Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.03.1982, Blaðsíða 7
17ára. Þessi mynd var tekin áður en Sigríður lét klippa hár sitt. mikill styrkur lagður til úr neinu húsi í bænum eins og húsi Snorra. Síðan lá leiðin í Laugarvatnsskólann, ég var þar í tvo vetur. Á Laugarvatni byrjaði ég fyrst að slá takt, en þannig var, að Þórður Kristleifsson lét mig spila undir fyrir kór, sem hann æfði í skólanum. Þórður hafði mikið uppáhald á mér, lét mig syngja einsöng og eitt sinn skipaði hann mér út á gólfið til að slá taktinn. Ég var ekki upplitsdjörf, að slá taktinn fyrir skólasystkini mín, en það er svo skrítið að þegar maður er einu sinni búinn að yfirvinna fyrstu hræðsluna, þá er eins og manni veitist það léttara næst. Þegar ég kom af skólanum aftur til Akureyrar endur- nýjaði ég kynnin við Björgvin og Kantötukórinn. En svo var þarna einnig þýskur maður, Róbert Abraham, sem síðar varð íslenskur ríkisborgari og nefndist þá Róbert A. Ottósson. Hann auglýsti eftir fólki í tvöfaldan kvartett á Akureyri. Allmargir gáfu sig fram í kórinn og þar á meðal ég, því þá átti ég frekar hægt með að vera í báðum kórun- um. Ég fékk mikla þjálfun í þessum nýja kór hjá Róbert, en hann var fyrirtaks tónlistarmaður, bæði fær píanóleikari og útlærður hljómsveitarstjóri. Róbert hafði orðið að flýja Hitlers-Þýskaland vfegna þess að hann var gyðingur, flúði fyrst til Danmerkur en var síðan drifinn hingað til íslands. Hann kom hingað blá- snauður, átti ekkert nema nokkrar nótnabækur, en það var leigt handa honum píanó.“ Nú læðist Helgi Schiöth til okkar Sigríðar með mynda- ramma í hendinni og leggur á borðið hjá okkur. f ramm- anum er lítið prentað blað: Konsert. Sigríður Guðmunds- dóttir, Róbert Abraham. „Hvað er þetta?“ „Þetta er prógramm frá því er Róbert lét mig halda með sér konsert árið 1940. Mörgum Akureyringum þótti í mikið ráðist, þar sem þeir vissu að ég var lítið lærð. Ég treysti bara á þennan góða kennara minn og gerði allt sem hann sagði mér að gera. Þetta prógramm hef ég geymt vel. Það voru ellefu lög á skránni, þar af spilaði hann tvö einleikslög, í hinum söng ég. Ég á enn ummæli bæjarblaðanna um þessa tónleika, þau voru mjög lofsamleg. Valdimar Steffensen skrifaði mjög fallega, sömuleiðis Áskell Snorrason. Þegar frá leið fannst mér ómögulegt að vera í báðum kórunum og einbeitti mér því einungis að kór Róberts, það voru miklu fleiri í Kantötukórnum, en hjá Róbert náði ég mér miklu betur á strik, fékk að njóta mín og syngja t.d. einsöng.“ „Hvernig leið þér á þessum einsöngstónleikum?“ „Ekki eins illa og í fyrsta sinn sem ég söng einsöng, þá leið mér virkilega illa, alein á sviðinu. Tónleikarnir voru haldnir í Nýja-Bíói á Akureyri, það var lítil kompa undir sviðinu og þar gekk ég um eins og ljón í búri meðan Róbert og Jórunn Geirsson spiluðu fjórhent. Ég sá ekki fólkið í salnum þegar ég síðan stóð á sviðinu, mér tókst einhvern veginn að horfa fram hjá því. Þetta blessaðist allt saman. Eftir að ég tófc fullnaðarpróf í barnaskólanum og þangað til ég fór í Laugarvatnsskólann liðu nokkur ár. Ég man hve mér veittist erfitt að byrja að læra aftur, sérstaklega af því ég hætti að læra svo snemma, var látin taka fullnaðarpróf árið áður en ég var fermd. En ég las heil ósköp, bæði það sem var keypt í bókasafnið heima og einnig fékk ég lánaðar bækur hjá Bjarna Arasyni á Grýtubakka, en hann átti mikið af bókum. Ég náði í fjórar til fimm bækur í ferð, en Bjarni var mér afskaplega góður. „Þú mátt lesa allar bæk- urnar mínar, Sigga mín, bara ef þú ferð vel með þær,“ sagði hann. Þá hafði maður tíma til að lesa, hvorki útvarp né sjónvarp og nokkrar bæjarleiðir í síma. Ég held að maður hafi nú menntast svolítið við að lesa allar þessar bækur og ég man þegar við lásum fyrstu bækurnar hans Laxness. Þær voru mjög umtalaðar og umdeildar og nú á síðari árum hefur það stundum komið fyrir að ég hef sett menn á gat í þessum bókum, sérstaklega menn sem hefja Laxness til skýjanna af því að hann er búinn að fá verðlaun. Oft hafa þessir sömu menn lítið lesið eftir Laxness. Margt af því sem Laxness hefur skrifað er ágætt, en síðustu bækurn- ar... .“ Sigríður hristir höfuðið í vanþóknun. Henni finnst greinilega ekki mikið til þeirra koma. „Hvað gerðir þú þegar þú varst á Akureyri í tónlistar- náminu?“ „Þá var ekki hlaupið að því að fá atvinnu fyrir ungar stúlkur. Það var slegist um að fá vinnu á Landsímastöðinni og í þessum fáu búðum sem voru í bænum. Það var fátt Heima er bezt 79

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.