfræði meira að segja til prófs í Menntaskólanum. Það gekk nú ekki lengur en einn vetur. Ég lenti í því að hjálpa einum nemanda hans til prófs, en sá er nú æruverðugur sendiherra úti í löndum. Hann hafði einhvern veginn komist yfir prófeyðublað, sem hann kom með og bað mig að leysa úr, sem ég gerði. Þetta var ansi þungt, en hann lærði þetta utanað og stóð sig því með afbrigðum vel á prófinu. Björgvin klappaði honum svo í bak og fyrir og sagði að hann hefði þó tekið eftir í tímum hjá sér! Kennslan átti illa við Björgvin, börnin voru ódæl við hann og því illa gert að vera að pressa hann út í þetta. Árið 1951 fór ég með Kantötukórnum til Svíþjóðar á norrænt söngmót, sem haldið er af og til. Áður höfðu það fyrst og fremst verið kórar úr Reykjavík sem fóru út. Þessi för var Björgvini mikil upplyfting eftir allt kennsluþrasið. Þegar ég var á Akureyri, var ég mikið til húsa hjá Snorra Sigfússyni skólastjóra, hann var giftur Guðrúnu móður- systur minni. Þegar Kantatan var stofnuð vorum við fimm úr húsinu í kórnum og ábyggilega hefur ekki verið jafn Foreldrar Sigríðar. Valgerður Jóhannesdóttir og Guð- mundur Sæmundsson. Myndin er tekin á gullbrúðkaupsdegiþeirra. Fyrsta myndin sem tekin var af Sigríði. A myndinni eru ásamt henni Valtýr bróðir hennar (sýslumaður á Eskifirði og borgardómari í Reykjavík) og Kjartan Runólfsson syst- ursonur Sigríðar. 7 8 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.